Erfiður fyrsti dagur hjá Ólafíu Þórunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2016 18:00 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR. Mynd/GSÍ(seth@golf.is
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, átti ekki góðan dag á fyrsta hringnum sínum á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni. Ólafía Þórunn lék holurnar átján á 80 höggum eða átta höggum yfir pari. Hún er í 115. sæti eftir fyrsta daginn, þrettán höggum á eftir hinni ensku Florentyna Parker sem er í forystu. Ólafía Þórunn lék fyrstu sjö holurnar á pari en tapaði síðan sex höggum á næstu fimm holum þar af fékk hún tvo skramba. Ólafía Þórunn endaði síðan að fá skolla á tveimur síðustu holunum. Ólafía Þórunn náði ekki neinum fugli í dag, fékk fjóra skolla, tvo skramba og tólf holur lék hún á pari. Ólafía hafði staðið sig vel á tveimur mótum á þessu tímabili á LET Access atvinnumótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Ólafía Þórunn er í 13. sæti á stigalistanum á LET Access eftir að hafa endaði í 24.-30. sæti á pari vallar á öðru mótinu sem fram fór í Sviss (72-69-75). Á fyrsta mótinu í Frakklandi endaði hún í 16. sæti á -1 samtals (74-72-72). Aðeins þrír íslenskir kylfingar hafa komist inn á sterkustu atvinnumótaraðirnar í Evrópu eftir góðan árangur í úrtökumótum. Ólöf María Jónsdóttir úr Keili keppti fyrst allra árið 2005 eftir að hafa tryggt sér keppnisrétt á meðal þeirra bestu. Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð inn á Evrópumótaröðina með keppnisrétt. Ólafía Þórunn er því þriðji kylfingurinn frá Íslandi sem nær alla leið inn á mótaröð þeirra bestu.
Golf Tengdar fréttir Ólafía Þórunn á leið á Evrópumótaröðina Spilaði frábærlega í dag og var á meðal 30 efstu þegar hún kom í hús. 22. desember 2015 13:44 Ólafía Þórunn með fimm fugla á degi tvö | Örugg í gegnum niðurskurðinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er að spila mjög vel á móti í Sviss en það er hluti af LET Access mótaröðinni. 29. apríl 2016 16:39 Ólafía Þórunn: Fæ samviskubit ef ég er ekki að æfa mig Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem Hjörtur Hjartarson ræddi við hana um atvinnumennskuna og fleira. Ólafía segist tapsár og er spennt fyrir komandi árum í atvinnumennskunni. 9. janúar 2016 22:00 Magnað að sjá hvernig Ólafía stóðst álagið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í gær önnur íslenska konan til að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Keppir um allan heim á næsta ári en þarf sjálf að borga brúsann. 23. desember 2015 06:00 Ólafía Þórunn fær hæsta styrkinn úr afrekssjóði kylfinga Fimm atvinnukylfingar fengu styrk úr Forskoti, afrekssjóði kylfinga, en nýverið var úthlutað úr sjóðnum. 21. janúar 2016 14:30 Ólafía Þórunn: Aðalmarkmiðið að halda keppnisréttinum Hefur leik á Evrópumótaröðinni í febrúar. Segir markmiðið fyrir fyrsta tímabilið að læra sem mest og halda keppnisréttinum. Langtímamarkmiðin liggja í Bandaríkjunum. 7. janúar 2016 16:30 Mest lesið „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Fótbolti Mikil eftirvænting vegna endurkomu Ingebrigtsen Sport Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Fótbolti Teslan á sjálfstýringu þegar hann klessti á Sport Fleiri fréttir Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí Sjá meira
Ólafía Þórunn á leið á Evrópumótaröðina Spilaði frábærlega í dag og var á meðal 30 efstu þegar hún kom í hús. 22. desember 2015 13:44
Ólafía Þórunn með fimm fugla á degi tvö | Örugg í gegnum niðurskurðinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er að spila mjög vel á móti í Sviss en það er hluti af LET Access mótaröðinni. 29. apríl 2016 16:39
Ólafía Þórunn: Fæ samviskubit ef ég er ekki að æfa mig Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem Hjörtur Hjartarson ræddi við hana um atvinnumennskuna og fleira. Ólafía segist tapsár og er spennt fyrir komandi árum í atvinnumennskunni. 9. janúar 2016 22:00
Magnað að sjá hvernig Ólafía stóðst álagið Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í gær önnur íslenska konan til að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Keppir um allan heim á næsta ári en þarf sjálf að borga brúsann. 23. desember 2015 06:00
Ólafía Þórunn fær hæsta styrkinn úr afrekssjóði kylfinga Fimm atvinnukylfingar fengu styrk úr Forskoti, afrekssjóði kylfinga, en nýverið var úthlutað úr sjóðnum. 21. janúar 2016 14:30
Ólafía Þórunn: Aðalmarkmiðið að halda keppnisréttinum Hefur leik á Evrópumótaröðinni í febrúar. Segir markmiðið fyrir fyrsta tímabilið að læra sem mest og halda keppnisréttinum. Langtímamarkmiðin liggja í Bandaríkjunum. 7. janúar 2016 16:30