Handteknir grunaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 23. desember 2016 07:36
Þýska lögreglan handtók í morgun tvo menn sem grunaðir voru um að hafa ætlað að gera árás í verslunarmiðstöð í borginni Oberhausen, skammt frá landamærum Hollands. Um er að ræða bræður frá Kósóvó í kringum þrítugt. Þeir eru sagðir hafa lagt á ráðin um hryðjuverk en ekki er vitað hversu langt skipulagningin var komin né hvort fleiri tengist málinu. Lögregla hafði fengið ábendingu um að árás væri í vændum og sendi því óeinkennisklædda lögreglumenn til eftirlits í verslunarmiðstöðinni og nærliggjandi jólamarkaði. Bræðurnir voru svo handteknir í borginni Duisburg. Hæsta viðbúnaðarstig er í gildi í Þýskalandi vegna árásarinnar í Berlín á mánudagskvöld, þar sem flutningabíl var ekið inn á jólamarkað með þeim afleiðingum að tólf biðu bana. Ekki er talið að bræðurnir, sem handteknir voru í morgun, tengist þeirri árás. Meintur árásarmaður í Berlín hefur verið nafngreindur sem Anis Amri frá Túnis. Víðtæk leit stendur yfir af honum í Evrópu allri.
Hryðjuverk í Evrópu Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira