Messi hefur búið til jafnmörg mörk og allt lið Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2019 18:00 Lionel Messi. Getty/Jeroen Meuwsen
Real Madrid hefur hvorki verið fugl né fiskur eftir að liðið sá á eftir Cristiano Ronaldo til Ítalíu og kæmist ekki í Meistaradeildina ef spænska tímabilið endaði í dag. Barcelona er komið með tíu stigum meira en Real Madrid í spænsku deildinni en lítið hefur gengið hjá Evrópumeisturum Real Madrid á þessu tímabili og liðið tapaði sínum sjötta deildarleik í gær. Real Madrid seldi Cristiano Ronaldo til Juventus fyrir tímabilið og Real hefur „aðeins“ skoraði 26 mörk í fyrstu átján deildarleikjum sínum sem þykir mjög lítið á þeim bænum. Á síðustu leiktíð skoraði Real Madrid 2,5 mörk að meðaltali í leik í deildinni eða 94 mörk í 38 leikjum. Til að ná 94 mörkum á þessu tímabili þá þyrftu leikmenn Real að skora 68 mörk í síðustu tuttugu leikjunum eða 3,4 mörk í leik. Real liðið hefur þannig skorað 24 mörkum færra en Barcelona liðið á leiktíðinni og þrjú önnur félög, Sevilla (31), Levante (30) og Celta de Vigo (28), hafa líka skorað meira en Real Madrid í deildinni. Fróðlegast er þó að bera saman markaskor Real Madrid við tölurnar hans Lionel Messi. Lionel Messi hefur nefnilega komið að 26 af 50 mörkum Barcelona með því annaðhvort að skora sjálfur (16 mörk) eða gefa stoðsendingu (10 stoðseningar). Messi hefur þannig búið til jafnmörg mörk og allt lið Real Madrid til samans. Messi er með fjögurra marka forystu á listanum yfir markahæstu menn en næstur kemur liðsfélagi hans Luis Suárez. Markahæsti leikmaður Real Madrid í spænsku deildinni til þessa er Karim Benzem með 7 mörk. Messi er líka með góða forystu á listanum yfir flestar stoðsendingar.
Spænski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira