Real áfram þrátt fyrir tap Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. janúar 2019 22:22 Real fór örugglega áfram þrátt fyrir tap vísir/getty
Real Madrid spilar til 8-liða úrslita í spænsku bikarkeppninni í fótbolta þrátt fyrir eins marks tap fyrir Leganes á útivelli í kvöld. Spænska bikarkeppninn er spiluð í einvígum heima og heiman frá 16-liða úrslitunum og vann Real Madrid 3-0 sigur á heimavelli sínum í fyrri leik liðanna. Madrídarliðið var því nokkuð öruggt áfram nema stórslys yrði hjá þeim í kvöld. Heimamenn í Leganes náðu ágætri byrjun þegar Martin Braithwaite skoraði eftir hálftíma leik. Hann skallaði í stöngina, Sabin Merino tók frákastið og skaut en Keylor Navas varði það skot. Navas sló boltann þó aðeins fyrir fætur Braithwaite sem potaði honum í tómt netið. Þá gátu stuðningsmenn Leganes farið að leyfa sér að trúa en trúin dvínaði eftir því sem leið á leikinn því liðið þurfti að skora að minnsta kosti tvö mörk í viðbót. Brahim Diaz komst hvað næst því að skora annað mark leiksins, en það fyrir Real Madrid, þegar skot hans í uppbótartíma small í stönginni. Niðurstaðan 1-0 sigur Leganes en samanlagt 3-1 tap, Real spilar til 8-liða úrslita en Leganes er úr leik.
Spænski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Hilmir fljótur að finna skotskóna í Tékklandi Häcken selur Fanneyju Ingu til Vålerenga Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Langar að taka pásu frá landsliðinu Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Sjá meira