Sport

Hinrik Ingi með yfirlýsingu: Ég hef aldrei notað ólögleg efni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hinrik Ingi Óskarsson.
Hinrik Ingi Óskarsson. mynd/hinrik ingi
Hinrik Ingi Óskarsson var búinn að vinna sér þátttökurétt á heimsleikunum í CrossFit sem hefjast í dag. Hann missti hins vegar sætið sitt þegar hann féll á lyfjaprófi. Hinrik Ingi heldur fram sakleysi sínu í yfirlýsingu á Instagram síðu sinni í dag.

Hinrik Ingi Óskarsson féll á lyfjaprófi sem hann fór í á Reykjavík Crossfit Championship mótinu í byrjun maí eða á sama móti og hann tryggði sér farseðil á heimsleikana. Hann missti ekki bara sætið á heimsleikunum heldur var hann einnig dæmdur í fjögurra ára bann.

Hinrik Ingi vildi ekki tjá sig um málið þegar það kom upp en í dag skrifaði hann yfirlýsingu á Instagram um leið og hann óskaði öllum keppendum á heimsleikunum í ár góðs gengis. Hinrik Ingi skrifaði yfirlýsingu sína á ensku.

„Ég hef aldrei notað ólögleg efni og þess vegna höfum ég og mitt teymi áfrýjað úrskurðinum og við höldum áfram að leita svara,“ skrifaði Hinrik Ingi.

„Það er líka ósatt að ég hafi fallið áður á lyfjaprófi eða að ég hafi áður verið settur í bann hjá Crossfit International. Sannleikurinn er sá að vegna deilna milli mín og annara aðila, þá leyfðu eigendur í CrossFit heiminum á Íslandi mér ekki að æfa hjá sér. Allar yfirlýsingar um að ég hafi verið að falla á lyfjaprófi í annað sinn eru ósannar,“ skrifaði Hinrik Ingi.

„Ég fagnaði því árið 2016 að vera á lista hjá CrossFit samtökunum sem gaf þeim leyfi að taka mig í lyfjapróf hvar og hvenær sem er. Ég gerði það af því að ég hafði ekkert að fela,“ skrifaði Hinrik.

„Í maí 2019 fékk ég tækifæri til sýna mig og sanna upp á nýtt. Ég vissi vel að ég yrði tekinn í lyfjapróf í mótinu og ég myndi aldrei ógna framtíð minni sem íþróttamanni og um leið lífsviðurværi mínu, með því að taka ólögleg lyf. Styrkleiki minn eru áhugi, dugnaður og metnaður og því tók ég því fagnandi að vera tekinn í próf. Ég var undrandi yfir niðurstöðunni,“ skrifaði Hinrik meðal annars eins og sjá má hér fyrir neðan.

Yfirlýsing hans er í tveimur hlutum og er þeir báðir hér fyrir neðan.



 
 
 
View this post on Instagram
PART 1  I would like to wish all the contestants at the Crossfit Games all the best but at the same time I would like to make the following statement: -1.  I have never used illegal substances and that is why my team and I appealed the outcome of the drug test that was conducted and we continue to look for answers.2.  It is untrue that I had ever failed a drug test before or that I was ever banned by Crossfit International. The truth is that because of personal conflict between me and some other people, owners of some of the Crossfit affiliates in Iceland would not allow me to train there. So all statements that I was failing a drug test for the second time are simply false.3.  After I competed at the Crossfit championships in Iceland in 2016, I was registered on a list that allowed Crossfit to drug test me where and whenever they would so please. I welcomed that decision because I had and have nothing to hide.4.  In May 2019 I got the opportunity to prove myself all over again. I knew for sure that I would be tested at the competition and I would never risk my athletic future and my livelihood, by using illegal substances. My strengths are my motivation, drive and ambitions and therefore I welcomed the opportunity to be tested, but was baffled by the outcome of the test. - PART 2  in next post

A post shared by Hinrik Ingi Óskarsson (@hinrikingi) on Aug 1, 2019 at 5:33am PDT



 
 
 
View this post on Instagram
PART 2  — 5.  I had to take the long road to be able to get back among the best. If I would have known the difficulties that followed the conflict I got involved with in 2016, I would of course have handled it differently. I simply underestimated the response and apologize for that. I woke up every morning with only one goal in mind and that was that I wanted to prove that I belonged up there with the best. I would never have taken any chances to jeopardize that. 6.  It is important to remember that Crossfit International is a private organization with profit as the main goal. They can basically control how they want to play this game and who they would like to see at the Crossfit games. Serious questions can for example be raised about the process they have during their drug testing and the fact that they can select what they want to do with the outcome of the tests that they conduct. 7.  And to the people that have implied that I have used illegal substances I just want to say that you are wrong. Very few, if any, have put as much work and dedication into their training as I have. I had the goal to earn a place at the Crossfit Games and I did that. My goal this year was to gain experience but then come back even stronger next year so I had a long-time plan. 8.  Four years is a long time in the life of an athlete but this will not be the last time you see of Hinrik Ingi Óskarsson  that is for sure. But again, I would like to wish all the Crossfit competitors all the best and I sincerely wish that they will enjoy their time at the Crossfit games.

A post shared by Hinrik Ingi Óskarsson (@hinrikingi) on Aug 1, 2019 at 5:35am PDT




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×