Trump stöðvaði styrk til Úkraínu áður en hann talaði við nýja forsetann Kjartan Kjartansson skrifar 24. september 2019 10:35 Mulvaney, starfsmannastjóri Hvíta hússins, kom skipun Trump um að halda eftir styrk til Úkraínu áleiðis. Vísir/EPA
Viku áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti átti umdeilt símtal við nýkjörinn forseta Úkraínu skipaði hann Mick Mulvaney, starfsmannastjóra Hvíta hússins, að halda eftir hundruð milljóna dollara hernaðaraðstoð. Trump er sagður hafa þrýst ítrekað á úkraínska forsetann að rannsaka pólitískan andstæðing sinn. Washington Post hefur þetta eftir háttsettum heimildarmönnum sínum innan bandarísku ríkisstjórnarinnar. Símtal Trump og Volodymyrs Zelenskí, forseta Úkraínu, átti sér stað í júlí. Fjárlaga- og stjórnunarskrifstofa Hvíta hússins hafi í framhaldinu komið skipuninni til utanríkis- og varnarmálaráðuneytanna. Embættismönnum var skipað að segja Bandaríkjaþingi aðeins að tafirnar væru hluti af samráðsferli ólíkra stofnana og ekkert umfram það. Aðstoðinni var haldið eftir allt fram í miðjan september þegar demókratar á Bandaríkjaþingi kröfðust svara um hvers vegna styrkurinn til Úkraínu hefði ekki verið veittur.Þrýsti ítrekað á Zelenskí að rannsaka Biden Samskipti Trump við Zelenskí komust í hámæli eftir að fréttir bárust af því í síðustu viku að Joseph Maguire, starfandi yfirmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna (DNI), neitaði að afhenda þinginu kvörtun frá uppljóstrara innan leyniþjónustunnar þrátt fyrir að lög kveði á um það. Innri endurskoðandi leyniþjónustunnar taldi kvörtunina trúverðuga og áríðandi. Í fyrstu kom aðeins fram að kvörtunin varðaði óviðeigandi samskipti háttsetts embættismanns við erlent ríki. Embættismaðurinn hefði veitt óeðlilegt loforð í þeim samskiptum. Síðar greindu bandarískir fjölmiðlar frá því að um væri að ræða símtal Trump forseta við Zelenskí þar sem bandaríski forsetinn þrýsti ítrekað á þann úkraínska um að rannsaka Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, og son hans Hunter. Biden þykir líklegur til að verða mótframbjóðandi Trump í forsetakosningum á næsta ári. Hvorki kvörtun uppljóstrarans innan leyniþjónustunnar né eftirrit af samtali Trump og Zelenskí hefur verið gert opinbert. Tal um að demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings gætu kært Trump fyrir embættisbrot hefur færst verulega í aukana vegna Úkraínumálsins. Athygli hefur vakið að símtal Trump og Zelenskí átti sér stað 25. júlí, daginn eftir að Robert Mueller, sérstaki rannsakandi dómsmálaráðuneytisins sem rannsakaði meint samráð framboðs Trump við rússnesk stjórnvöld, bar vitni í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Trump hafði þá varið meginþorra forsetatíðar sinnar í að hafna ásökunum um samráð við erlent ríki til að koma höggi á pólitískan andstæðing hans. Hann er nú sakaður um nákvæmlega sama framferði og Mueller fann ekki sannanir um í tilfelli Rússa.Volodymyr Zelenskí var grínleikari en tók við embætti forseta í maí. Símtal hans og Trump átti sér stað í seinni hluta júlí.Vísir/EPANeita því að styrkurinn og þrýstingurinn tengist Auk Trump sjálfs hefur Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður forsetans, ítrekað þrýst á úkraínska ráðamenn að grafa upp skaðlegar upplýsingar um Biden. Trump og bandamenn hans hafa reynt að halda kenningum á lofti um að Biden hafi sem varaforseti haft í hótunum við úkraínsk stjórnvöld til að þau rækju saksóknara sem hafði rannsakað fyrirtæki sem sonur Biden tengdist. Þeir hafa þó ekki lagt fram neinar sannanir fyrir því að Biden-feðgarnir hafi gert nokkuð saknæmt í Úkraínu. Saksóknaraembættið í Úkraínu hefur sagt að engar vísbendingar séu um það. Þegar Biden tók þátt í alþjóðlegum aðgerðum til að knýja úkraínsk stjórnvöld til að uppræta spillingu hafði rannsóknin á fyrirtæki þar sem sonur hans sat í stjórn þegar verið lögð til hliðar. Þrýstingur Trump og bandamanna hans hefur verið sett í samhengi við að Bandaríkjastjórn hélt eftir um 400 milljón dollara hernaðaraðstoð við Úkraínu í sumar. Forsetinn hefur verið sakaður um að misnota aðstöðu sína til krefja erlendra ríkisstjórn um persónulegan pólitískan greiða með hótun um að afturkalla aðstoðina. Heimildarmaður Washington Post harðneitar þó að nokkur tengsl hafi verið á milli þrýstings sem Trump hafi sett á Zelenskí og ákvörðunarinnar um að halda eftir hernaðarstyrknum. Ríkisstjórnin hefur gefið þær skýringar að Trump hafi haft efasemdir um að þörf væri á að veita styrkinn. Trump hefur sjálfur sagt að hann hafi nefnt Biden við Zelenskí. Hann hafi hins vegar ekki hótað að halda eftir hernaðaraðstoð. Hann hafi haft lögmætar ástæður til að efast um að rétt væri að veita fé til Úkraínu í ljósi spillingar þar í landi.
Bandaríkin Donald Trump Ákæruferli þingsins gegn Trump Úkraína Tengdar fréttir Þrýstingur á að kæra Trump fyrir embættisbrot eykst Ásakanir um að Trump forseti hafi nýtt embætti sitt til að þrýsta á Úkraínustjórn um aðstoð gegn pólitískum andstæðingi hans hafa sett aukinn þrýsting á forystu Demókrataflokksins um að kæra Trump fyrir embættisbrot. 23. september 2019 13:05 Trump þrýsti á forseta Úkraínu að rannsaka son Joe Biden Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er sagður hafa beitt úkraínska forsetann, Volodymyr Zelensky, þrýstingi til að láta rannsaka son Joseph Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. 21. september 2019 10:20 Loforð Trump sagt tengjast Úkraínu Loforðið varð til þess að starfsmaður einnar af leyniþjónustum Bandaríkjanna, sem starfaði innan Hvíta hússins, tilkynnti atvikið og hefur það leitt til mikilla deila á milli þingmanna og Joseph Maguire, starfandi yfirmanns leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem neitar að afhenda þinginu upplýsingar um kvörtun starfsmannsins. 20. september 2019 08:30 Mest lesið Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira
Þrýstingur á að kæra Trump fyrir embættisbrot eykst Ásakanir um að Trump forseti hafi nýtt embætti sitt til að þrýsta á Úkraínustjórn um aðstoð gegn pólitískum andstæðingi hans hafa sett aukinn þrýsting á forystu Demókrataflokksins um að kæra Trump fyrir embættisbrot. 23. september 2019 13:05
Trump þrýsti á forseta Úkraínu að rannsaka son Joe Biden Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er sagður hafa beitt úkraínska forsetann, Volodymyr Zelensky, þrýstingi til að láta rannsaka son Joseph Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. 21. september 2019 10:20
Loforð Trump sagt tengjast Úkraínu Loforðið varð til þess að starfsmaður einnar af leyniþjónustum Bandaríkjanna, sem starfaði innan Hvíta hússins, tilkynnti atvikið og hefur það leitt til mikilla deila á milli þingmanna og Joseph Maguire, starfandi yfirmanns leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem neitar að afhenda þinginu upplýsingar um kvörtun starfsmannsins. 20. september 2019 08:30