Flestir vagnar Strætó aftur á kortersfresti frá og með 18. maí Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. maí 2020 16:04 Strætó við Hlemm. Vísir/Vilhelm
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur verið tekin ákvörðun um að hefja akstur samkvæmt sumaráætlun frá og með mánudeginum 18. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó. Frá því um miðjan mars minnkaði Strætó tíðni vagna sinna vegna minni eftirspurnar sökum samkomubanns sem miðaðist við tuttugu manns í rými auk tveggja metra reglunnar. Síðan þá hafa vagnarnir ekið samkvæmt laugardagsáætlun alla daga þegar vagnar eru almennt á hálftímafresti í stað kortersfresti. Allar leiðir hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu munu í sumar aka samkvæmt óskertri áætlun fyrir utan leiðir 18, 24 og 28, en þær munu áfram aka á 30 mínútna fresti í sumar. Næturakstur úr miðbænum um helgar mun áfram liggja niðri og þjónusta á landsbyggðinni verður áfram skert þar til annað verður tilkynnt. Framhurðin áfram lokuð Framhurð strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verður enn lokuð og farþegar munu áfram ganga inn um mið- eða aftari dyr vagnsins. Innra rými strætisvagnanna verður áfram skipt upp í tvo hluta. Borði er strengdur yfir fremsta hluta vagnanna til þess aðskilja svæði vagnstjóra og svæði farþega. Mælt er með því að greiða fargjaldið með Strætókorti eða Strætóappinu. Áfram eru ítrekuð þau tilmæli að viðskiptavinir sýni varkárni í samskiptum og umgengni, að þeir þvoi hendur og spritti reglulega, hósti og hnerri í olnbogabót, takmarki snertingar á snertifleti og ferðist alls ekki með Strætó ef grunur leikur á smiti. Fjöldatakmarkanir Hámarksfjöldi farþega um borð í strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verður áfram 30 manns. Hópaferðir skólabarna og skipulagðar ferðir í íþrótta og tómstundastarfi eru undanþegnar þessum fjöldatakmörkunum. Skv. tilmælum sóttvarnalæknis þá eru engar takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og engar fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskóla aldri. Skipulagðar hópaferðir barna í skóla eða tómstundum eru aðeins heimilar á virkum dögum milli klukkan 9-15:30.
Strætó Samgöngur Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Fleiri fréttir Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Sjá meira