Mesti fjöldi smita í Frakklandi síðan í apríl Atli Ísleifsson skrifar 27. ágúst 2020 12:06 Jean Castex er forsætisráðherra Frakklands. EPA
Alls greindust 5.429 ný kórónuveirusmit í Frakklandi síðasta sólarhringinn og hafa þau ekki verið fleiri á einum degi í landinu síðan í apríl. Jean Castex, forsætisráðherra Frakklands, segir að veiran sé nú fjórum sinnum útbreiddari í landinu en fyrir einum mánuði og að 21 svæði í landinu sé nú flokkað sem „rautt“. Castex segir að stjórnvöld hafi sitt að segja þegar kemur að þessari auknu útbreiðslu en að „allir verði að finna til ábyrgðar í baráttunni við faraldurinn“. Nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir „veldisvöxt“ í smitum, en að stjórnvöld muni gera allt til að koma megi í veg fyrir „lokun“ samfélagsins. Margir óttast að útbreiðsla veirunnar muni aukast enn fremur nú þegar skólar hafa opnað á ný og atvinnulífið er komið í fullan gang eftir sumarfrí. Ný smit hafa fyrst og fremst greinst hjá ungum einstaklingum, en innlögnum á sjúkrahús hefur fjölgað að undanförnu og eru um átta hundruð á viku. Alls eru skráð kórónuveirutilfelli í Frakklandi nú 253 þúsund, og eru þau dauðsföll sem rakin hafa verið til Covid-19 30.544.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Frakkland Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira