Það sem Njáll sagði ykkur ekki Inga Lind Karlsdóttir skrifar 23. apríl 2021 12:31 Í síðustu viku birtist í Markaðinum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, grein sem hljómaði eins og hún hefði verið skrifuð á skrifstofu Fiskeldis Austfjarða við Nesbala á Seltjarnarnesi, svo laus voru skrifin við gagnrýni og fyrirvara um laxeldi í opnum sjókvíum. Flokkast sú starfsemi þó opinberlega sem mengandi iðnaður og gert er sérstakt áhættumat um hversu mikinn skaða á lífríkinu stjórnvöldum þykir ásættanlegt að hún valdi. Takið eftir, matið er ekki hvort sjókvíaeldi veldur skaða, heldur hversu miklum. Höfundur greinarinnar var hins vegar ekki upplýsingafulltrúi sjókvíaeldisfyrirtækis heldur Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi. Skoðum nú það sem Njáll Trausti kaus að segja lesendum Markaðarins ekki. Meint atvinnusköpun Fjöldi starfa sem Njáll hélt á lofti í grein sinni er tálsýn. Störfin verða alltaf miklu færri en var lofað og eru þar að auki ekki í nokkru hlutfalli við vöxt þeirra tonna af eldislaxi sem er settur út í sjókvíarnar. Sú saga er til og hefur verið færð til bókar. Þannig störfuðu árið 1987 um fjögur þúsund manns við sjókvíaeldi í Noregi þegar ársframleiðslan var um 46 þúsund tonn af laxi. Árið 2018 hafði framleiðslan 28-faldast, var komin í 1,3 milljónir tonna, en störfin þó aðeins helmingi fleiri en þrjátíu árum áður. Stórum hluta af þessum störfum sinnir svo erlent farandverkarfólk á lágmarkslaunum því í Noregi er sama upp á teningnum og hefur verið hér um árabil í landvinnslu sjávarútvegarins þar sem yfir helmingur er erlent starfsfólk. Heimafólk er upp til hópa lítið áhugasamt um þau störf og kjör sem eru í boði í þessum geirum. Hröð fækkun starfa framundan Störfum hefur þannig verið að fækka jafnt og þétt sem hlutfall af framleiðslumagni í sjókvíaeldi á laxi. Rétt eins og í sjávarútveginum er tækniþróunin hröð. Við Íslendingar þekkjum þá sögu vel. Einn frystitogari dekkar nú veiðar og vinnslu sem áður var sinnt af nokkrum skipum og frystihúsum á landi. Og það er fyrirsjánlegt að störfum í kringum sjókvíaeldi mun fækka enn hraðar á allra næstu árum. Stærsta sjókvíaeldisfyrirtæki heims, Mowi, boðaði nánast byltingu í þeim efnum í viðamikilli kynningu sem það sendi frá sér fyrr á árinu um leið og það sagði frá niðurskurði sem hafinn er á starfsliði fyrirtækisins. Rétt eins og í svo mörgum öðrum geirum mun hugbúnaður, knúinn áfram af gervigreind, vélanám (machine learning) og sjálfvirknivæðing sjá til þess að mannshöndin mun ekki koma við sögu í fjölmörgum verkum í þessum iðnaði innan skamms. Reyndar liggur nú þegar fyrir að stórum hluta af störfum, sem áður þurfti að sinna á staðnum, er fjarstýrt af fólki sem situr við tölvuskjái. Fiskeldi Austfjarða kynnti til dæmis árið 2018 áætlanir um að fjarstýra fóðrun eldislaxa í austfirskum fjörðum frá Noregi (þar sem móðurfélagið er staðsett), en hætti svo við, enda hefði annars horfið gulrótin sem fyrirtækið dinglar framan í sveitarstjórnarfólkið og aðra bláeyga stjórnmálamenn um að þessi iðnaður snúist um að skapa störf fyrir íbúa í sjávarbyggðum. Engin ástæða er til að efast um að um leið og öll tiltæk leyfi eru í höfn, mun þessum áformum verða hrint í framkvæmd og gott betur. Líklega þarf ekki einu sinni fólk við skjáina miðað við framtíðarsýnina sem forstjóri Mowi boðaði í kynningu sinni. Þau sem enn trúa á framtíðarstörf fyrir sjávarbyggðir ættu að lesa hana. Meint verðmætasköpun Njáll Trausti sleppti líka að minnast á að sjókvíaeldi er bein atlaga að miklum verðmætum sem eru nú þegar til staðar í landinu. Alls eiga um 4.500 lögbýli veiðirétt (samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands) og eru tekjur af veiðihlunnindum ein meginstoð búsetu í dreifbýli á Íslandi. Þegar horft til landsins alls standa þessar tekjur undir 28 prósent af hagnaði og launakostnaði í landbúnaði. Í kjördæmi Njáls er þetta hlutfall vel yfir landsmeðaltalinu eða 34% á Austurlandi. Sleppifiskur í sjókvíaeldi er bein ógn við þessi verðmæti. Hætta er á að þær fjölskyldur sem missa tekjur af stangveiði muni þurfa að bregða búi. Skaðsemi sjókvíaeldisins teygir sig líka til strandbyggða. Þannig kemur fram í nýrri viðamikil skoskri rannsókn að verð fasteigna, þaðan sem sést í laxeldissjókvíar við vesturströnd Skotlands, er 3,6 milljón krónum lægra að jafnaði en sambærilegra eigna þar sem ekki sést í kvíar. Engin ástæða er til að efast um að þróunin verði eins hér. Njáll nefndi meintar gjaldeyristekjur sem fiskeldið skapar. Þar lét hann þess ógetið hvað fer út úr landinu af gjaldeyri vegna þessarar starfsemi. Óljóst er hver raunverulegur virðisauki er fyrir þjóðina því sjókvíaeldisfyrirtækin eru yfir 90% í eigu alþjóðlegra fiskeldisrisa, sem selja þessum dótturfélögum sínum búnað, fóður, ráðgjöf og lána þeim fé. Þannig er til dæmis stærsti eigandi Arctic Sea Farm, sem er með sjókvíaeldi á Vestfjörðum, skráður á Kýpur, þeirri þekktu skattaparadís. Skammtímagróði fárra Hver hvatinn er og hagsmunir hverra eru í húfi liggur liggur skýrt fyrir. Árið 2017 keypti norska fiskeldisfyrirtækið NTS 45 prósent hlut í Fiskeldi Austfjarða af öðru norsku fyrirtæki, MNH Holding, og greiddi fyrir hlutinn sem nemur 965 milljónum íslenskra króna. Sú upphæð mun hins vegar hækka í 3,9 milljarða króna, ef Fiskeldi Austfjarða fær tiltekin leyfi til aukinnar framleiðslu innan tíu ára frá undirritun kaupsamningsins. Þarna liggur laxinn grafinn. Örfáir einstaklingar hafa nú þegar auðgast feikilega á kaupum og sölu á hlutum í sjókvíaeldisfyrirtækjunum, sem vel að merkja hafa aldrei greitt krónu í tekjuskatt hér á landi og munu ekki gera á næstu árum, uppsafnað tap þeirra er svo gríðarlegt. Hamagangurinn við að þrýsta í gegn nýjum leyfum fyrir sjókvíaeldi í íslenskum fjörðum snýst þannig um skammtímagróða fárra en ekki langtímahagsmuni margra. Höfundur situr í stjórn Íslenska náttúruverndarsjóðsins - The Icelandic Wildlife Fund. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lax Fiskeldi Efnahagsmál Vinnumarkaður Inga Lind Karlsdóttir Mest lesið Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun