Lýsandi hegðun: Leikskólalaust barn olli verulegum örðugleikum í fréttasetti Snorri Másson skrifar 17. ágúst 2022 23:30 Leikskólamálin í Reykjavíkurborg hafa verið í brennidepli frá því að foreldrar hófu að mótmæla úrræðaleysinu í sjálfu Ráðhúsinu í síðustu viku. Á morgun er boðuð stofnun hústökuleikskóla í Ráðhúsinu meðan á borgarráðsfundi stendur.
Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri, stofnandi Bjartrar framtíðar og fv. aðstoðarmaður borgarstjóra, og Guðmundur Kristján Jónsson, húsasmiður og skipulagsfræðingur, eru foreldrar hins fjórtán mánaða gamla Róberts Högna Heiðusonar. Ísland í dag tók fjölskylduna tali í þætti kvöldsins en Róbert er eitt hinna mörgu leikskólalausu barna í Reykjavík. Viðtalið gekk ekki vandræðalaust fyrir sig enda sá Róbert eðlilega ekki ástæðu til að stilla kröfum sínum til foreldra sinna í hóf meðan á viðtalinu stóð. Það má til gamans horfa á viðtalið að ofan og gera tilraun til að einbeita sér alveg að því sem sagt er; hætt er við að athyglin dreifist við hamaganginn. Allt er þetta viðmót ágætt dæmi um veruleika foreldra sem reyna að vinna með börn sín heima, sagði Guðmundur. Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri, stofnandi Bjartrar framtíðar og fv. aðstoðarmaður borgarstjóra, og Guðmundur Kristján Jónsson, húsasmiður og skipulagsfræðingur, eru foreldrar Róberts Högna Heiðusonar, sem hér finnur nýstárleg not fyrir vatnsglas í fréttasetti Stöðvar 2.Vísir/arnar „Maður getur rétt ímyndað sér hvernig þetta er fyrir fólk sem þarf að mæta eitthvert, í vaktavinnu á stofnunum eða stórum vinnustöðum, og getur einfaldlega ekki sinnt sinni vinnu eins og við gerum,“ segir Guðmundur Kristján. Óheiðarleg framganga stjórnmálamanna Foreldrarnir hafa verið að skipta á milli sín vöktum frá fæðingu Róberts, enda útséð um að hann fái leikskólapláss í haust; líklegra er næsta ár. Fleiri hundruð foreldra eru í sömu stöðu og halda áfram að mótmæla í Ráðhúsinu í fyrramálið, þegar settur verður á fót hústökuleikskóli þar frá 8:45. Að vinna heima með börn er hægara sagt en gert. Börn á fjarfundum eru krúttleg til að byrja með, er sagt.Vísir/arnar Embættismenn hjá Reykjavíkurborg sendu út boð í mars til Heiðu og Guðmunds, og annarra foreldra, um að vonir stæðu til að hægt yrði að bjóða barninu leikskólapláss með haustinu. Slíkt segir Heiða að gerist vart án þrýstings frá stjórnmálamönnum og að það sé óheiðarlegt af stjórnmálamönnunum. „Það sem við erum ósátt við og það sem er í rauninni ljótur pólitískur leikur eru þau loforð sem voru gefin út í vor um að eins árs börn fengju pláss í september, en það hefur ekki staðist,“ sagði Heiða Kristín. Hún segir að skóla- og frístundasviði hafi verið teflt fram sem „fronti“ á umræðuna svo að hægt væri að skella skuldinni á embættismenn þegar hún yrði ljós. Leikskólapláss? Kannski á næsta ári.Vísir/Arnar
Leikskólar Reykjavík Ísland í dag Stjórnsýsla Börn og uppeldi Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Hrifinn af tillögum Sjálfstæðismanna Oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík líst vel á bráðatillögur Sjálfstæðismanna í leikskólamálum. Ekkert sé því til dæmis til fyrirstöðu að koma á fót bakvarðarsveit til að tryggja mönnun leikskólanna. Meirihlutinn kynnir eigin tillögur á morgun - sem að sumu leyti muni svipa til tillagna Sjálfstæðismanna. 17. ágúst 2022 11:34 Raunhæfar lausnir fyrir börn og foreldra í Kópavogi Leikskólar í hverju sveitarfélagi eru ein af grunnstoðunum samfélagsins. Ekki aðeins sem fyrsta skólastig heldur ekki síður sem þjónusta við börn og foreldra. Í Kópavogi eru um 550 börn sem fá inngöngu í leikskóla haustið 2022. 17. ágúst 2022 09:30 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira
Hrifinn af tillögum Sjálfstæðismanna Oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík líst vel á bráðatillögur Sjálfstæðismanna í leikskólamálum. Ekkert sé því til dæmis til fyrirstöðu að koma á fót bakvarðarsveit til að tryggja mönnun leikskólanna. Meirihlutinn kynnir eigin tillögur á morgun - sem að sumu leyti muni svipa til tillagna Sjálfstæðismanna. 17. ágúst 2022 11:34
Raunhæfar lausnir fyrir börn og foreldra í Kópavogi Leikskólar í hverju sveitarfélagi eru ein af grunnstoðunum samfélagsins. Ekki aðeins sem fyrsta skólastig heldur ekki síður sem þjónusta við börn og foreldra. Í Kópavogi eru um 550 börn sem fá inngöngu í leikskóla haustið 2022. 17. ágúst 2022 09:30