Tveir nemendur látnir eftir skotárás Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2023 23:13 Paul Parizek, talsmaður lögreglunnar í Des Moines ræðir við fréttamenn fyrir utan skólann. Charlie Neibergall/AP Tveir nemendur skóla, sem er ætlaður ungmennum sem eiga erfitt uppdráttar í hefðbundnu skólakerfi, eru látnir eftir skotárás. Einn starfsmaður var alvarlega særður í árásinni.
Skólinn þar sem árásin var framin er í borginni Des Moines í Iowa-fylki í Bandaríkjunum. Hann er úrræði fyrir ungmenni á aldrinum fjórtán til átján ára sem búa við erfiðar félagslega aðstæður og gengur illa í skóla, að því er segir í frétt AP um málið. Þar segir að viðbragðsaðilar hafi verið kallaðir úr skömmu fyrir klukkan 13 að staðartíma og að á vettvangi hafi þeir fundið tvo alvarlega særða nemendur og hafið skyndihjálp um leið. Nemendurnir hafi látist á sjúkrahúsi. Þá sé fullorðinn starfsmaður skólans alvarlega særður á sjúkrahúsi og á leið í aðgerð. Árásin ekki talin handahófskennd Lögregluyfirvöld í Des Moines telja að árásin hafi verið skipulögð fyrir fram. „Árásinni var klárlega beint að ákveðnum einstaklingum. Hún var ekki handahófskennd. Það er ekkert handahófskennt við þetta,“ hefur AP eftir Paul Parizek, talsmanni lögreglunnar í Des Moines Þá segir lögreglan að um tuttugu mínútum eftir árásina hafi lögregluþjónar stöðvað bifreið, sem passaði við lýsingu vitna, um tvær mílur [3,2 kílómetra] frá skólanum. Þrír voru handteknir grunaðir um árásina.
Skotárásir í Bandaríkjunum Bandaríkin Mest lesið Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Ekkert verður af kaupunum á Krafti Innlent „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Innlent Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Erlent Fleiri fréttir Útgöngubann í borginni í nótt Vörpuðu fimmtíu sprengjum á þrjú skotmörk í Jemen Trump ekki dæmdur í fangelsi Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Staðfesta að 2024 var heitasta árið í mælingasögunni Sóttu sér meira en milljón ára gamlan ís á Suðurskautslandinu Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Stóru eldarnir enn hömlulausir Hæstiréttur stöðvar ekki dómsuppsögu í máli Trumps Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi Fimm forsetar viðstaddir útför Carters Myndasyrpa: Að minnsta kosti tvö þúsund hús brunnin í Los Angeles Spjallaði við hæstaréttardómara rétt fyrir áfrýjun Fyrrverandi fjármálaráðherra Svíþjóðar látinn Skotbardagi við forsetahöll Tjad Líkurnar á að öfgahægrimaður verði kanslari fara vaxandi Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ „Skóli barnanna er farinn, flestar verslanir og ég veit ekki hversu mörg hús“ Eigandi vefsíðunnar í Pelicot-málinu handtekinn í Frakklandi Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Mette boðar flokksformenn á neyðarfund vegna Grænlands Stjórnlausum eldum fjölgar í LA ESB sektað fyrir að brjóta eigin persónuverndarlög Af hverju langar Trump í Grænland? Leita nýrra leiða til að sækja sýni til Mars Sjá meira