Aflýsa neyðarástandi vegna kórónuveirufaraldursins Kjartan Kjartansson skrifar 5. maí 2023 14:54 Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). AP/Martial Trezzini Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) aflýsti heimsneyðarástandi vegna kórónuveirufaraldursins í dag. Þrátt fyrir það segja sérfræðingar stofnunarinnar að faraldrinum sé ekki lokið. Þúsundir manna láti enn lífið af völdum veirunnar í hverri viku. „
Það er með mikilli von í brjósti sem ég lýsi Covid-19 búið sem hnattrænu neyðarástandi í heilbrigðismálum,“ sagði Tedro Ghebreyesus, forstjóri WHO, í dag. WHO lýsti fyrst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna faraldursins 30. janúar árið 2020. Þrátt fyrir sóttvarnaaðgerðir sem fólust meðal annars í samkomu- og ferðatakmörkunum og bóluefni er áætlað að í það minnsta sjö milljónir manna hafi látið lífið til þessa. Tedros sagði að faraldurinn hefði verið í rénun í meira en ár. Mörg ríki hefðu þegar litið svo á að faraldurinn heyrði sögunni til. „Það þýðir ekki að Covid-19 sé búið sem hnattræn ógn við heilbrigði,“ sagði Tedros. Hann hiki ekki við að biðja sérfræðinga stofnunarinnar um að endurmeta stöðuna virðist veira aftur ætla að ógna heimsbyggðinni. Enn sé hætt á að ný afbrigði veirunnar komi fram. Áætlað er að um 764 milljónir smita hafi greinst um allan heim á þeim rúmu þremur árum sem faraldurinn hefur geisað. Um milljarðar manna hafa fengið að minnsta kosti einn bóluefnaskammt gegn veirunni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira