Tíðindin breyti ekki afstöðu þingmanna til málsins Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. janúar 2024 21:40 Hildur Sverrisdóttir og Inga Sæland óskuðu báðar Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, góðs bata. Þær sögðu þó báðar að tíðindin breyttu ekki afstöðu þingmanna til hvalveiðibannsins. Vísir/Vilhelm Formaður Flokks fólksins segir ekkert annað hafa komið til greina en að draga til baka vantraust en hvalveiðimálið vofi þó enn yfir. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir flokkinn ekki hafa verið búinn að komast að afstöðu til vantrausts þegar tíðindi af veikindum ráðherra bárust. Tíðindin breyti þó ekki óánægju flokksins með málið.
Eftir að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, greindi frá veikindum sínum í morgun ákvað Flokkur fólksins að draga til baka vantrauststillögu á hendur ráðherranum. Hvalveiðimálið og afleiðingar þess eru þó enn óleyst. Heimir Már Pétursson ræddi við Ingu Sæland, formann Flokks fólksins og Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, um fregnirnar sem bárust í dag af matvælaráðherra og hvalveiðimálið sem er enn óleyst. Horfa má á viðtalið við þær tvær frá tímanum 2:20 í klippunni hér fyrir neðan: Óska Svandísi góðs bata en segja málið enn óleyst Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir ekki annað hafa komið til greina en að draga vantrauststillöguna til baka. Hún segir málið hins vegar ekki hverfa á meðan Svandís háir sína baráttu. Inga segir að Flokkur fólksins muni bíða eftir Svandísi á meðan hún jafnar sig af veikindum.Vísir/Arnar Málið stendur eins að þið eruð ekki ánægð með hvernig staðið var að þessu hvalveiðibanni? „Nei, að sjálfsögðu var þetta skýlaust lögbrot og vísvitandi og allt það en við fengum þessar sláandi fréttir í dag og þá var ekkert annað í stöðunni. Við munum ekki koma með vantraust nema sá einstaklingur sem vantraustið beinist að geti verið hér til að verjast því vantrausti,“ sagði Inga Sæland. „Þess vegna óskum við Svandísi góðs bata og kærleikskveðjur til hennar akkúrat í þessari stöðu í dag. Hún er að fara að takast á við stórt og mikið verkefni en ég er ekkert að segja það að þegar hún kemur eldhress aftur, sem ég býst við að hún geri því hún vinnur alla sigra, þá náttúrulega erum við enn hér,“ sagði Inga. Og tillagan kannski endurflutt þá? „Það kemur í ljós og ég á frekar von á því, já,“ sagði Inga. Afstaða Sjálfstæðisflokksins enn óljós Hvalveiðibann Svandísar í sumar hefur verið mjög umdeilt innan raða Sjálfstæðisflokksins. Hildur Sverrisdóttir segir þingflokkinn ekki hafa verið búinn að komast að niðurstöðu um tillöguna þegar fregnir af veikindum Svandísar bárust. Hildur segir að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sé enn mjög óánægður með hvalveiðimálið og að tíðindin af veikindum breyti því ekki.Vísir/Arnar Lék líf ríkisstjórarinnar á reiðiskjálfi? „Ég verð nú að fá að byrja á að segja að okkur var öllum mjög brugðið yfir þessum vondu tíðindum matvælaráðherra sem við í þingflokknum höfðum ekki veður af fyrr en hún birti sína færslu. Ég vil fá að koma á framfæri að við óskum henni öll heilshugar alls hins besta í sínu erfiða verkefni sem er framundan,“ sagði Hildur Sverrisdóttir. „Það er þannig að þegar við fáum þessar fréttir er þingflokksfundi okkar lokið. Við höfðum ekki náð að tæma umræðuna þannig að niðurstaða í því hvernig þingflokkurinn hygðist bregðast við lá ekki fyrir. Þannig er það bara. Mér finnst að svo komnu máli ekki rétt að fara frekar út í þá sálma hér og nú,“ sagði Hildur um afstöðu flokksins til vantrauststillögunnar. Tíðindin breyti ekki óánægju þingflokksins Það hefur borið á ýmsum kurr í ríkisstjórninni og í þessu samstarfi. Er þessari ríkisstjórn sitjandi á það sem eftir lifir þessa vetrar og svo næsta vetur? „Þessi tíðindi eru ekki eðlisbreyting á því að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins eru mjög ósáttur við hvernig til dæmis á þessu máli var haldið. Svo erum við auðvitað ósammála um ýmis mál, það vita allir,“ sagði Hildur. „En núna framundan eru mjög stór, mikilvæg og viðkvæm málefni í íslensku samfélagi sem að krefjast athygli okkar. Ef þessi ríkisstjórn hefur gert eitthvað vel þá er það að taka stór samfélagsleg verkefni í fangið og klára þau og það er verkefnið núna,“ sagði hún að lokum.
Vinstri græn Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Hvalveiðar Alþingi Tengdar fréttir Katrín mun gegna störfum Svandísar næstu vikurnar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun gegna störfum Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á meðan hún tekur sér nokkurra vikna veikindaleyfi vegna krabbameinsgreiningar. 22. janúar 2024 18:48 Inga dregur vantrauststillöguna til baka Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var ekki fyrr búin að leggja fram vantraustyfirlýsingu en Svandís Svavarsdóttir greindi frá því að hún væri komin með krabbamein. Hún segir réttast að draga tillöguna til baka. 22. janúar 2024 15:29 Svandís með krabbamein og í veikindaleyfi Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, er farin í veikindaleyfi. Hún greindist með krabbamein í brjósti í morgun. 22. janúar 2024 15:09 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira
Katrín mun gegna störfum Svandísar næstu vikurnar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun gegna störfum Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á meðan hún tekur sér nokkurra vikna veikindaleyfi vegna krabbameinsgreiningar. 22. janúar 2024 18:48
Inga dregur vantrauststillöguna til baka Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var ekki fyrr búin að leggja fram vantraustyfirlýsingu en Svandís Svavarsdóttir greindi frá því að hún væri komin með krabbamein. Hún segir réttast að draga tillöguna til baka. 22. janúar 2024 15:29
Svandís með krabbamein og í veikindaleyfi Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, er farin í veikindaleyfi. Hún greindist með krabbamein í brjósti í morgun. 22. janúar 2024 15:09