Félagið kaupir þó aðeins eina fasteign í eigu hvers og eins og kaupir ekki fasteignir í eigu fyrirtækja. Þá kaupir félagið ekki húsnæði þar sem þinglýstur eigandi er ekki með lögheimili.
„Ég er að taka saman til að byrja með hverjar aðstæður fólks eru sem eru ekki partur af uppkaupunum og fer svo í það að finna lögfræðing og finna út úr rest. Það gengur ekkert að ætla að kaupa upp húsnæði en skilja þetta eftir,“ segir Kjartan í samtali við fréttastofu.
Hann segir með þessari aðferðarfræði séu um 200 til 300 eignir skildar eftir. Hann stofnaði í kringum hópmálsóknina hóp á Facebook fyrr í dag og segir mikinn áhuga. Nú þegar séu um 60 komnir í hópinn og fleiri sem hafi haft samband. Einhverjir vilji ekki ganga í Facebook-hópinn en vilji vera með í málsókninni. Hópinn er hægt að finna hér.
„Þetta eru örugglega 100 til 200 aðilar sem eru í þessari stöðu.“
Kjartan sjálfur á nokkur fyrirtæki sem hann hefur rekið í bænum. Hann hafi fengið samþykkt kaup á einni eign en eigi auk þess íbúðir í byggingu og annað íbúðarhúsnæði sem skráð var á eitt fyrirtækja hans.
Tvö fastanúmer í sömu eign
Hann segir sögur fólk eins margar og þær séu ólíkar en margir séu í verulegum vandræðum. Sem dæmi séu í hópnum eldra fólk sem hafi aðstoðað börn sín með kaup á íbúð. Það hafi átt eign sem þau voru búin að greiða fyrir en veðsettu til að aðstoða börn sín. Nú séu þau í verulegum vandræðum því þau fá aðeins aðra eignina keypta upp.
„Annað dæmi er tvítugur strákur sem ég þekki. Hann keypti sér íbúð á 50 milljónir og er að vinna á fullu og býr enn hjá foreldrum sínum. Hann leigir íbúðina og er því ekki með lögheimili þar,“ segir Kjartan.
Þá hafi tveir haft samband vegna ólíkra fastanúmera í sömu eigninni. Annar sé aðili sem hafi útbúið litla leiguíbúð á annarri hæð hússins síns og fengið skráð annað fastanúmer. Sá aðili fái aðeins greitt út fyrir þá eign sem hann býr í. Svo sé annar sem hafi keypt sér tvíbýli en breytti því í einbýli. Sá var ekki búin að sameina það í eitt fastanúmer og fær því bara greitt fyrir annað þeirra.
Hvað varðar fyrirtækin segir hann þetta setja þau í erfiða stöðu og takmarki getu þeirra til að halda áfram með þau verkefni sem þau eru með og getu þeirra til að byrja á nýjum verkefnum.
Erfitt að keppa við ríkið
Þórkatla hefur þegar samþykkt kaup á fasteignum í Grindavík að virði 52 milljarða. Þá hefur félagið tilkynnt að leiguverð verði út þetta ár 25 prósent af markaðsvirði á Suðurnesjum eða um 625 krónur á fermetra. Kjartan segir þetta skapa enn frekari vandræði fyrir þau sem ekki getað tekið þátt í uppkaupunum.
„Loksins þegar það verður hægt að leigja hérna þá verður fólk í samkeppni við ríkið sem lækkar bara verðið. Þetta mun náttúrulega bara drepa fólk.“