Skoðun

Reykja­vík er þriðja há­vaða­mengaðasta flug­valla­borg í Evrópu

Kristján Vigfússon skrifar

Árið 2014 var gefin út skýrsla af Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) um hávaða frá flugumferð í Evrópu (EEA, 2014). Í þeirri skýrslu kemur fram að Reykjavík er í þriðja sæti yfir borgir í Evrópu þar sem íbúar verða fyrir mestri hávaðamengun frá flugi. Um var að ræða rannsókn á hljóð- og hávaðamengun vegna flugs í 66 borgum og bæjum með flugvelli í Evrópu. Nánast jöfn í fyrsta sæti eru borgirnar London, Reykjavík og Varna í Búlgaríu. Þessar þrjá borgir bera höfuð og herðar yfir aðrar borgir hvað hávaðamengun yfir L den > 55 dB varðar. Um 25% íbúa í Reykjavík urðu fyrir hávaðatruflunum yfir þessum mörkum en eingöngu um 0,1% íbúa Helskinki og Kaupmannahafnar. Frá árinu 2014 hafa ný hverfi verið byggð upp og þétting byggðar átt sér stað í hverfum nálægt vellinum.

Höfuðborgarsvæðið hefur breyst hratt hvað hávaðamengun varðar síðustu ár meðal annars vegna mikillar aukningar á lendingum einkaþotna inn í miðri Reykjavík. En þar eru fyrst og remst á ferðinni auðmenn og forrréttinda fólk sem telur sjálfsagt að raska ró almennings á höfuðborgarsvæðinu fyrir sína eigin sérhagsmuni. Einkaþotur eru oft á tíðum í gangi á flughlaði Isavia án eftirlits niður í 50 m frá íbúðarhúsnæði í allt að 1.5 klst í senn og hávaðinn og eldsneytismengunin slík að börn og ungmenni geta ekki leikið sér á leikvöllum og útivistarsvæðum. Sýnt hefur verið fram á skaðleg áhrif umhverfishávaða á námshæfileika barna m.a vegna hávaðamengunar frá flugi (Hygge o.fl., 2002). Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að áhrifin vegna hávaðamengunar frá flugvélum hafa skaðleg áhrif á bæði heilsu og vitsmunalega hæfileika barna (Stansfeld o.fl., 2005) en fjölmargir leikskólar og skólar eru staðsettir mjög nálægt vellinum og undir flugleiðum.

Einkaþotur eru samkvæmt rannsóknum mest mengandi samgöngumáti samtímans (Sobieralski & Mumbower, 2020). Eigendur þessara einkaþotna borga engin gjöld fyrir hávaðamengun eða koltvísýringslosun sem þýðir með öðrum orðum að þeir sem hafa breiðustu bökin og fljúga um í einkaþotum axla enga ábyrgð á sinni eigin mengun og þeirri skerðingu á lífsgæðum sem þeir valda almenningi á höfuðborgarsvæðinu. Fram hefur komið og staðfest af Isavia að stæða gjöld fyrir einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í fimm daga (Cessna Citation M2) hafi verið 35.485 kr. árið 2022 á sama tíma og fimm daga stæða gjöld fyrir bíl voru 39.000 kr. í bílakjallara á Hafnartorgi.

Rannsóknir hafa sýnt að hver farþegi í einkaþotu veldur tíu -til fimmtánfaldri koltvísýringsmengun á við farþega á áætlunarflugi. Sala á einkaþotum hefur tvöfaldast frá því fyrir Covid. Þessar einkaþotur eru nú með opið lendingarleyfi í miðri Reykjavíkurborg.

Stjórnvöld ættu að sýna jákvætt frumkvæði og banna lendingar einkaþotna á Reykjavíkurflugvelli til að bæta hér lífsgæði og lýðheilsu almennings.

Höfundur er einn af stofnendum Hljóðmarkar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×