Finnst of langt gengið í glæðavæðingu í umfjöllun um Carbfix Jón Ísak Ragnarsson skrifar 17. janúar 2025 23:50 Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er aldrei langt undan í umræðum um loftslags- og umhverfismál. Vísir/Vilhelm Andra Snæ Magnasyni rithöfundi finnst of langt gengið í að hneykslis og glæpavæða áform Carbfix um að dæla niður koltvísýringi í Straumsvík. Honum finnst umræðan komin út fyrir gagnrýni og komin í eyðileggingarstarf og niðurrif.
Andri birti hugleiðingar sínar um málið á síðunni Facebook síðunni Loftslagbreytingar - umræða og fréttir. Undanfarna mánuði hefur mikil umræða skapast um loftslagsverkefnið Coda Terminal á vegum Carbfix. Til stendur að sigla með koltvísýring í fljótandi formi frá Norður-Evrópu til hafnar í Straumsvík í Hafnarfirði, þar sem honum verður dælt ofan í jörðina með borteigum. Sjá einnig: Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda Sjá einnig: Þakklát fyrir spurningar íbúa og varpa nýju ljósi á framkvæmdir Var skeptískur í fyrstu „Ég hef fylgst með Carbfix nánast frá upphafi og hef haft mætur á því vísindafólki sem þróaði lausnina. Ég var skeptískur þegar niðurdælingin hófst á Hellisheiði og gat spurt ,,heimskulegu" spurninganna. Gæti þetta mengað Gvendarbrunna? ...“ segir Andri. Carbfix hafi lagað vandann við brennisteinsmengun á Hellisheiði og þannig bætt loftbæði á höfuðborgarsvæðinu. Þá kunni hann að meta gagnrýna fréttamennsku en finnst of langt gengið „í að hneykslis og glæpavæða þessi áform í Straumsvík.“ Fyrir um viku síðan birti Heimildin grein þar sem fram kom að fyrirætlanir Carbfix væru mun umfangsmeiri en fram hefði komið, og fyrirtækið hefði blekkt Hafnfirðinga um starfsemi sína. Framkvæmdastjóri Carbfix sagði umfjöllunina uppfulla af rangfærslum. Baráttan við loftslagsbreytingar ekki einfalt verkefni Andri Snær segir baráttuna við loftslagsbreytingar ekki einfalt eða línulegt verkefni, og það þurfi að gera margskonar tilraunir og allskyns mistök. „Heimurinn er á algeru frumstigi og lausn Carbfix um bindingu í basalti er merkileg og lofandi, tilraunir með bindingu með saltvatni eða sjó gefa vonir um að hægt væri að nýta þessa aðferð mjög víða í heiminum,“ segir Andri. Þá segir hann að ýmilegt megi ræða varðandi verkefnið. Hann kannist jú við að vera mótfallinn trylltri stóriðjustefnu, en í þessu tilfelli sé meira í húfi. „Mér finnst umræðan komin út fyrir gagnrýni og komin í eyðileggingarstarf og niðurrif og næstum ómögulegt að blanda sér inn í umræðuna af því hún verður strax persónuleg og ómálefnanleg.“ „Ég tel að þeir sem hafa unnið að Carbfix hafi unnið að heilindum og kannski hafa þau gert einhver mistök í kynningu, kannski fannst þeim málefnið og málstaðurinn það góður að þeim datt ekki í hug að reikna með svo hörðum viðbrögðum.“ Þá sé það ef til vill til marks um heiðarleika og klaufaskap að fyrirtækið hafi klúðrað PR málum. Það segi ekkert um fagmennsku vísindanna.
Loftslagsmál Hafnarfjörður Fjölmiðlar Umhverfismál Tengdar fréttir Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Ályktanir sem eru dregnar í umfjöllun Heimldarinnar um starfsemi Carbfix standast enga skoðun og byggjast á rangfærslum, að sögn fyrirtækisins. Engin dulin áform séu um umfangsmeiri starfsemi í Hafnarfirði þvert á það sem fullyrt er í umfjölluninni. 10. janúar 2025 11:26 Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Fari svo að Hafnarfjarðarbær og Coda Terminal nái samningum um að fyrirtækið dæli innfluttu koldíoxíði niður í jörðina við bæinn verður haldin íbúakosning um málið. 7. október 2024 21:11 „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Tæplega 4500 manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem staðsetningu borteiga Carbfix í Hafnarfirði er mótmælt. Þar stendur til að dæla koldíoxíð í berg á svæðinu sunnan við álverið í Straumsvík, steinsnar frá íbúabyggð á Völlunum. Ábyrgðarmaður undirskriftarlistans segir fjölda íbúa hafa ekki áttað sig á því hvað sé í uppsiglingu. 1. júlí 2024 23:04 Mest lesið Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Innlent Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Innlent Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga Innlent Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar Innlent Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Innlent Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi Innlent Meinað að heimsækja fjölskylduna því hann var skyndilega kominn á bannlista Innlent Kannast ekki við að vera látinn Innlent Sér rautt vegna ærslabelgs fyrir framan húsið sitt Innlent Kviknaði í gámi í byggingarsvæði við gamla Orkuhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Kviknaði í gámi í byggingarsvæði við gamla Orkuhúsið Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga Þórður Snær verður framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar Stórhættulegar tálbeituaðgerðir ungmenna á samfélagsmiðlum Hefja undirbúning verkfalla í framhaldsskólum Taka sýni úr mink sem fannst dauður í Vatnsmýri Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Aflýsa óvissustigi vegna Bárðarbungu Sér rautt vegna ærslabelgs fyrir framan húsið sitt „Þarna náum við að svæla allt upp á yfirborðið“ Börnin sem talin voru í hættu komu í leitirnar á Suðurnesjum Þing verður sett eftir rúman hálfan mánuð Rannsaka ólöglegt fiskeldi veiðifélags í Borgarfirði Tveir handteknir í fíkniefnamáli fyrir austan Fimm tóku fyrstu skóflustunguna að Borgarlínu Hótaði að kveikja í sambýliskonu og stjúpsyni Skóflustunga tekin að Fossvogsbrú og bandarísk börn sem fundust á Íslandi Kannast ekki við að vera látinn Mikil hálka þegar banaslysið varð Aktivistahópurinn Öfgar er hættur Segir ríkið verða að standa við gerða samninga um borgarlínu Meinað að heimsækja fjölskylduna því hann var skyndilega kominn á bannlista Sannfærð um að nýtt bókunarkerfi leysi vandann Bandarísk börn sem var saknað fundust í Reykjavík Samþykktu ályktun á íbúafundi um að vöruhúsið verði fjarlægt Félag forstöðumanna fundar um bréf ráðherra um hagræðingu Sjá meira
Segja umfjöllun sem geri Carbfix tortryggilegt fulla af rangfærslum Ályktanir sem eru dregnar í umfjöllun Heimldarinnar um starfsemi Carbfix standast enga skoðun og byggjast á rangfærslum, að sögn fyrirtækisins. Engin dulin áform séu um umfangsmeiri starfsemi í Hafnarfirði þvert á það sem fullyrt er í umfjölluninni. 10. janúar 2025 11:26
Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Fari svo að Hafnarfjarðarbær og Coda Terminal nái samningum um að fyrirtækið dæli innfluttu koldíoxíði niður í jörðina við bæinn verður haldin íbúakosning um málið. 7. október 2024 21:11
„Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Tæplega 4500 manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem staðsetningu borteiga Carbfix í Hafnarfirði er mótmælt. Þar stendur til að dæla koldíoxíð í berg á svæðinu sunnan við álverið í Straumsvík, steinsnar frá íbúabyggð á Völlunum. Ábyrgðarmaður undirskriftarlistans segir fjölda íbúa hafa ekki áttað sig á því hvað sé í uppsiglingu. 1. júlí 2024 23:04