Hlynur Rafn Guðmundsson og Steinn Arnar Kjartansson, tveir af stofnendum forritsins Humble, ræddu um forritið í Bítinu á Bylgjunni.
„Við erum að hjálpa smásölum og heildsölum að koma þessum vörum út, sem eru kannski á síðasta snúning. Frábærar í dag en ekki jafn góðar á morgun. Bakarí og sushistaðir hafa verið mjög duglegir að setja inn vörur. Þetta eru svona tækifæriskaup,“ segir Hlynur Rafn.
Sótt eða sent
Steinn Arnar segir að kapp sé lagt á að tryggja gæði vörunnar og að notendur forritsins hafi aðeins haft góða sögu að segja. Mörg fyrirtæki nýti sér þjónustu Humble.
„Meginþorri heildsala hefur verið að prófa sig áfram með okkur og er núna vonandi að fara að keyra þetta af stað. Við bjóðum í raun upp á tvenns konar þjónustu. Sóttar vörur, þar sem þú sækir þetta til veitingastaðarins, og hins vegar sendar vörur. Þá setur þú bara í körfu, pantar, og við sjáum síðan um það með okkar dreifingaraðilum að sækja til heildsala, taka saman pantanir og senda til ykkar,“ segir Steinn.
Afsláttur af heildsöluverði
Aðspurður segir Steinn að afslátturinn sem fáist sé alla jafna frekar hár.
„Við erum yfirleitt að tala um allavega 30 prósent afslátt. Ef þetta er vara sem á mjög mikinn líftíma eftir þá held ég að það lægsta sem við höfum verið með sé í kringum 25 prósent,“ segir Steinn. Mesti afslátturinn hafi verið 87 prósent.
Hlynur nefnir að oftast sé um að ræða afslátt af heildsöluverði.
„Það er hægt að bera þetta saman við vörur sem þú færð í Krónunni, Bónus eða Costco. Þetta er á töluvert betra verði.“
Pössuðu áður upp á Leif Arnar
Forritið hét áður Leifur Arnar, þar sem markmiðið var að passa upp á leifarnar. Eftir að hafa rætt við fólk í bransanum hafi hins vegar verið tekin ákvörðun um að breyta nafninu í eitthvað alþjóðlegra sem opnaði á mögulega sókn út fyrir landsteinana.
Hlusta má á viðtal við þá Hlyn og Stein í spilaranum hér að ofan.