Erlent

Lög­bann sett á til­skipun Trumps

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Trump hefur gefið út að hann hyggist áfrýja lögbanninu.
Trump hefur gefið út að hann hyggist áfrýja lögbanninu. AP/Ben Curtis

Bandarískur alríkisdómari hefur frestað gildistöku forsetatilskipunar Trump um að afnema réttindi til bandarísks ríkisborgararéttar við fæðingu um fjórtán daga með bráðabirgðalögbanni.

Donald Trump hefur áður rætt mikilvægi þess að afnema þessi réttindi en dómarinn, John Coughenour, segir það bersýnilega stríða gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Fjórtándi viðauki stjórnarskrárinnar kveði skýrt á um það að hver sem fæðist í Bandaríkjunum sé bandarískur ríkisborgari.

Lögbannið lagði hann fram að áeggjan þingmanna fjögurra ríkja Bandaríkjanna, nefnilega Arizona, Illinois, Oregon og Washington.

Tilskipunin hefur þegar orðið tilefni fimm málsókna á hendur ríkisstjórnarinnar og yfirlýsingum ríkislögmanna 22 ríkja. Allir virðast á eitt sammála um að hún gangi bersýnilega í berhögg við stjórnarskrána.

Lane Polozola, ríkislögmaður Washingtonríkis, segir stöðuna sem upp er komin grafalvarlega. Hún ræddi við blaðamenn í Seattle í kjölfar þess að lögbannið var sett á.

„Þetta er bara fyrsta skrefið en að heyra dómarann segja að á hans 40 starfsferli sem dómara hafi hann aldrei séð neitt sem gangi svo bersýnilega gegn stjórnarskránni, sýnir hve alvarlegt þetta er,“ segir hann.

Tilskipun Trump kveður á um það að barn öðlist ekki bandarískan ríkisborgararétt, þrátt fyrir að hafa fæðst í landinu, sé hvorugt foreldri þess bandarískur ríkisborgari eða handhafi löglegs landsvistarleyfis. Gangi áætlanir Trump eftir yrðu öll börn sem fædd eru eftir 19. febrúar og uppfylla ekki fyrrnefnd skilyrði verið brottvísað frá Bandaríkjunum. Allt að 150 þúsund börnum yrðu af bandarískum ríkisborgararétti árlega.

„Ég á í erfiðleikum með að skilja hvernig lögmaður gæti sagt tvímælalaust að þessi tilskipun standist ákvæði stjórnarskrárinnar. Ég botna ekkert í því,“ hefur Reuters eftir Coughenour dómara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×