Helgi fær ekki áheyrn Hæstaréttar Árni Sæberg skrifar 24. mars 2025 14:43 Helgi Hermannsson fær ekki að áfrýja máli sem varðar tugi milljóna króna til Hæstaréttar. Vísir/Vilhelm Helgi Hermannsson, áður stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, fær ekki áheyrn Hæstaréttar eftir að Landsréttur dæmdi hann til að greiða fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins 67 milljónir króna. Starfsmennirnir stefndu Helga, sem þeir töldu hafa svikið sig um gerða samninga þegar Sling var selt fyrir fleiri milljarða króna. Fyrirtæki sem þeir hefðu tekið þátt í að byggja upp og átt kauprétt í.
Í desember í fyrra staðfesti Landsréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, um að Helgi þyrfti að greiða starfsmönnunum fjórum alls 67 milljónir króna. Málið sneri að uppgjörsssamningum sem Helgi gerði við mennina skömmu áður en Sling var selt á níu milljarða króna árið 2022. Sá samningur var gerður eftir að ekkert varð af kaupréttarsamningum sem mennirnir sögðust hafa gert en ekki fengið efnda. Vísir ræddi við Bjarka Fannar Atlason, einn mannanna sem stefndu Helga. Bjarki Fannar er grafískur hönnuður og sagðist hafa varið sex árum í að hanna Sling. Honum voru dæmdar nítján milljónir króna í héraði og fyrir Landsrétti. Kannaðist ekki við að mennirnir hefðu unnið fyrir Sling Helgi var ekki sáttur með niðurstöðu Landsréttar í málinu og sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar sagði hann Landsrett ekki hafa tekið til lykilstaðreynda málsins. „Sem snýst um meinta kauprétti manna sem aldrei unnu hjá fyrirtækinu eða stoppuðu mjög stutt við í árdögum þess.“ Helgi sagði tvo mannanna fjögurra aldrei hafa unnið fyrir Sling. Það eru þeir Gísli Guðmundsson og Jose Eduardo Valenzuela Martinez. „Hinir tveir hættu fyrir langa löngu. Aron Ingi Óskarsson vann í 4 mánuði fyrir Sling sumarið 2016. Bjarki Fannar Atlason vann fyrir auglýsingastofu 2015 sem heitir Döðlur sem vann fyrir Sling. Bjarki hætti öllum afskiptum af Sling 2017 þegar hann stofnaði eigið fyrirtæki sem heitir 50Skills.“ Dómurinn hafi verið bersýnilega rangur Helgi lét sér ekki duga að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins heldur óskaði hann eftir leyfi Hæstaréttar til áfrýjunar á öllum málunum fjórum. Í ákvörðunum Hæstaréttar segir að Helgi hafi byggt á því að niðurstaða Landsréttar væri bersýnilega röng að formi og efni, málið varðaði sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans og að úrslit málsins hefðu verulegt almennt gildi. Um annmarka á dómi Landsréttar hafi Helgi í fyrsta lagi vísað til þess að verulegur annmarki hefði verið á ákvörðun Landsréttar um skýrslutökur af nýjum vitnum fyrir dóminum. Í öðru lagi hefði meðferð Landsréttar á málinu verið andstæð lögum en til að mynda hefði verið boðað til aðalmeðferðar án þess að gæta að því að skýrslutökur hafi verið fyrirhugaðar í málinu. Í þriðja lagi hefðu ágallar verið á dómi Landsréttar en til dæmis hefði lýsing málsatvika verið ófullkomin og ekki skilmerkilega getið nýrra framlagðra gagna fyrir réttinum. Um verulegt almennt gildi málsins hafi Helgi vísað til þess að þar reyndi á ógildingarreglur laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga með hætti sem umtalsvert hefði verið fjallað um af hálfu fræðimanna en sem fárra ef nokkurra dómafordæma nyti við um. Einnig kynni dómurinn að skýra betur mat á grandsemi um efnisþætti ógildingarreglna og verða fordæmi um samsömun eða um áhrif greiðslu án viðurkenningar. Hæstiréttur hélt ekki Í ákvörðuninni segir að að virtum gögnum málsins yrði hvorki litið svo á að úrslit þess hefðu verulegt almennt gildi né að það varðaði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda í skilningi laga um meðferð einkamála. Þá yrði ekki séð að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hefði verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur að formi eða efni. Í þeim efnum nægðu ekki þær athugasemdir sem Helgi hefði borið fram um hvernig staðið var að ákvörðun um að hafna því að vitni yrðu leidd fyrir Landsrétt. Beiðni um áfrýjunarleyfi væri því hafnað.
Dómsmál Nýsköpun Tækni Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Sjá meira