Frjáls umræða ekki lengur leyfð í USA – Skoðanafrelsi í hættu – Amerískt Gestapo í uppsiglingu? Ole Anton Bieltvedt skrifar 29. mars 2025 14:00 Skv. kvöldfréttum RÚV í gær hafði tyrkneskur doktorsnemi, sem stundar nám við amerískan háskóla í nágrenni Boston, stúlka að nafni Rumeysa Ozturk, verið handtekin á götum úti, þar sem hún var á gangi á leið í kvöldverðarborð. Að handtökunni stóðu óeinkennisklæddir, líka grímuklæddir, menn, sem sögðust vera lögreglumenn. Þetta hefðu eins getað verið mannræningjar, enda spurði vegfarandi, sem að kom, hvort svo væri. Var fátt um svör eða sannanir, og var doktorsneminn færð inn í ómerkta bifreið, með valdi, ekki fór hún sjálfviljug, og ekið með hana í burtu. Seinna kom í ljós, að stúlkan hafði verið flutt í sérstakt fangelsi fyrir óæskilega akivista í Louisana, 3.000 kilómetrum í burtu, og sennilega nauðungarflutt úr landi þaðan. Hvað hafði þessi tyrkneski doktorsnemi svo gert af sér, hverjar voru sakir stúlkunnar? Eftir því sem bezt verður séð, voru sakirnar þær, að hún hafði staðið með Palestínumönnum í Gazastríðinu og gagnrýnt Ísraelsmenn, m.a. með því að skrifa undir yfirlýsingu þarum, ásamt öðrum námsmönnum. Var hún ásökuð um, að standa með Hamas, en sé það rétt, þá var það auðvitað bara hennar skoðun, að sú hreyfing ætti rétt á sér. Líklegra er þó, að hún hafi bara haft samúð með Palestínumönnum almennt, vegna yfirgangs og ofríkis Ísraelsmanna, bæði á Gaza og Vesturbakkanum, aðför Ísraelsmanna að lífi, limum og eignum Palestínumanna þar, hafi viljað vinna gegn því þjóðarmorði, sem þeir eru að fremja þar með dyggri hjálp Bandaríkjamanna – sprengjurnar, sem Ísraelsmenn hafa lagt Gaza í rúst með, eru bandarískar, Biden og hans stjórn lagði þær líka ríkulega til – en sú skoðun og afstaða er líka skoðun fjölmargra annarra, líka undirritaðs. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var svo spurður um þessa handtöku og nauðungarflutning þessarar ungu baráttukonu, sem hafði unnið sér það eitt til saka, að hafa eigin stjórnmálaskoðun og berjast fyrir henni, og svaraði Rubio því til, að það væri rétt, það væri verið að elta uppi fólk, sem væri að grafa undan „heilbrigðri og eðlilegri skoðanamyndun“ (réttum skoðunum skv. Trump) í Bandaríkjunum, og, að það væri búið að ná um 300 af þessum „brjálæðingum“, eins og hann orðaði það. „Lunitics“. Hann bætti því svo við, að yfirvöld og lögregla væri líka að eltast við glæpagengi. Fyrir honum voru þessir tveir ólíku hópar greinilega nokkurn veginn samskonar, alla vega sambærilegir. 1933 stofnaði Hitler leynilega ríkislögreglu, sem félkk nafnið Geheime Staatspolizei; Gestapo. Ríkti hún, höfuðsat og ofsótti, fangelsaði og misþyrmdi, andstæðinugum Hitlers og nasista fram til 1945, en eftir stríð var þessi sérstaka „lögreglusveit“ greind og dæmd sem „glæpasamtök“. Gestapo vann framan af með svipuðum hætti og þessar bandarísku „lögreglusveitir“ nú. Var með víðtækt njósnakerfi, líka í skólum, kirkjum og jafnvel á spítulum, uppljóstrara og dulbúna lögreglumenn, en smám saman gengu þeir lengra og lengra í lögleysu og ofbeldi, misþyrmingum og morðum, reynar voru þeir svo hafnir yfir lög. Frá 1936 var ekki lengur hægt að standa gegn Gestapo með löglegum hætti; lög landsins náðu ekki lengur til þeirra. Ekki skal hér fullyrt, að nýtt Gestapo, amerísk útgáfa, sé í uppsiglingu í Bandaríkjunum, en margt er þar að þróast með svipuðum hætti og var í Þýzkalandi eftir að Hitler komst þar til valda 1933, enda manngerðirnar Hitler og Trump, ekki með öllu ólíkar. Eru vaxandi tilvik í gangi um yfirgang, réttindasviptinar og ofbeldi stjórnvalda gagnvart minnihlutahópum og annarsþenkjandi, og virðist frelsi til orðs og æðis, almenn mannréttindi, vera það fótum troðin í vaxandi mæli. Út á við sýnir Trump-stjórnin líka af sér yfirgangs- og ofbeldishneigð, vanvirðingu við samninga, skuldbindingar og alþjóðlegar samþykktir, líka við alþjóðalög, áfergju og græðgi, t.a.m. gagnvart Úkraínumönnum, þar sem þeir vilja hirða, eða alla vega fleyta rjómann ofnan af, þeirra helztu auðlindum - en Úkraínumenn kalla nú þá nálgun „ránstilraun“ - líka gagnvart Mexíkó og Kanada, þar sem Trump riftir fyrirvaralaust USMCA-viðskiptasamningnum, sem ríkin þrjú gerðu með sér 2020, mátti endurskoða fyrst 1. júlí 2026, en átti í grunninn að gilda til 2036. Eru þá hótanir um valdbeitingu og innlimun sjálfstæðra ríkja, bandamanna, sem verið hafa áratugum saman, nánustu vinaþjóða, sem Bandaríkjamenn eru einmitt skuldbundnir til að verja og tryggja fyrir yfirgangi fjandmanna, Grænlands og Kanada, ótaldar. Fyrir mér eru Bandaríkin að verða hættulegasta, gráðugasta og siðlausasta ríki heims. Kristrún Frostadóttir, forstætisráðherra, sagði þetta á RÚV fyrr í þessum mánuði: „Já, við getum treyst Bandaríkjunum áfram. Það er mjög mikilvægt, að við getum treyst Bandaríkjunum áfram. Þetta hefur verið mjög farsælt varnarsamstarf. Við erum auðvitað líka mjög mikilvæg gagnvart Bandaríkjunum og NATO-ríkjunum í heild sinni út af legu okkar hér í Atlantshafi og út af þeim framleigum sem við veitum til NATO-samstarfsins, í gegnum öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli og loftrýmisgæslu og fleira.“ Er blessuð konan, sem þó viðist væn, skýr og klár um margt, reyndar frekar reynslulítil, blind á þessi mál? Í öllu falli held ég, að það væri gott fyrir hana - og þá um leið öryggi og velferð okkar Íslendinga - að hún og ríkisstjórnin öll fari að hugsa þessi mál og þessa afstöðu upp á nýtt og opna augun fyrir því, að við eigum hvergi heima nema í Evrópu, í náinni samvinnu og fullum tengslum við okkar bræðra- og systraþjóðir þar, aðildarríki ESB, en þar virðist nú standa síðasta vígi lýðræðis og frelsis, til orðs og æðis, og vernd þess, í heiminum. Höfundur er samfélagsrýnir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Mest lesið Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson Skoðun Halldór 14.03.2026 Agnar Már Másson Halldór Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun