Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Oliver dómari hjálpar Enzo Fernandez, fyrirliða Chelsea, á fætur í leiknum í dag.
Michael Oliver dómari hjálpar Enzo Fernandez, fyrirliða Chelsea, á fætur í leiknum í dag. Getty/Mike Hewitt

Chelsea og Brentford gerðu markalaust jafntefli í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Chelsea átti möguleika að nálgast Notttingham Forest í þriðja sætinu með sigri og gæti nú missti Manchester City upp fyrir sig seinna í dag.

City er tveimur stigum á eftir Chelsea en er að fara að spila við nágranna sína í Manchester United.

Chelsea náði ekki að fylgja eftir sigri í öðrum Lundúnaslag á móti Tottenham í vikunni.

Chelsea fékk betri færi framan af leiknum en fyrri hálfleiknum var annars mjög rólegur.

Brentford féll aftarlega á völlinn og Chelsea gekk illa að búa eitthvað til. Skyndisóknir Brentford sköpuðu alltaf smá hættu.

Brentford reyndi síðan að sækja meira í seinni hálfleiknum á meðan að Chelsea gaf aeðins eftir.

Robert Sánchez varði vel frá Bryan Mbeumo í besta færi hálfleiksins.

Brenford tókst ekki að skora sigurmark og vinna langþráðan sigur á Chelsea. Brentford hefur ekki unnið nágranna sína í efstu deild frá 1938.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira