Upp­gjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undan­úr­slit

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Úr einvígi liðanna.
Úr einvígi liðanna. Vísir/Diego

Stjarnan er komin í undanúrslit eftir 74-80 sigur á útivelli í fjórða leik gegn ÍR. Stjarnan var með fína forystu allan leikinn en missti hana niður í fjórða leikhluta, aðeins eitt stig þegar ein mínúta var eftir. Nær komst ÍR hins vegar ekki og liðið er á leið í sumarfrí. 

Stjörnumenn vissu að þeir þyrftu að mæta með meiri orku en áður hefur sést í einvíginu, ÍR á heimavelli í útsláttarleik er skrímsli sem öll lið deildarinnar hræðast.

Sem þeir gerðu, Stjörnumenn mættu algjörlega trylltir til leiks og um leið og þeir virtust vera að láta örlítið undan bað Baldur þjálfari um leikhlé. ÍR hafði þá náð að blokka skot og stela boltanum til að taka eins stigs forystu, Baldur gjörsamlega brjálaðist og það gerðist ekki aftur í fyrri hálfleik, sem endaði 36-48 fyrir Stjörnunni.

Leikurinn var líka ofboðslega vel lagður upp hjá Stjörnumönnum. Þeir pökkuðu í grimma vörn og harðneituðu að hleypa ÍR að hringnum, sem leiddi til auðveldra stiga á hinum endanum. Staðan 54-64 eftir þriðja leikhluta og Stjarnan á góðri siglingu.

En í upphafi fjórða leikhluta safnaði ÍR öllum sínum kröftum, gjörsamlega öllu sem þeir áttu. Þeir minnkuðu muninn snöggt niður í þrjú stig, settu Stjörnumenn í vandræði og náðu leiknum niður í aðeins eitt stig, 74-75, þegar ein mínúta var eftir.

Atvik leiksins

Átti sér stað þegar Jacob Falko keyrði á körfuna og hefði minnkað muninn aftur í eitt stig fyrir ÍR með hálfa mínútu eftir, en það var brotið á honum. Dómararnir dæmdu hins vegar ekki villuna, sem öllum öðrum virtist augljós.

Stjarnan brunaði í sókn, breikkaði bilið aftur og gerði út af við vonir ÍR. Lokatölur 74-80.

Stjörnur og skúrkar

Jacob Falko spilaði allar fjörutíu mínúturnar og dró vagninn eins og vanalega fyrir ÍR. 31 stig og 8 stoðsendingar. Stórkostlegur leikmaður sem átti betra skilið en ákvörðun dómaranna undir lokin.

Matej Kavas var meiddur, eða allavega eitthvað tæpur. Spilaði ekki nema tæpar tuttugu mínútur og ÍR saknaði hans gríðarlega.

Tómas Orri fékk tækifæri til að taka forystuna fyrir ÍR með opnu þriggja stiga skoti í horninu, en hitti ekki.

Heilsteypt frammistaða hjá Stjörnuliðinu. Enginn sem stóð upp úr sérstaklega og alls enginn sem spilaði illa.

Viðtöl 

„Þeir eru með geggjaða skotmenn út um allt sem hittu bara, þeir hlupu völlinn og hittu úr þristunum, það kom þessu niður í þetta eitt stig og við þurftum bara að halda haus. Spila okkar bolta og reyna að fá einhver stig líka, til að halda úti sigrinum“ sagði Orri Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar, strax eftir leik.

„Við erum ekki einstaklings, einn maður að skora þrjátíu stig, það þurfa allir að taka þátt og þess vegna vinnum við leiki. Ég held að það sé ástæðan fyrir sigrinum í dag, allir voru on it“ sagði Orri einnig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira