Erlent

Bein út­sending: Páfakjör í Páfa­garði

Samúel Karl Ólason skrifar
Slökkviliðsmenn koma reykháf fyrir á Sixtínsku kapellunni. Þegar hvítan reyk ber frá honum hefur nýr páfi verið valinn.
Slökkviliðsmenn koma reykháf fyrir á Sixtínsku kapellunni. Þegar hvítan reyk ber frá honum hefur nýr páfi verið valinn. Getty/Páfagarður

Kardinálar kaþólsku kirkjunnar læsa sig í dag inn í Sixtínsku kapellunni, þar sem þeir munu vera þar til þeir hafa valið nýjan páfa. Alls greiða 133 kardinálar frá sjötíu löndum atkvæði í páfakjörinu en ekki er ljóst hve langan tíma það mun taka.

Valið gæti tekið marga daga en samkvæmt hefðum Vatíkansins eru haldnar fjórar atkvæðagreiðslur á dag þar til einhver hefur tryggt sér stuðning tveggja af hverjum þremur kardinálum með atkvæðisrétt, eða 89 atkvæði.

Í heildina eru kardinálar 252 talsins. Af þeim 133 sem hafa atkvæðarétt í Páfakjörinu voru 108 skipaðir af Frans, svo þetta er fyrsta páfakjör þeirra.

Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá Páfagarði þar sem fylgst verður með athöfnum dagins.

Lengsta páfakjör sögunnar hófst í nóvember 1268. Það stóð yfir í tæp þrjú ár og lauk ekki fyrr en í september 1271. Þá var nýr páfi ekki valinn fyrr en íbúar Viterbo, þar sem páfakjörið fór fram, höfðu rifið þakið af byggingunni þar sem kardinálarnir héldu til og komu í veg fyrir að þeir fengu meiri mat en brauð og vatn einu sinni á dag.

Á síðustu öldum er stóð stysta páfakjörið yfir í einungis nokkrar klukkustundir en það var þegar Júlíus annar var kjörinn páfi árið 1503.

Séu allra nýjustu páfarnir skoðaðir var Frans páfi kjörinn árið 2013 í fimmtu atkvæðagreiðslunni. Benedikt var kjörinn í þeirri fjórðu árið 2005. Páfakjör Jóhannes páfa árið 1978 stóð yfir í þrjá daga. Hann var kjörinn í áttundu atkvæðagreiðslunni.

Dagurinn í dag (Miðvikudagur 7. maí) hófst á sérstakri messu í Páfagarði en seinna í dag verða kardinálarnir læstir inni. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær fyrsta atkvæðagreiðslan á að eiga sér stað en búist er við að reykurinn muni fyrst stíga úr reykháfinum á Sixtínsku kapellunni um klukkan fimm í dag, að íslenskum tíma.

Hér að neðan má sjá beina útsendingu af reykháfinum fræga.


Tengdar fréttir

Kardinálarnir læstir inni á morgun

Kardinálar kaþólsku kirkjunnar munu á morgun setjast niður í Sixtínsku kapellunni og hefja leitina að nýjum páfa. Þar verða 133 kardinálar frá sjötíu löndum innilokaðir þar til hvítan reyk ber frá páfagerði, til marks um að nýr páfi hafi verið kjörinn.

Birti mynd af sér í páfaskrúða

Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd af sér á samfélagsmiðlum klæddum páfaskrúða. Kaþólikkar sem og aðrir hafa tekið misvel í þetta uppátæki hans og þykir mörgum hann vanvirða minningu Frans páfa sem féll frá nýlega.

Gröf Frans páfa opin gestum

Frá og með deginum í dag geta gestir barið gröf Frans páfa í Maríukirkju í Róm augum. Páfinn var borinn til hinstu hvílu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×