Erlent

„Mikil­væg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með bandalagsþjóðum Úkraínu í gær, og ítrekaði stuðning Íslands við 30 daga skilyrðislaust vopnahlé.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með bandalagsþjóðum Úkraínu í gær, og ítrekaði stuðning Íslands við 30 daga skilyrðislaust vopnahlé. Vísir/Anton Brink

Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna, en Úkraína og bandalagsþjóðir hennar hafa gert kröfu um skilyrðislaust vopnahlé fyrst. 

Pútín Rússlandsforseti lagði í gær til að hefja beinar viðræður við Úkraínumenn í vikunni. Þar vilji hann ræða grunnástæður innrásar Rússlands í Úkraínu, og tryggja hagsmuni Rússlands.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur lengi sagt að hann sé tilbúinn til beinna viðræðna við Rússa. Fyrst þurfi þó að koma á vopnahléi. Hann sagðist í morgun jákvæður fyrir ummælum Pútíns um vilja til viðræðna, en sagði fyrsta skrefið verða að vera vopnahlé. Talsmenn Rússlands hafa svarað því til að viðræður verði að koma fyrst, svo vopnahlé.

Rússum sé ekki treystandi

Utanríkisráðherra Íslands segir jákvæða þróun hafa orðið síðan Selenskí og Donald Trump Bandaríkjaforseti funduðu í Vatíkaninu fyrir tveimur vikum.

„Það hefur tekist mjög mikilvægur samningur á milli Bandaríkjanna og Úkraínu. Bandaríkin, sem eru mjög mikilvæg, eru að undirstrika sjálfstæði Úkraínu, frjálsa, friðsæla og ekki síst fullvalda Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands.

Ótækt sé að ganga til friðarviðræðna nema vopnahlé komist fyrst á.

„Rússar hafa í áratugi sýnt fram á það að þeim er ekki treystandi. Þeir hafa brotið samkomulag ítrekað.“

Fer allt eftir þeim gír sem Pútín verður í

Leiðtogar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Póllands hafa krafist þess að Pútín samþykkti almennt þrjátíu daga vopnahlé, sem ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur lagt til. Selenskí hefur lýst því yfir að hann ætlist til þess að sú krafa verði samþykkt.

Utanríkisráðherra var á fundi bandalagsþjóða Úkraínu í gær, og studdi þar þrjátíu daga skilyrðislaust vopnahlé fyrir hönd Íslands.

„Myndin núna í dag er að mínu mati jákvæðari og sterkari fyrir friði, sterkari Úkraínu og um leið öruggari Evrópu. Mikilvæg skref hafa verið stigin síðustu daga, en á endanum veltur þetta allt á Pútín og í hvernig stuði hann er fyrir friði,“ segir Þorgerður Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×