Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Jón Ísak Ragnarsson skrifar 27. maí 2025 18:47 Sári liggur enn á spítala. Sári Morg Gergö Sári Morg Gergö, var sofandi þegar eldur kviknaði í íbúð hans að Hjarðarhaga í síðustu viku. Hann komst lífs af, en þurfti að brjóta rúðu til að komast út og hlaut mikla áverka. Hann jafnar sig nú af sárum sínum á Landspítanum. Hann telur að meðleigjandi sinn hafi kveikt í. „
Þann 22. maí kviknaði í íbúð minni og ég tel líklegt að meðleigjandi minn til margra ára hafi kveikt í henni með bensíni og gashylkjum. Ég og annar meðleigjandi vorum sofandi á meðan. Þegar ég vaknaði var eldurinn þegar kominn að herberginu mínu og það var svo heitt og rakt að ég trúði þessu varla,“ segir Sári í færslu á samfélagsmiðlum sem hann birti í dag. Stökk út um glugga Sári segir frá því að hann hafi reynt að hjálpa vini sínum að komast úr íbúðinni en hlotið mikla brunaáverka í kjölfarið. Síðan hafi hann þurft að komast úr íbúðinni og átt þann eina kost að brjóta rúðu í glugga og klifra þar út. „Ég braut rúðuna með hnefanum og stökk svo út, og féll svo 70 sentímetra niður til jörðu beint á öll stóru glerbrotin. Ég fékk tvo risastóra skurði, einn á lærið og annan á úlnliðinn. Ég hljóp svo að hurðinni og reyndi aftur að hjálpa vini mínum Roman úr íbúðinni en allt kom fyrir ekki,“ segir hann. Átti að flytja út daginn eftir Sári telur að einn meðleigjandi hans, sem átti að flytja úr íbúðinni daginn eftir vegna vangoldinnar leigu, hafi kveikt í íbúðinni. Hann lést í eldsvoðanum. RÚV greinir frá því að fjórir karlmenn hafi búið í íbúðinni. Sári og Görbe Vince frá Ungverjalandi, Roman frá Tékklandi og sá fjórði Bandaríkjamaður. Roman og Bandaríkjamaðurinn létust í brunanum. Sári segir frá því að vinur hans og meðleigjandi Görbe Vince hafi verið í vinnunni þegar eldsvoðinn varð og hann hafi því sloppið. Hann sé hins vegar allslaus í dag og án heimilis. Sári segir að hann sé með annars stigs bruna á allri vinstri hlið líkamans, og með marga skurði. Hann hafi þegar undirgengist tvær aðgerðir og þurfi mögulega að fara í tvær til viðbótar.
Eldsvoði á Hjarðarhaga Slökkvilið Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira