Upp­gjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga

Árni Gísli Magnússon skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru á toppi Bestu deildarinnar.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar eru á toppi Bestu deildarinnar. Vísir/Diego

Víkingur vann 2-0 sigur á KA á Akureyri nú í kvöld í 12. umferð Bestu deildar karla og styrkti þar með stöðu sína á toppi Bestu deildar karla. Liðið er nú fjórum stigum á undan Breiðabliki sem á þó leik til góða.

Leikurinn var ekki mikið fyrir augað til að byrja með og spilaðist leikurinn eins búist var við, þ.e. að Víkingur hélt boltanum meira innan liðsins en KA menn vörðust vel og leyfðu gestunum ekki að komast í þær stöður sem þeir vildu.

Það var svo eftir hálftíma leik sem Víkingur tók forystuna. Gylfi Sigurðsson átti hárfína aukaspyrnu þar sem hann lyfti boltanum stutt inn á teig og kom Nikolaj Hansen askvaðandi í átt að boltanum og stangaði hann í markið af löngu færi. Frábærlega útfærð aukaspyrna og Víkingar komnir í bílstjórasætið.

KA menn sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á leikinn og voru duglegur að sækja upp hægra megin þar sem Jakob Snær og Hrannar Björn voru að komast í fínar stöður en oftar en ekki misfórst síðasta sendingin og sóknin rann þar með út í sandinn.

Víkingar leiddu því með einu marki í hálfleik.

KA menn komu beittari út í síðari hálfleikinn og þrýstu aðeins meira á gestina og voru að komast í fínar stöður en áfram án þess að vera komast í virkilega góð færi. Það var því svekkjandi fyrir heimamenn þegar Gylfi Þór Sigurðsson tvöfaldaði forystu Víkings eftir tæpar 70 mínútur. Tarik Ibrahimagic tók þá snögga aukaspyrnu og fékk boltann aftur og kom honum á Valdimar Þór Ingimundarson inn á teignum sem lagði boltann út á Gylfa við enda vítateigsins sem þrumaði boltanum í nærhornið.

Gunnar Vatnhamar var óheppinn að bæta ekki við marki þegar hann skallaði boltann í slá af stuttu færi nokkrum mínútum síðar eftir hornspyrnu títtnefnds Gylfa Þórs.

Besta færi KA í leiknum kom á 81. mínútu þegar Birgir Baldvinsson átti hörku skalla yfir markið eftir langa sendingu yfir á fjærstöngina frá Ingimari Stöle.

Nær komust heimamenn ekki og niðurstaðan sterkur 2-0 sigur Víkinga sem halda heim á leið með stigin þrjú.

Atvik leiksins

Fyrra mark Víkings. Frábærlega útfærð spyrna sem var greinilega búið að æfa vel. Nikolaj Hansen kom á fullri ferð á móti boltanum frá Gylfa Þór og stangaði boltann í netið af löngu færi.

Stjörnur og skúrkar

Gylfi Þór Sigurðsson er illviðráðanlegur í þessari deild á sínum degi og hann var góður í dag. Skilaði bæði marki og stoðsendingu ásamt því að leikur liðsins byggist mikið í kringum hann.

Oliver Ekroth var frábær í vörninni og steig vart feilspor og Nikolaj Hansen var líka erfiður við að eiga og skoraði fyrra mark leiksins.

Hjá KA var Jakob Snær Árnason á fullu allan leikinn og sinnti varnarleiknum sérstaklega vel. Vantaði stundum upp á lokasendinguna hjá honum þegar KA var komið í góða stöðu.

Birgir Baldvinsson var einnig líflegur á hinum kantinum og ógnaði sóknarlega.

Enginn sérstakur skúrkur sem hægt er að útnefna en það er áfram vandamál hjá KA að skora mörk.

Dómarinn

Ágætlega dæmdur leikur hjá Gunnari í dag en leikurinn leystist annað slagið upp í smá vitleysu sem leystist þó fljótt og greiðlega úr.

Stemning og umgjörð

Það hefur aldrei á tímabilinu heyrst meira í stuðningsmönnum KA en í leiknum í dag þar sem trommur og söngvar heyrðust vel og vonandi heldur þetta áfram í næstu leikjum. Einnig gerðu þónokkrir Víkingar sér ferð norður og studdu sitt lið. Umgjörðin góð og stór sjónvarpsútsending að norðan er alltaf skemmtileg.

Gylfi Þór Sigurðsson var með mark og stoðsendingu í kvöld.Vísir/Diego

„Gæðin í liðinu mun alltaf skora mörk“

„Mjög vel, erfiður leikur. Alltaf erfitt að koma hingað og ég held að KA séu betri en staðan í deildinni sýnir. Þeir eru góðir að spila boltanum og síðan eru þeir líka góðir í að nýta kannski kantana og koma með krossa og svona stundum með aðeins lengri bolta. Mér finnst þeir vera fínasta lið, ég held að þeir eigi mikiði inni, en bara mjög ánægður með að taka þrjú stig og fara heim.“

KA varðist vel og hleypti Víkingum ekki í nein alvöru færi lengi vel í fyrri háfleik en Víkingar héldu mikið meira í boltann. Gylfa fannst leikplan Víkings ganga vel upp í dag.

„Já ég held það. Við vorum kannski smá kærulausir þegar við vorum að missa boltann, þeir eru mjög góðir í skyndisóknum þannig kannski svolítið okkur að kenna í fyrri hálfleik að við leyfðum leiknum að vera mikið fram og til baka, við hefðum getað haldið boltanum betur. Ég held að planið sem við lögðum upp með var bara að vera sterkir varnarlega og halda hreinu og gæðin í liðinu munu alltaf skora einhver mörk.“

Gylfi lagði upp fyrsta mark leiksins sem Nikolaj Hansen skoraði með skalla eftir aukaspyrnu Gylfa sem var vel útfærð og virtist koma beint af æfingasvæðinu.

„Já, við höfum talað um þetta nokkrum sinnum, þannig maður þarf eiginlega bara að hitta hann eitthvert þarna upp í loftið og þá kemur Niko (Nikolaj Hansen) og skallar hann inn, svakalegur skalli hjá honum.“

„Bara fínt sko, þetta var svolítið erfiður leikur, eins og ég sagði mikið fram og til baka sérstaklega í fyrri hálfleik. Vorum kannski aðeins fannst mér í leiknum, aðeins svona niður í seinni hálfleik að stjórna leiknum, rólegri og reyna kannski að halda boltanum, sást kannski mest síðustu 20 mínúturnar en bara leið mjög vel“, sagði Gylfi aðspurður hvernig honum hafi liðið á vellinum.

Víkingar eru með sterkan og breiðan hóp og hafa verið að endurheimta menn úr meiðslum sem er jákvætt þar sem liðið á Evrópuleiki framundan í næsta mánuði ásamt því að vera á toppnum í Bestu deildinni.

„Ég meina við erum bara búnir að tapa einum leik í einhverjum fimm leikjum sirka, á móti Breiðablik. Maður þarf ekkert alltaf að spila eitthvað rosalega vel, þarft bara að vinna leiki og við höfum verið að gera það og eins og ég segi; meirihlutann af leikjunum munum við spila vel en verðum bara að passa að þegar við erum ekki upp á okkar besta að við náum samt í úrslit.“

Hallgrímur Jónasson er þjálfari KA.vísir/Anton

„Menn eru alltaf að tala um eitthvað xG og okkar er þrefalt meira en þeirra“

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, sagði lið sitt hafa spilað frábærlega eftir 2-0 tap gegn toppliði Víkings á heimavelli og það eina sem vanti séu mörk.

„Mér líður ekki vel með úrslitin því við spiluðum bara frábæran leik. Ég er búinn að sjá tölfræðina og menn eru alltaf að tala um eitthvað xG og okkar er þrefalt meira en þeirra en við bara því miður náum ekki að skora mark. Fyrsta markið þeirra var alveg klárt brot þar sem við erum blokkaðir á fjær og heimsklassa skalli, sláin inn yfir utan teig, lítið við því að gera en ég var virkilega ánægður með strákana í dag. Ég held að allir sem hafi horft á þennan leik hafi séð það að við spiluðum virkilega góðan leik en gæðin þeirra og markið hjá Gylfa í seinni hálfleik drepur svolítið leikinn.“

KA liðið sótti mikið upp hægra megin, sérstaklega í fyrri hálfleik, og oftar en ekki var það síðasta sendingin sem misfórst og færin því ekki eins mörg og liðið hefði viljað.

„Ég hefði viljað nýta síðasta þriðjunginn betur en við höfðum fullt af fyrirgjafastöðum og eins og ég segi, við spilum bara virkilega góðan leik, maður er svona miklu rólegri en aldrei gaman að tapa en eftir svona leik gefur manni trú á að við erum enn þá með viljann, erum enn þá að berjast og hlaupa fyrir hvorn annann og erum með gæði en við þurfum að fara skora mörk.“

Umræða hefur skapast upp á síðkastið að KA liðið sé með of marga eldri leikmenn í liðinu og var Hallgrímur spurður hvort það væri í skoðun að fá fleiri yngri leikmenn í byrjunarliðið.

„Þjálfarar hugleiða margt og menn eru fljótir að tala um eitthvað svona en ef þú vilt vera jákvæður að tala um KA undanfarin ár þá erum við búnir að vera með þvílíkt marga stráka hér að norðan. Fólk finnur bara eitthvað að þegar flutirnir ganga ekki upp, það er klárt mál að við erum með elstu liðum deildarinnar og við vitum það og þeir leikmenn voru sóttir þannig það kemur engum á óvart.“

„Ég er bara ótrúlega ánægður með frammistöðuna, allt nema að við skorum ekki mörk. Ef við spilum svona áfram þá hef ég engar áhyggjur af því að við í KA endum neðarlega í deildinni. Mótið var hálfnað fyrir síðustu umferð, seinni helmingurinn eftir og við erum bara á miklu, miklu betri stað en við vorum á í byrjun móts og margar ástæður fyrir því og liðið mitt lítur bara vel út allstaðar á vellinum nema síðasta þriðjung og það er eitthvað sem við þurfum að vinna í“, sagði Hallgrímur að lokum.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings.Vísir/Einar

Sölvi Geir: Virkilega sáttur með frammistöðuna

„Held að þeir hafi beðið um brot í hvert einasta skipti sem við fengum fast leikatriði“

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var sáttur með frammistöðu síns liðs eftir 2-0 sigur gegn KA norðan heiða fyrr í kvöld.

„Virkilega sáttur með frammistöðuna. Mér fannst við kannski í fyrri hálfleik ekki nýta stöðurnar okkar nógu vel, það var hellings pláss til að spila boltanum og vera aðeins þolinmóðir á honum, við vorum dálítið fljótir að framkvæma sóknirnar okkar þannig við reyndum að fara yfir það í hálfleiknum og bæta það en við fáum gott mark í fyrri hálfleik eftir frábært uppsett fast leikatriði og síðan eftir það tökum við enga sénsa þó svo að það hafi ekki verið nein skilaboð um að spila þannig en við bara einhvernveginn gáfum þeim aldrei færi á okkur. Mér fannst þetta vera bara fagmannlega gert hjá strákunum og við vorum hrikalega sterkir að verja teiginn okkar, KA menn eru góðir í því að fá boltann út á kantinn og koma með fyrirgjafir en við skölluðum bara allt í burtu og menn lögðu bara allt í þetta og höfðu gaman að því bara að verja teiginn sinn.“

Víkingar skoruðu glæsilegt mark þegar Nikolaj Hansen skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, vildi fá brot í aðdraganda marksins en Sölvi var ekki alveg sammála því.“

„Ég held að þeir hafi beðið um brot í hvert einasta skipti sem við fengum fast leikatriði þannig það kemur mér svo sem ekkert sérstaklega á óvart en nei nei þeir reyna hindra okkur og við reynum að losa okkur við þá og ég meina ‘screen‘ er partur af leiknum í dag, við sjáum að það er verið að blokka leikmenn í öllum deildum í fótboltanum í dag þannig þú þarft bara að blokka rétt, ekki nota hendurnar heldur stíga fram fyrir manninn þinn, þá er það allt í lagi. Það getur vel verið að það hafi verið eitthvað smotterí að þessu, ég er ekki búinn að sjá það.“

Sölvi er ánægður með stöðuna á liðinu þegar mikil törn er framundan í bæði deild og Evrópukeppni.

„Já, mér finnst það, mér finnst margir leikmenn sem fá hérna mínútur í dag, mikilvægar mínútur því við þurfum á öllum hópnum að halda þegar kemur að törninni. Það getur vel verið að þegar það koma meiðsli eða álag á þeim að menn þurfi að vera með mínútur í beinunum. Annars er ég sáttur með hvernig þetta er búið að ganga og við leitumst eftir því að vera bæta okkur leik eftir leik og að koma norður og vinna 2-0 á erfiðum útivelli, ég er mjög ánægður með það.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira