Upp­gjörið: Víkingur - Aftur­elding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Víkingar unnu góðan sigur í kvöld.
Víkingar unnu góðan sigur í kvöld. vísir/Diego

Víkingur tóku á móti Aftureldingu í kvöld þar sem Nikolaj Hansen var hetja heimamanna.

Hansen kom Víkingum yfir á 50. mínútu en Aron Jóhannsson jafnaði leikinn skömmu síðar. Hansen var svo aftur á ferðinni á 79. mínútu þegar hann skoraði mark sem reyndist sigurmarkið.

Gestirnir voru hársbreidd frá því að jafna metin í uppbótartíma en Víkingar sluppu með skrekkinn og tóku öll þrjú stigin í Víkinni í kvöld.

Leikurinn fór heldur hægt af stað. Bæði lið voru að reyna þreifa sig áfram en það var afskaplega lítið um opnanir.

Afturelding neyddust í skiptingu á 24. mínútu leiksins þegar Oliver Sigurjónsson fór niður og gat ekki haldið leik áfram. Inn í hans stað kom Enes Þór Enesson Cogic.

Gestirnir fengu frábær færi til þess að komast yfir um miðjan fyrri hálfleikinn en Pálmi Rafn Arinbjörnsson sem kom inn í mark Víkinga fyrir leikinn varði þá frábæran skalla frá Gunnari Bergmann Sigmarssyni. Boltinn fór þó ekki langt og féll fyrir fætur Arons Jóhannssonar en skot hans fór yfir markið. Sannkallað dauðafæri sem Afturelding fékk.

Bæði lið fengu fínar stöður en náðu þó ekki að koma sér í nein alvöru færi að viti. Liðin fóru því markalaus inn í hálfleikinn.

Þegar rétt um fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik fékk Gylfi Þór Sigurðsson boltann á miðjunni hjá Víkingum og átti hann hárfína sendingu innfyrir á Nikolaj Hansen sem fór framhjá Jökli í marki Aftureldingar og skilaði boltanum í netið. Víkingar búnir að taka forystu.

Sú forysta lifði þó ekki lengi því aðeins tæpum tveimur mínútum síðar voru gestirnir búnir að jafna leikinn. Hár bolti frá hægri fyrir markið rataði á Hrannar Snær Magnússon sem lagði boltann fyrir Aron Jóhannsson og hann þrumaði knettinum í þaknetið og jafnaði leikinn fyrir Aftureldingu.

Víkingar fóru að ýta liði sínu ofar og voru með þunga pressu á Aftureldingu sem stóðu af sér hvert tækifærið á fætur öðru.

Stíflan brast á 80. mínútu leiksins þegar Nikolaj Hansen var aftur á ferðinni fyrir Víkinga og skilaði flottum bolta frá Karli Friðleifi Gunnarrssyni í netið og Víkingar komust aftur í forystu.

Það var kraftur í Aftureldingu undir restina og þeir voru óheppnir að ná ekki inn jöfnunarmarki í restina en þeir bönkuðu hressilega á dyrnar hjá Víkingum sem héldu þó út og fóru að lokum með sterkan 2-1 sigur af hólmi.

Atvik leiksins

Fyrra mark Nikolaj Hansen opnaði leikinn aðeins og aðeins tveimur mínútum síðar voru Afturelding búnir að jafna með góðu marki frá Aroni Jóhannssyni. 

Stjörnur og skúrkar

Nikolaj Hansen var hetja Víkinga í kvöld. Skoraði bæði mörk liðsins og gríðarlega sterkt fyrir Víkinga ef hann er að komast í fyrra form.

Hjá Aftureldingu var Aron Jóhannsson mjög öflugur. Skoraði gott mark og nálægt því að jafna leikinn aftur í uppbótartíma.

Dómararnir

Twana Khalid Ahmed hélt utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar voru Kristján Már Ólafs og Bergur Daði Ágústsson. Margar furðulegar ákvarðanir í kvöld. Þeir höfðu ekki úrslita áhrif en betur má ef duga skal.

Stemingin og umgjörð

Það var vel mætt í Víkina í kvöld. Banter í stúkunni og hörku umgjörð fyrir leikinn í dag. Virkilega fagmannleg að öllu staðið.

Viðtöl

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga.vísir / diego

„Erfiður leikur en við getum svo sem sjálfum okkur um kennt“

„Virkilega sætur. Við þurftum að hafa svo sannarlega fyrir honum“ sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga eftir sigurinn í kvöld. 

„Afturelding eru bara mjög sterkt lið. Við sjáum það að með sigri hjá þeim hér í dag þá væru þeir búnir að blanda sér bara aðmennilega í toppbaráttuna,“

„Þeir eru búnir að fá á sig fyrir þennan leik þriðju fæstu mörkin þannig þeir eru líka massívir varnarlega. Mikil liðsheild og menn eru tilbúnir að berjast fyrir hvorn annan inni á vellinum og fórna sér í allt saman“

„Þetta var bara erfiður leikur og við getum svo sem sjálfum okkur líka um kennt. Sérstakelga í fyrri hálfleik. Við vorum svolítið 'sloppy' og ákvarðanartökur okkar ekki góðar þegar við byrjuðum að nálgast markið. Mér fannst við ná að spila okkur í gegn oft á tíðum mjög vel og komum okkur í góðar stöður sem við nýttum okkur ekki í fyrri hálfleik en við gerðum mun betur í seinni hálfleik og fyrir mitt leyti uppskerum við verðskuldaðan sigur“

Enes Cogic og Magnús Már Einarsson.Vísir/Diego

„Hugsa að við höfum unnið þennan eldgamla xG bardaga“

„Ég er stoltur af frammistöðunni. Mér fannst frammistaðan frábær“ sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir leikinn í kvöld.

„Mér fannst við skapa mikið af góðum stöðum, góðum færum. Vorum að þrýsta á þá bæði í fyrri hálfleik og svo sérstaklega hérna í lokin þegar þeir voru 2-1 yfir og mér fannst við verðskulda annað mark og stig hérna að minnsta kosti. Mjög svekkjandi að fá ekkert út úr þessu“

Afturelding lenti snemma undir í seinni hálfleik en náðu að jafna mjög fljótlega aftur.

„Það sýnir bara trúna í liðunu. Við höfum alltaf trú það sama hérna í lokin, við erum að þrýsta á þá og leita af jöfnunarmarkinu og höfðum allan tíman trú“

„Frábær liðsheild og trú sem er hjá okkur. Það er gaman að sjá að við séum komnir þangað að geta mætt hérna á móti toppliðinu og spilað svona leik en við þurfum að fá eitthvað út úr því og það er pirrandi að fá ekkert út úr því í dag. Ég hugsa að við höfum unnið þennan eldgamla xG bardaga, átt fleiri skot og annað en það telur ekki. Það eru mörkin sem telja og því miður voru Víkingarnir með fleiri í dag“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira