Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. júlí 2025 20:31 Fyrirliðinn Andri Fannar Baldursson í einum af 22 leikjum sínum fyrir U-21 árs landslið Íslands. Vísir/Anton Brink Það virðist næsta öruggt að miðjumaðurinn Andri Fannar Baldursson sé á förum frá efstu deildarliði Bologna á Ítalíu.
Þýski miðillinn Bild greinir frá því að Nürnberg sem leikur í B-deildinni þar í landi hafi áhuga á hinum 23 ára gamla miðjumanni. Íþróttastjóri félagsins, Joti Chatzialexiou, gekk svo langt að staðfesta við Bild að Andri Fannar væri á óskalista félagsins. Undanfarið hefur Andri Fannar verið orðaður við Frosinone sem leikur í B-deildinni á Ítalíu. Emil Hallfreðsson lék á sínum tíma með liðinu. Andri Fannar hefur verið á mála hjá Bologna frá árinu 2020 og framlengdi nýverið samning sinn þar um eitt ár. Það virðist þó ekki sem félagið ætli sér að nota hann á komandi leiktíð. Alls hefur Andri Fannar leikið 15 leiki í Serie A, efstu deild Ítalíu, fyrir Bologna. Hann hefur hins vegar einnig verið lánaður hingað og þangað undanfarin ár. Tímabilið 2021-22 var hann á láni hjá FC Kaupmannahöfn, tímabilið eftir fór hann til NEC í Hollandi og þá var hann á láni hjá Elfsborg í Svíþjóð síðasta eitt og hálfa tímabil. Miðjumaðurinn á að baki 10 A-landsleiki og stefnir vonandi á að sama hvar hann mun spila á komandi leiktíð að frammistaða hans verði nægilega góð til að landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson kalli hann upp í A-landsliðið á nýjan leik.
Fótbolti Ítalski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Markvörður Eista meiddur Fótbolti Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjá meira