Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. ágúst 2025 06:39 Ríkisstjórinn Greg Abbott hefur fyrirskipað löggæsluyfirvöldum að finna þingmennina og handtaka þá. Getty/Brandon Bell Þingmenn Repúblikanaflokksins í Texas samþykktu í gær að gefnar yrðu út handtökuskipanir á hendur kollegum þeirra úr Demókrataflokknum, sem þeir saka um að hafa flúið ríkið til að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um breytta kjördæmaskipan.
Strax í kjölfar atkvæðagreiðslunnar um handtökuskipanirnar fyrirskipaði ríkisstjórinn Greg Abbott lögregluyfirvöldum að „hafa uppi á, handtaka og færa aftur á þingið hvern þann þingmann sem hefði vanrækt skyldur sínar við íbúa Texas“. Frumvarp meirihlutans í Texas um breytta kjördæmaskipan hefur verið gagnrýnt harðlega en breytingin myndi líklega hafa það í för með sér að Repúblikanar fengju fimm fulltrúadeildarþingmenn til viðbótar á þinginu í Washington D.C., þar sem þeir njóta naums meirihluta. Að minnsta kosti tveir þriðjuhlutar þingmanna ríkisþingsins í Texas þurfa að vera viðstaddir atkvæðagreiðslu um breytta kjördæmaskipan en um 50 þingmenn Demókrataflokksins eru sagðir hafa yfirgefið ríkið til að koma í veg fyrir afgreiðslu málsins. Handtökuskipanirnar eru lítið meira en táknrænar, þar sem þær gilda aðeins fyrir Texas og fela hvorki í sér að þingmennirnir verði sektaðir né fangelsaðir. Flestir Demókratarnir eru staddir í Illinois og hyggjast dvelja þar þangað til aukaþingið sem nú stendur yfir tekur enda eftir tvær vikur. JB Pritzker, ríkisstjóri Illinois, sagðist myndu gera allt sem í valdi hans stendur til að slá skjaldborg um þingmennina.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira