Með rétt til að „gera hvað sem ég vil“ Samúel Karl Ólason skrifar 27. ágúst 2025 13:53 Ráðherrar Trumps böðuðu hann í lofi í gær. AP/Mark Schiefelbein Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt í gær fordæmalausan rúmlega þriggja tíma ríkisstjórnarfund sem sýnt var frá í beinni útsendingu. Þar sagðist hann meðal annars hafa rétt, sem forseti, til að gera hvað sem hann vildi en ítrekaði að hann væri ekki einræðisherra.
Þá var Trump að tala um að senda hermenn til borga eins og Chicago, sem hann hefur ítrekað hótað að gera að undanförnu. Sjá einnig: Hótar að senda herinn til Baltimore Trump sjálfur stærði sig af því að svo langur fundur hefði aldrei verið haldinn fyrir opnum tjöldum áður og hrósaði blaðamönnum það hve lengi þeir gætu haldið á myndavélum og hljóðnemum. Ráðherrar Trumps og handvalið fjölmiðlafólk skiptust þar að auki á því að ausa yfir hann lofi og fór mestur fundurinn í það. Einn af einum skipaði Trump ráðherrum sínum að taka til máls og eyddu þeir mestum tíma sínum í að lofa forsetann í hástert og ítreka fyrir honum að þeir væru að framfylgja vilja hans. Trump gerði ráðherrum sínum einnig ljóst að ef hann væri ósáttur með þá, myndi hann segja það opinberlega. Lori Chavez-DeRemer, atvinnumálaráðherra, bauð Trump í heimsókn í ráðuneyti hennar, svo hún gæti séð hans „stóra, fallega andlit“ á stærðarinnar borða í ráðuneytinu. Því hann hefði haft svo gífurleg og jákvæð áhrif á líf almennra verkamanna í Bandaríkjunum. AMERICAN WORKERS FIRST! pic.twitter.com/4XOjmi3EXv— U.S. Department of Labor (@USDOL) August 25, 2025 Steve Witkoff, auðjöfur og sérstakur erindreki Trumps, jós forsetann lofi og ítrekaði að hann ætti með réttu að fá friðarverðlaun Nóbels. Vísaði hann sérstaklega til forystu Trumps hvað varðar átakanna á Gasaströndinni, þar sem Ísraelar gera ítrekað mannskæðar árásir á óbreytta borgara. Witkoff hélt því fram að í sögu friðarverðlaunanna væri enginn sem hefði átt þau meira skilið en Trump og hlaut hann lófaklapp annarra Trump-liða í herberginu fyrir. Trump hefur stært sig af því að binda enda á fjölmörg stríð síðan hann tók við embætti. Fyrst voru þau sex en degi síðar sjö. Nú eru þau orðin tíu talsins, stríðin sem Trump segist hafa stöðvað eða komið í veg fyrir. Sjá einnig: „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Witkoff sagði einnig að enginn annar en Trump ætti séns á að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu. Þá benti Trump á að Witkoff hefði sagt þetta nokkrum sinnum áður og velti vöngum yfir því hvort hann væri að byggja upp sjálfsálit hans með þessum ummælum. Það væri þó ólíklegt. „Ég hef ekkert sjálfsálit þegar kemur að þessum málum,“ sagði Trump. Witkoff: There is only one thing I wish for. That the Nobel committee finally gets its act together and realizes you are the single finest candidate since this Nobel award was ever talked about, to receive that award. pic.twitter.com/l7CAbGtUON— Acyn (@Acyn) August 26, 2025 Inn á milli kvartaði forsetinn yfir ýmsum hlutum og málefnum sem fara í taugarnar á honum. Meðal annars kvartaði hann, samkvæmt New York Times, yfir „trans fyrir alla“ í bandarískum íþróttum, ógninni af vindmillum, viðhaldi á umferðareyjum, hraða vatnsflæðis og þá lagði hann til að ef einhver fremdi morð í Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna, stæði viðkomandi sjálfkrafa frammi fyrir dauðadómi. Hæstiréttur úrskurðaði fyrir nærri því hálfri öld að slíkt færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Áhugasemir geta horft á allan fundinn í spilaranum hér að neðan. Ekki einræðisherra, en getur gert það sem honum sýnist Á fundinum í gær talað Trump ítrekað um það að senda hermenn til Chicago. Þar ættu þeir að berjast gegn glæpastarfsemi en Trump hefur ítrekað haldið því fram að borgin sé að drukkna í glæpum og morð séu einstaklega tíð þar, eins og hann hefur gert um fjölmargar borgir í Bandaríkjunum. Hann hefur þó lengi verið sérstaklega gagnrýninn á Chicago. Forsetinn gagnrýndi JB Pritzker, ríkisstjóra Illinois, fyrir að mótmæla yfirlýsingum Trumps um að senda hermenn til borgarinnar og sagði að ríkisstjórinn ætti frekar að biðja um aðstoð og þakka sér fyrir. Trump vísaði til þess að Pritzker hefði gefið í skyn að hann væri að haga sér eins og einræðisherra. „Flestir eru að segja: „Ef þú kallar hann einræðisherra, ef hann stoppar glæpi, getur hann verið hvað sem hann vill“. Ég er ekki einræðisherra, svo það sé á hreinu,“ sagði Trump. Seinna á fundinum sagði Trumps svo að hann hefði í raun rétt til að gera hvað sem er. Ef hann teldi Bandaríkjunum ógnað, gæti hann sem forseti gert það sem honum sýndist. „Ég get gert það.“ Hann sagði að það yrði ekkert vandamál að laga vandamál Pritzker en það væri indælt ef ríkisstjórinn bæði Trump persónulega um aðstoð. Trump on deploying the National Guard to Chicago: "I have the right to do anything I want to do. I'm the president of the United States." pic.twitter.com/CR2T6Srb5C— Aaron Rupar (@atrupar) August 26, 2025 Priztker svaraði Trump á X og sagði: „Nei Donald. Þú getur ekki gert það sem þér sýnist.“ Kjósendur jákvæðir Ný könnun á vegum AP fréttaveitunnar bendir til þess að meirihluti kjósenda í Bandaríkjunum telji glæpi í stórum borgum mikið vandamál. Heilt yfir eru kjósendur ekki sáttir við meðhöndlun Trumps á ýmsum málefnum en þeir virðast jákvæðari í garð harðar afstöðu hans gagnvart glæpum. Kjósendur virðast þó ekki sáttir við að alríkið taki yfir löggæslu í borgum og þykir það benda til þess að viðhorfið gæti breyst á komandi vikum, eftir því hvað Trump gerir.
Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Sjá meira