Rafmagnsflugvél reynd í áætlunarflugi í Noregi Kristján Már Unnarsson skrifar 7. september 2025 14:28 Rafmagnsflugvélin Beta Alia komin á loft á leið frá Stafangri til Björgvinjar. Avinor/Margareth Aske Fyrsta áætlunarflug rafknúinnar flugvélar í Noregi var farið síðastliðinn fimmtudag í tilraunaskyni. Flogið var milli Stafangurs og Björgvinjar á rafmagnsflugvélinni Alia, sem framleidd er af bandaríska fyrirtækinu Beta Technologies. Flugið er liður í þróunarverkefni í átt að kolefnislausum flugsamgöngum.
Norska þyrluflugfélagið Bristow Norway annast reynsluflugið í samstarfi við bandaríska flugvélarsmiðinn og norsk stjórnvöld. Fyrir þeirra hönd koma að verkefninu bæði norska loftferðaeftirlitið, Luftfartstilsynet, og Avinor, hið norska Isavia. Ekki verður flogið með farþega í reynsluferðum heldur eingöngu vörur. Avinor segir að þar sem þetta séu flugprófanir muni flugvélin ekki flytja farm í viðskiptaskyni. Í staðinn verði hermt eftir raunverulegum fraktflugum. Beta Alia-rafmagnsflugvélin getur borið allt að fimm farþega eða 562 kíló af frakt.Avinor/Øystein Løwer „Noregur mun opna loftrými fyrir alþjóðlegar flugprófanir með loftslagsvænni flugvélum. Hér er kynnt til sögunnar innanlandsfraktleið með rafknúinni flugvél. Leiðin er fyrsta tilraunaverkefnið í Noregi fyrir núll- og láglosunarflug,“ segir Avinor í fréttatilkynningu. Fjöldi reynsluflugferða er áformaður á næstu mánuðum á flugleiðinni milli Stafangurs og Björgvinjar, sem er með þeim vinsælustu í innanlandsflugi í Noregi. Hugmyndin er að afla reynslu og þekkingar í rekstri rafknúinna flugvéla svo hægt verði að nýta þær í atvinnuflugi í ábataskyni í framtíðinni. Icelandair undirritaði fyrir þremur árum viljayfirlýsingu um kaup á fimm rafmagnsflugvélum frá Heart Aerospace. Svona líta þær út: Flugferðin frá Stafangri til Bergen á fimmtudag tók 55 mínútur. Rafmagnsflugvélin er með 400 kílómetra flugdrægi en loftlínan á milli 160 kílómetrar, sem er vel innan drægni flugvélarinnar. Flugvélin er eins hreyfils og hönnuð til að þurfa aðeins einn flugmann en tveir voru í fyrstu ferðinni. Burðargeta hennar er 562 kíló, sem jafngildir fimm farþegum, og flýgur hún á 210 til 270 kílómetra hraða á klukkustund. Flugvélin lendir á Flesland-flugvelli við Bergen. Avinor/Øystein Løwer Prófanir fara fram í þremur áföngum í haust og inn í veturinn. Þær hófust raunar í byrjun ágústmánaðar með flugtökum og lendingum í Stafangri í sjónflugi. Annar áfangi felst í að afla rekstrarreynslu á flugleiðinni milli Stafangurs og Bergen. Í þriðja áfanga verður flugvélinni flogið í blindflugi við vetraraðstæður en áformað er að tilraunafluginu ljúki í janúar 2026. „Við sem þjóð erum algjörlega háð flugi, bæði núna sem og í framtíðinni. Því er aðlögun að sjálfbærari flugiðnaði forgangsverkefni ríkisstjórnar okkar,“ sagði samgönguráðherra Noregs, Jon-Ivar Nygård, þegar hann fagnaði upphafi verkefnisins. Samgönguráðherrann Jon-Ivar Nygård við rafmagnsflugvélina á Sola-flugvelli í Stafangri.Regjeringen/Frøydis Tornøe „Ekki er hægt að vanmeta þýðingu þessarar fyrstu flugferðar. Hún er raunveruleg sönnun þess að rafknúin flugvélatækni er þegar orðin að veruleika en ekki eitthvað sem á eftir að koma í framtíðinni. Það er ekki síður mikilvægt að tæknin er núna prófuð í rekstrarumhverfi, sem er nauðsynlegt næsta skref í átt að rafknúnum flugleiðum í norska flugkerfinu og annars staðar. Þessi fyrsta flugferð er þýðingarmikið skref á langri og flókinni vegferð. Eins og þessi tilraun ber með sér eru samstarf yfirvalda, flugvalla, framleiðenda, rekstraraðila sem og pólitískur stuðningur nauðsynleg og ég er stoltur af því að Noregur sé í fararbroddi,“ sagði samgönguráðherrann. Samgönguráðherrann Jon-Ivar Nygård og umhverfis- og loftslagsráðherrann Andreas Bjelland Eriksen í stjórnklefa flugvélarinnar.Avinor/Øystein Løwer „Tilraunin er mikilvægt skref í að breyta loftslagsstefnu í hagnýtar lausnir. Ef við ætlum að ná árangri í grænum orkuskiptum verðum við að prófa, læra og byggja upp, - ekki bara skipuleggja. Með þessu reynsluflugi tekur Noregur forystu í þróun flugs án losunar, en skapar jafnframt ný tækifæri fyrir græn störf og nýsköpun,“ sagði Andreas Bjelland Eriksen, umhverfis- og loftslagsráðherra Noregs. Hér má rifja upp fyrsta flug rafmagnsflugvélar á Íslandi sumarið 2022:
Fréttir af flugi Noregur Loftslagsmál Orkuskipti Orkumál Samgöngur Umhverfismál Tengdar fréttir Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Flug lítillar rafmagnsflugvélar í gær frá Sønderborg á sunnanverðu Jótlandi til Kaupmannahafnar þykir marka þáttaskil í dönsku flugsögunni. Fullyrt er að þetta teljist fyrsta græna innanlandsflugið í Danmörku á flugvél sem eingöngu er rafknúin. 10. júlí 2025 23:33 Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum. 12. apríl 2025 08:50 Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30 Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Innlent Fleiri fréttir Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Sjá meira
Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Flug lítillar rafmagnsflugvélar í gær frá Sønderborg á sunnanverðu Jótlandi til Kaupmannahafnar þykir marka þáttaskil í dönsku flugsögunni. Fullyrt er að þetta teljist fyrsta græna innanlandsflugið í Danmörku á flugvél sem eingöngu er rafknúin. 10. júlí 2025 23:33
Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Ráðamenn Airbus hafa ítrekað þá stefnumörkun sína að koma eitthundrað sæta flugvél knúinni mengunarlausu eldsneyti í arðbært farþegaflug á næsta áratug. Þetta kom fram á árlegum fundi forystumanna Airbus á dögunum. 12. apríl 2025 08:50
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30