Leik lokið: ÍA - Njarð­vík 119-130 | Svaka­leg spenna á Skaganum

Sverrir Mar Smárason skrifar
_DSF2024
vísir/Anton

Njarðvíkingar unnu sinn fyrsta leik í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir mættu á Akranes og lögðu Skagamenn með ellefu stigum eftir framlengdan leik, 130-119.

Skagamenn byrjuðu leikinn vel og voru mest tólf stigum yfir en gestirnir úr Njarðvík unnu sig inn í leikinn og tóku forystuna.

Nýliðarnir gáfust ekki upp og lokamínúturnar voru æsispennandi. Njarðvík tryggði sér framlengingu á vítalínunni en í henni voru gestirnir úr Njarðvík mun sterkari. Njarðvík vann framlenginguna 21-10.

Brandon Averette skoraði 37 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Njarðvík og Mario Matasovic var með 30 stig.

Darnell Cowart skoraði 34 stig fyrir ÍA og Gojko Zudzum var með 30 stig.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira