Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Jón Ísak Ragnarsson skrifar 10. janúar 2026 20:33 Mohamed bin Zayed Al Nahyan, forseti Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Getty Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum styrkja ekki lengur ríkisborgara sína til háskólanáms í Bretlandi, af ótta við að nemendur verði útsettir fyrir innrætingu samtaka á borð við Múslimska bræðralagið. Múslimska bræðralagið eru alþjóðleg samtök múslima sem skilgreind eru sem hryðjuverkasamtök í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ekki í Bretlandi.
Fjallað var um málið í vikunni í miðlum á borð við Financial Times, Telegraph, The Standard, Fox, og Middle East eye. Sameinuðu arabísku furstadæmin veita fjölmörgum framúrskarandi nemendum veglega ríkisstyrki á hverju ári sem ætlaðir eru til að standa straum af kostnaði við nám erlendis í virtum háskólum. Í júní í fyrra birti menntamálaráðuneyti Furstadæmanna lista yfir þá erlendu háskóla sem yfirvöld myndu styrkja nemendur til að sækja, og var þar engan háskóla í Bretlandi að finna. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, í opinberri heimsókn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í desember 2024.Getty Á listanum voru hins vegar háskólar í Bandaríkjunum, Ástralíu, Ísrael og Frakklandi. Bretar spurðu svo yfirvöld í Sameinuðu furstadæmunum út í málið, sem tilkynntu þeim að þeim hefðu ekki orðið á mistök við gerð listans. Ástæðan fyrir þessu var sögð ótti yfirvalda í Abu Dhabi að nemendur í breskum háskólum væru í hættu á að vera útsettir fyrir innrætingu og áróðri íslamskra samtaka á borð við Múslimska bræðralagið. Sarah bint Yousif Al Amiri er menntamálaráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna.Getty Árið 2014 var bræðralagið skilgreint sem hryðjuverkasamtök í furstadæmunum, og hafa stjórnvöld í Abu Dhabi ítrekað þrýst á yfirvöld víða um heim, til dæmis í Bretlandi, að gera slíkt hið sama. Bretar hafa ekki viljað skilgreina bræðralagið sem hryðjuverkasamtök, en í yfirlýsingu þáverandi ríkisstjórnar Bretlands árið 2015 kom fram að þrátt fyrir að hugmyndafræði samtakanna væri mjög andsnúin breskum gildum og siðum ætti ekki að skilgreina þau sem hryðjuverkasamtök. Múslimska bræðralagið er á bak við að minnsta kosti átta stofnanir eða samtök víða um Bretland, og hafa yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum ítrekað biðlað til Bretlands að setja starfsemi þeirra skorður. Fjöldi háskólanemenda frá Furstadæmunum í Bretlandi dróst saman um 55 prósent frá 2022 til 2025, og er fækkunin rakin að miklu leyti til deilunnar um Múslimska bræðralagið. Tekið er fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að nemendur úr vel stæðum fjölskyldum sendi börn sín í skóla í Bretlandi, en skólar þar séu hins vegar ekki lengur styrkhæfir. Miklar umræður hafa spunnist um þessi mál á samfélagsmiðlum, en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna er meðal þeirra sem hafa lagt orð í belg. Hann deildi fréttinni á X, og sagði „Þessi fyrirsögn er algjörlega rugluð.“ „Bestu vinum okkar við Persaflóann finnst að innræting íslamista sumstaðar í Vestrinu sé of hættuleg,“ sagði varaforsetinn um málið. Rugluð frétt, segir Vance.X
Sameinuðu arabísku furstadæmin Bretland Háskólar Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira