Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Lovísa Arnardóttir skrifar 11. janúar 2026 09:03 Skjáskot úr myndbandi sem tekið var í Teheran í Íran. Vegna farsíma- og internetlokunar er fréttaflutningur og myndbirtingar frá landinu afar takmörkuð. Vísir/AP Mohammad Bagher Qalibaf, forseti íranska þingsins hefur varað við því að bandarískir hermenn og Ísrael verði skotmörk ef Bandaríkin gera árás vegna mótmæla. Mótmæli gegn klerkastjórninni hafa nú staðið yfir víða í Íran í um tvær vikur. Í það minnsta 116 eru látnir og mikill fjöldi slasaður. Þúsundir hafa verið handtekin.
Fjallað er um málið á vef AP. Vegna Internet- og farsímalokunar í landinu er umfjöllun erlendra miðla takmörkuð en samkvæmt bandarískum mannúðarsamtökum, Human Rights Activists News Agency, hafa um 2.600 verið handtekin vegna mótmælanna. Í frétt AP segir að forseti íranska þingsins hafi varað við því að bandaríski herinn og Ísrael yrðu „lögmæt skotmörk“ ef Bandaríkin gerðu árás á íslamska lýðveldið, eins og Donald Trump forseti hefur hótað. Mótmæli hafa farið fram um allan heim um helgina. Myndin er tekin á mótmælum í Frankfurt í Þýskalandi í gær. Vísir/EPA Qalibaf setti þessa hótun fram þegar þingmenn ruddust að ræðupalli íranska þingsins og hrópuðu: „Dauði yfir Ameríku!“ Þingið var sýnt í beinni útsetningu og hélt Qalibaf, sem er harðlínumaður, þar ræðu, þar sem hann hrósaði lögreglu, byltingarvörðunum og sjálfboðaliðasveit varðanna fyrir að hafa staðið sig vel gegn mótmælendum. „Íbúar Írans eiga að vita að við munum taka á þeim með hörðustu hætti og refsa þeim sem eru handteknir,“ sagði Qalibaf. Hann hélt áfram og hótaði Ísrael og Bandaríkjunum. „Ef ráðist verður á Íran, verða bæði hið hernumda landsvæði og allar bandarískar herstöðvar, bækistöðvar og skip á svæðinu lögmæt skotmörk okkar,“ sagði Qalibaf og að Íran myndi bregðast við hvers konar ógnum. Í frétt AP segir óljóst hversu alvarlegar þessar hótanir eru, sérstaklega í ljósi þess að loftvarnir landsins eru enn eyðilagðar eftir tólf daga stríðið við Ísrael síðasta sumar. Ákvörðun um að efna til átaka eða stríðs yrði alltaf tekin af æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Ali Khamenei. Horfa til frelsis Trump lýsti yfir stuðningi við mótmælendur fyrir helgi og sagði á samfélagsmiðlum að í Íran væri verið að horfa til frelsis, sem aldrei fyrr, og að Bandaríkin væru reiðubúin að hjálpa. Utanríkisráðuneytið gaf síðar út viðvörun um að það ætti ekki að leika neina leiki við Trump, honum væri alvara með sínum yfirlýsingum. Greint var frá því í gærkvöldi að starfsmenn á þremur spítölum í Íran segðu að fjöldi slasaðra og látinna mótmælenda sem streymdi til þeirra sé slíkur að þeir hafi ekki undan og ekki gefist tími til að veita þeim lífsbjargandi aðhlynningu. Mótmæli hafa farið fram um landið allt og einnig erlendis. Íranir búsettir á Íslandi komu saman við stjórnarráðið í miðborginni í gær. Khamenei hefur gefið í skyn að hertar aðgerðir séu í vændum, þrátt fyrir viðvaranir Bandaríkjanna. Ríkissaksóknari Írans, Mohammad Movahedi Azad, varaði til dæmis við því í gær að allir sem tækju þátt í mótmælum yrðu taldir „óvinir Guðs“ og yrðu ákærðir fyrir glæpi sem varða dauðarefsingu. Í yfirlýsingunni, sem íranska ríkissjónvarpið birti, sagði að jafnvel þeir sem „hjálpuðu óeirðaseggjum“ myndu sæta ákærunni. Tæpar tvær vikur eru síðan íbúar í Íran tóku til við að mótmæla efnahagsstjórn landsins, háu verðlagi og versnandi lífskjörum. Mótmælin hófust í höfuðborginni Tehran en standa nú yfir um allt land.
Mótmælaalda í Íran Íran Bandaríkin Donald Trump Ísrael Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira