Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Kjartan Kjartansson skrifar 14. janúar 2026 09:16 Reykháfar kolaorkuvers í Bandaríkjunum. Ríkisstjórn Donalds Trump vill ekki að tekð sé tillit til mannslífa og heilsu þegar reglur um takmarkanir á loftmengun eru settar. AP/Charlie Riedel Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta ætlar að hætta að taka tillit til dauðsfalla og áhrifa á heilsu fólks þegar hún semur reglur um loftmengun. Aðeins verður litið til þess hvað það kostar fyrirtæki að fylgja reglunum.
Umhverfisstofnun Bandaríkjanna tilkynnti um breytinguna á mánudag. Hún ætlar ekki lengur að reikna út hversu mörgum dauðsföllum takmarkanir á nituroxíð- og ósónmengun bjarga eða hversu mikið þær spara í heilbrigðiskerfinu. Mengunin hefur verið tengdar við alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma í mönnum. Breytingin tengist andstöðu núverandi ríkisstjórnar við reglur um svifryksmengun sem voru settar í tíð ríkisstjórnar Joe Biden. Umhverfisstofnunin reiknaði þá út að þær reglur ættu eftir að koma í veg fyrir um 4.500 mannslát og 290.000 glataða vinnudaga fyrir árið 2032. Núverandi ríkisstjórn heldur því fram að þær tölur séu misvísandi og ætlar því að hætta að reikna með jákvæðum áhrifum reglnanna um takmörkum svifryksmengunar á líf og heilsu fólks. Aðeins verði reiknað með kostnaðinum fyrir iðnað og fyrirtæki. Segjast enn viðurkenna jákvæð áhrif reglna Lýðheilsu- og umhverfissérfræðingar eru furðu lostnir yfir ákvörðuninni, að sögn AP-fréttastofnunar. Með henni þvoi Umhverfisstofnunin hendur sínar af kjarnahlutverki sínu á hættulegan hátt. Lee Zeldin, forstjóri bandarísku umhverfisstofnunarinnar. Eins og aðrir repúblikanar þrætir Zeldin fyrir viðurkennd vísindi í loftslags- og umhverfismálum.AP/Jenny Kane „Umboð Umhverfisstofnunarinnar er að verja lýðheilsu, ekki hunsa vísindi til þess að útrýma reglum um loftgæði sem bjarga mannslífum,“ segir John Walke, lögmaður Natural Resources Defense Council, félagasamtaka sem láta sig umhverfis- og lýðheilsumál varða. Umhverfisstofnunin heldur því fram að ákvörðunin um að falla frá ábatagreiningu á reglunum þýði ekki að hún taki ekki tillit til mannslífa. Hún viðurkenni enn að það hafi kosti í för með sér að draga úr svifryksmengun. „Fordæmalaus“ ákvörðun sem hafi „hræðileg“ áhrif Á sama tíma og hún tilkynnti um að kostnaðar- og ábatagreining við loftmengunarreglur yrði héðan í frá aðeins kostnaðargreining veikti Umhverfisstofnunin reglur um losun fíns svifryks frá gasorkuverum, í sumum tilfellum til næstu tveggja áratuga. „Ef Umhverfisstofnunin heldur þessari áætlun til streitu hefur það hræðileg áhrif á umhverfisreglur,“ segir W. Kip Viscusi, prófessor við lögfræðideild Vanderbilt-háskóla, sem tók þátt í að smíða aðferð til þess að leggja mat á kostnað við heilsufarsáhrif mengunar fyrir fjórum áratugum. Ákvörðunin muni grafa undan rökum fyrir öllum reglum sem eiga að vernda heilsu, öryggi og umhverfi. Viscusi telur það fordæmislaust að ríkisstjórnin vilji ekki gefa mannslífum sem reglur bjarga neitt vægi.
Bandaríkin Donald Trump Umhverfismál Heilbrigðismál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira