Finnur vill oddvitasæti VG í Reykjavík og bjóða fram með öðrum flokkum Eiður Þór Árnason skrifar 15. janúar 2026 18:22 Finnur Ricart Andrason brennur meðal annars fyrir umhverfismálum. aðsend Finnur Ricart Andrason býður sig fram í oddvitasæti Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hann vonast til að flokkurinn verði hluti af sameiginlegu framboði á vinstri vængnum.
Líf Magneudóttir, sitjandi oddviti Vinstri grænna í borginni, sagði í síðustu viku að enn ætti eftir að ákveða hvort boðið verði fram undir formerkjum Vinstri grænna eða hvort flokkurinn gangi til liðs við sameiginlegt framboð vinstri flokka. Verði boðið fram undir formerkjum Vinstri grænna vilji hún áfram leiða lista flokksins í kosningunum í maí. Vilji byggja mannvæna borg Í framboðstilkynningu Finns kemur fram að hann hafi starfað á sviði umhverfismála undanfarin ár, meðal annars sem forseti Ungra umhverfissinna, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Landgræðslunni, hjá Umhverfisstofnun og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Finnur er á 24. aldursári. „Ég vil að við byggjum græna, mannvæna og örugga borg. Við þurfum að halda áfram að þétta, en það má ekki vera á kostnað grænna svæða, ljósvistar eða annarra nauðsynlegra gæða sem við þurfum á að halda til að líða vel. Samtímis þurfum við að fara í öflugt átak í vernd og endurheimt vistkerfa, sérstaklega votlendis,“ segir Finnur í yfirlýsingu. Standa eigi vörð um heilsu íbúa „Ég vil að við byggjum húsnæði fyrir fólk en ekki fjárfesta. Uppbygging þarf að vera á forsendum fólksins. Við þurfum húsnæði á viðráðanlegu verði sem tekur tillit til grænna svæða, almenningssamgangna og annarra aðstæðna á hverjum stað.“Tryggja eigi öryggi gangandi og hjólandi borgarbúa með bættri lýsingu, rauðmáluðum hjólastígum, betri aðskilnaði hjólastíga frá bílaumferð og með lægri hámarkshraða á völdum svæðum. Finnur talar einnig fyrir réttlátu leikskólakerfi, öflugri og ódýrari almenningssamgöngum, auk þess að standa vörð um heilsu borgarbúa með því að sporna gegn loftmengun. Hugnist ekki sundrung „Ég trúi einnig á samtakamátt og samvinnu félagshyggjufólks og því hugnast mér að vinstri öflin í borginni taki sig saman um sameiginlegan lista. Kjósendur eiga skilið að fá einn skýran og sameinaðan valkost til vinstri. Slíkt samstarf yrði í þágu réttláts og græns samfélags,“ segir Finnur jafnframt í framboðstilkynningu sinni. Hann bindi vonir við að flokkar á vinstri vængnum velji samstarf frekar en sundrungu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vinstri græn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Tengdar fréttir Sósalistaflokkurinn ekki með í Vori til vinstri Oddvitar og borgarfulltrúr á vinstri væng stjórnamál í Reykjavík funda enn um möguleikann á sameiginlegu framboði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Niðurstaða ætti að liggja fyrir síðar í mánuðinum. Grasrót Vinstri grænna fundar og Pírata funda á næstu vikum. Sósíalistaflokkurinn tekur ekki þátt í framboðinu en oddviti flokksins segir það ábyrgðarhluta að bjóða fram sterkan valkost á vinstri væng. 9. janúar 2026 08:02 Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Flestir oddvita flokkanna sem sæti eiga í borgarstjórn ætla að bjóða sig fram í kosningunum eftir átta mánuði. Einn er þó óviss um undir merkjum hvaða flokks framboðið verður. 15. september 2025 15:20 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Sósalistaflokkurinn ekki með í Vori til vinstri Oddvitar og borgarfulltrúr á vinstri væng stjórnamál í Reykjavík funda enn um möguleikann á sameiginlegu framboði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Niðurstaða ætti að liggja fyrir síðar í mánuðinum. Grasrót Vinstri grænna fundar og Pírata funda á næstu vikum. Sósíalistaflokkurinn tekur ekki þátt í framboðinu en oddviti flokksins segir það ábyrgðarhluta að bjóða fram sterkan valkost á vinstri væng. 9. janúar 2026 08:02
Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Flestir oddvita flokkanna sem sæti eiga í borgarstjórn ætla að bjóða sig fram í kosningunum eftir átta mánuði. Einn er þó óviss um undir merkjum hvaða flokks framboðið verður. 15. september 2025 15:20