Þjóðverjar yfirgefa Grænland Agnar Már Másson skrifar 18. janúar 2026 19:51 Þýsku hermennirnir flugu með vél Icelandair til Íslands í dag. FlightRadar Eftir aðeins tvo daga á heræfingu á Grænlandi snúa þýskir hermenn aftur heim, en þeir millilentu á Íslandi síðdegis í dag. Talsmaður hersins segir að verkefni hermannana sé lokið. Fulltrúar íslensku landhelgisgæslunnar eru um kyrrt á Grænlandi, að sögn gæslunnar.
Samkvæmt heimildum þýska dagblaðsins Bild fengu hermennirnir skipanir um að yfirgefa Grænland snemma í morgun. Miðillinn að allir fimmtán þýsku hermennirnir sem sendir voru norður í vikunni hafi farið um borð í vél Icelandair, sem tók á loft í Nuuk rétt fyrir hádegi í dag og lenti á Keflavíkurflugvelli kl. 16.30. Þýskalandsher sendi „könnunarteymi“ til Grænlands í vikunni til að taka þátt í heræfingu ásamt hermönnum frá Hollandi, Bretlandi, Þýskalandi og Norðurlöndum að Íslandi undanskildu. Ísland sendi reyndar einnig tvo fulltrúa Landhelgisgæslunnar á æfinguna á Grænlandi og eru þeir enn þar, samkvæmt svörum gæslunnar við fyrirspurn Vísis. Frá 16. janúar, þegar þýsku hermennirnir mættu (degi of seint vegna veðurs) til Grænlands.Getty Dagblaðið Bild bendir enn fremur á að þýsk hernaðaryfirvöld hefðu í gær tilkynnt að þýsku hermennirnir myndu ílengjast á Grænlandi þar sem þeim seinkaði um einn dag á leið sinni til landsins. Aftur á móti er haft eftir talsmanni þýska hersins í frétt AA að niðurstöður könnunarferðarinnar væru „fullnægjandi“. Talsmaðurinn segir að sendiför hafi ekki verið aflýst, heldur hafi henni verið „lokið samkvæmt skipun.“ Þessi heræfing er haldin í skugga hótana Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig Grænland, sem heyrir enn undir dönsku krúnuna. Trump varpaði í gær sprengju inn í Atlantshafsbandalagið (NATO) þegar hann boðaði tolla á átta aðildarríki sem studdu ekki innlimunaráform Bandaríkjastjórnar um Grænland.
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Þýskaland NATO Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira