„Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. janúar 2026 09:32 Snorri Steinn á æfingu í Malmö Arena í gær. vísir/vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari var silkislakur er hann hitti fjölmiðla á hóteli landsliðsins í Malmö. Ekkert stress og einbeiting á leiknum við Króatíu. „
Maður undirbýr liðið alltaf vel. Það á enn eftir að taka tvo fundi í viðbót. Svo setjum við upp plan og svo þarf að spila vel og ná upp okkar leik,“ segir Snorri Steinn en hann segir ekki mikinn mun á króatísku liðinu og því sem skellti Íslandi á HM fyrir ári síðan. Klippa: Snorri er ekki að forðast Dag „Það eru einhverjar mannabreytingar og maður sér alltaf eitthvað nýtt. Stóra myndin er samt ekkert svakalega breytt. Þetta er sterkt lið og margt sem við þurfum að hafa á hreinu.“ Króatar sáu til þess á HM í fyrra að Ísland komst ekki áfram. Eini tapleikur Íslands en nóg til þess að okkar menn sátu eftir með sárt ennið. „Vonandi lærðum við eitthvað af þeim leik. Þetta er svipað og gegn Ungverjum. Ég er ekki að dvelja of mikið við það sem gerðist. Auðvitað kíkti ég á leikinn fyrir ári og reyndi að sjá hvað var hægt að gera betur. Það var vonandi lærdómur. Við teljum okkur geta gert betur og vonandi náum við að framkvæma það,“ segir Snorri en hann fær væntanlega stórskyttuna Þorstein Leó Gunnarsson inn í liðið en hann æfði loksins með liðinu í gær. Þjálfari Króata er auðvitað Dagur Sigurðsson. Fyrrum félagi Snorra með íslenska landsliðinu og svo eru þeir báðir Valsarar og góðir félagar. Þeir eru á sama hóteli en eru þeir að hittast eða forðast hvorn annan fyrir leikinn? „Við erum ekki búnir að hittast. Ég er ekki að reyna að forðast hann en ég veit ekki hvað hann er að gera. Ef ég hitti hann þá knúsa ég hann sko. Ég er alveg klár í kaffi með honum,“ sagði Snorri og hló dátt.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira