Morðið á Pretti gagnrýnt úr öllum áttum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. janúar 2026 06:53 Efnt var til mótmæla í Minneapolis og fleiri borgum Bandaríkjanna í gær. Getty/Stephen Maturen Gríðarleg reiði hefur gripið um sig í Minnesota og víðar í Bandaríkjunum í kjölfar þess að hjúkrunafræðingurinn Alex Pretti, 37 ára, var skotinn til bana af fulltrúum innflytjendayfirvalda í Bandaríkjunum á laugardag.
Efnt var til mótmæla í Minneapolis og öðrum borgum landsins í gær og þá hefur fjöldi þekktra einstaklinga og samtaka fordæmt atvikið. Bæði Barack Obama og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, sendu frá sér yfirlýsingar. „Á lífsleiðinni stöndum við frammi fyrir aðeins örfáum augnablikum þar sem ákvarðanirnar sem við tökum og þær aðgerðir sem við grípum til munu móta sögu okkar um árabil. Þetta er eitt af þeim. Ef við gefum frá okkur frelsið eftir 250 ár, fáum við það mögulega aldrei aftur,“ sagði Clinton meðal annars. Over the course of a lifetime, we face only a few moments where the decisions we make and the actions we take will shape our history for years to come. This is one of them. pic.twitter.com/fr4TclLBZd— Bill Clinton (@BillClinton) January 25, 2026 Stjórnvöld hafa haldið áfram að fullyrða að Pretti hafi sjálfur átt sök á því hvernig fór og bent á að hann hafi haft skotvopn meðferðis þegar hann mætti á vettvang, þar sem mótmælendur voru að vekja athygli íbúa í nágrenninu að fulltrúar innflytjendayfirvalda væru mættir á staðinn. Greining á myndskeiðum hefur hins vegar leitt í ljós að Pretti hafði verið afvopnaður þegar hann var skotinn, allt að tíu sinnum, þar sem hann lá í jörðinni með fjóra eða fimm menn ofan á sér. Fullyrðingar yfirvalda þess efnis að Pretti hafi gerst sekur um lögbrot með því að bera skotvopnið hafa verið harðlega gagnrýndar af samtökum skotvopnaeigenda, meðal annars National Rifle Association, sem hafa verið hliðholl Donald Trump Bandaríkjaforseta. Samtökin segja Pretti hafa verið í fullkomnum rétti með því að bera skotvopn, þar sem hann hafði til þess leyfi og hafa kallað eftir rannsókn málsins. This sentiment from the First Assistant U.S. Attorney for the Central District of California is dangerous and wrong.Responsible public voices should be awaiting a full investigation, not making generalizations and demonizing law-abiding citizens. https://t.co/9fMz3CL29o— NRA (@NRA) January 25, 2026 Hvað rannsóknina varðar virðist sagan vera að endurtaka sig en líkt og þegar Renée Good, 37 ára bandarískur ríkisborgari, var skotinn til bana í Minneapolis 7. janúar síðastliðinn, þá hafa alríkisyfirvöld hamlað rannsókn staðaryfirvalda, þrátt fyrir að þau hafi tryggt sér aðgengi með dómsúrskurði. Fjölskylda Pretti hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún lýsir bæði sorg og reiði. Pretti hefur verið lýst sem friðelskandi manni, sem hafði ekkert annað á samviskunni en nokkrar umferðarsektir. „Gerið það komið sannleikanum um son okkar á framfæri,“ segir í yfirlýsingu fjölskyldunnar. „Hann var góður maður.“ Trump hefur brugðist við harmleiknum með löngum færslum á Truth Social þar sem hann hælir sjálfum sér og fordæmir Demókrata og ólöglega innflytjendur.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Alex Jeffrey Pretti, 37 ára gamall hjúkrunarfræðingur og bandarískur ríkisborgari, var skotinn til bana af fulltrúum Innflytjenda- og tolleftirlits Bandaríkjanna, ICE, í Minneapolis í gær. Heimvarnarráðherra Bandaríkjanna hélt því fram að Pretti hefði ráðist á fulltrúana, þvert á það sem má sjá á myndefni af vettvangi. 25. janúar 2026 11:04 Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira
Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Alex Jeffrey Pretti, 37 ára gamall hjúkrunarfræðingur og bandarískur ríkisborgari, var skotinn til bana af fulltrúum Innflytjenda- og tolleftirlits Bandaríkjanna, ICE, í Minneapolis í gær. Heimvarnarráðherra Bandaríkjanna hélt því fram að Pretti hefði ráðist á fulltrúana, þvert á það sem má sjá á myndefni af vettvangi. 25. janúar 2026 11:04