Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Jakob Bjarnar skrifar 27. janúar 2026 14:18 Brynjar vildi vita hvað Ragnari Þór ráðherra þyki um gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar um væntanlegt afnám ríkisstjórnarinnar á áminningarskyldu opinberra starfsmanna. vísir/vilhelm Brynjar Níelsson lögmaður kom inn sem varaþingmaður á Alþingi í dag, þá fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, og lét ekki bjóða sér það tvisvar; hann henti sér umsvifalaust í óundirbúnar fyrirspurnir. Brynjar átti erindi við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og þá með vísan til fortíðar hans hjá verkalýðshreyfingunni en Ragnar var formaður VR. „
Virðulegi forseti. Hæstvirtur fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað framlagningu frumvarps um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna í lok næsta mánaðar samkvæmt uppfærðri þingmálaskrá.“ Þannig hóf Brynjar mál sitt og sagði það fagnaðarefni að ráðherrann hefði tekið upp málflutning þeirra Sjálfstæðismanna í þessum efnum, en frumvarp um afnám áminningarskyldunnar frá Diljá Mist Einarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, liggur einmitt fyrir þinginu og hefur gert frá því í september síðastliðnum. Hvað finnst Ragnari um gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar? „Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar hafa hins vegar sætt harðri gagnrýni frá verkalýðshreyfingunni og í sameiginlegri yfirlýsingu stærstu verkalýðsfélaga landsins kemur fram að „íslensk verkalýðshreyfing hafnar þessum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar og leggst alfarið gegn áformum hennar.“ Brynjar rifjaði upp að í umsögn BSRB um frumvarpið segi að vinnubrögð ríkisstjórnarinnar séu óásættanleg og „ekki til þess fallin að stuðla að sátt á vinnumarkaði“. Og þá kom spurningin: „Því vil ég spyrja hæstvirtan félags- og húsnæðismálaráðherra hvort hann sé ekki sammála okkur Sjálfstæðismönnum, og þá væntanlega fjármála- og efnahagsráðherra, um að frumvarpið sé hið besta mál og að verkalýðshreyfingin sé úti á túni í sinni gagnrýni?“ Ragnar Þór Ingólfsson þakkaði spurninguna. Hann sagði verkalýðshreyfinguna helst hafa gagnrýnt samráðsleysi ef lesnar eru helstu umsagnir við væntanlegt frumvarp. „Varðandi persónulega skoðun mína á frumvarpinu sem slíku held ég að hollt sé að endurskoða lög og regluverk um vinnumarkaðinn. Æskilegt sé að það sé gert í góðu samráði, sú hefur verið venjan. Ég skil þessa gagnrýni, hún á rétt á sér en að öðru leyti get ég ekki svarað fyrir frumvarp fjármálaráðherra.“ Ragnar ósammála öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar Brynjar steig þá í pontu og sagðist skilja þetta svar Ragnars svo að hann væri ósammála Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra um að þetta væri ótækt eins og verkalýðshreyfingin heldur fram. Langt er um liðið síðan Brynjar var á þingi en hann virtist engu hafa gleymt.vísir/vilhelm „Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur ekki verið sammála ráðherra í neinu og ég geri ráð fyrir því að hann sé ekki sammála neinum ráðherra. Er Ragnar sammála því að eitthvað þurfi að gera í þessum málum, að ótækt sé að það sé svona mikill munur í opinbera- og einkageiranum?“ Ragnar sagði Brynjar túlka svör sín frjálslega. Það hlyti að vera fínt að skoða lög um vinnumarkað reglulega og fínt að gera það í samráði við alla aðila. Fjármálaráðherra hafi verið sammála því að koma í veg fyrir frekari kjaragliðnun hjá elli- og lífeyrisþegum. Þá sé ríkisstjórnin sammála því að farin sé þessi leið. „Fjármálaráðherra verður að svara fyrir sitt eigið frumvarp en ég tel að skoða þurfi þessar reglur reglulega.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stéttarfélög Sjálfstæðisflokkurinn Flokkur fólksins Stjórnsýsla Rekstur hins opinbera Alþingi Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira