Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar 2. febrúar 2026 06:02 Tillaga til þingsályktunar um stefnu í varnar- og öryggismálum hefur verið samþykkt með stuðningi allra þingflokka á Alþingi og er ætlað að tryggja sjálfstæði, fullveldi, lýðræðislegt stjórnarfar, friðhelgi landamæra Íslands, öryggi borgaranna og vernd stjórnkerfis og mikilvægra innviða samfélagsins gegn hernaðarlegri ógn. Varnarstefnan byggir á þeim skuldbindingum sem felast í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafssáttmálanum og tvíhliða samningum við önnur ríki. Með öðrum orðum aðild að Sameinuðu þjóðunum, NATO og varnarsamningur við Bandaríkin. Þingsályktunartillagan lítur dagsins ljós þegar mesta hernaðarógn sögunnar frá lokum seinni heimsstyrjaldar vofir yfir Evrópu, og þar með talið Íslandi eftir að Rússar hófu landvinningastríð sitt í Úkraínu og hefur valdið mannfalli tveggja milljón manna. Talað er um að öryggisógnin sé raunveruleg og aðkallandi. Að taka beri stórveldisdrauma Rússa alvarlega og að þeir muni hafa getu til að hefja stórstyrjöld gegn ríkjum Atlantshafsbandalagsins innan fimm ára. Að landfræðileg lega Íslands veldur því að landið mun dragast inn í slík stríðsátök ef þau raungerast. Og þá séu varnarmannvirki eins og ratsjár, innviðir á öryggissvæðinu í Keflavík, hafnir og flugvellir hernaðarlega mikilvæg í aðdraganda átaka eða eftir að þau hefjast og aðrir innviðir á sviði orkumála og fjarskipta gegni lykilhlutverki. Í greinargerð þingsályktunarinnar segir að geta til að verja varnarmannvirki sem og mikilvæga borgaralega innviði kunni að hafa úrslitaáhrif á hvort slíkar árásir verði yfirleitt gerðar. Að beinar varnir Íslands á þessu sviði séu hins vegar takmarkaðar, hvort sem um er að ræða vopn, viðbúnað eða mannafla til að verja mikilvæga innviði og varnarmannvirki. Þar segir að mikilvægt sé að tryggja nægjanlega getu, þjálfun og búnað til að efla innlendan viðbúnað. Í greinagerðinni er að lokum ákall um að Ísland þurfi líkt og önnur bandalagsríki, að horfast í augu við nýjan veruleika og endurmeta nálgun sína í öryggis – og varnarmálum. Ísland verði að efla eigin getu, viðbúnað og innviði og taka ábyrgð á öryggi landsins og vörnum eins og kostur er, og leggja sitt af mörkum til að stuðla að sameiginlegu öryggi bandalagsríkjanna! Svo mörg voru þau orð. Öll skynsamleg og ákall um stefnu sem boðar raunverulegar og nauðsynlegar breytingar á nálgun okkar til eigin varna sem hafa þróast á lengsta friðartímabili í evrópskri sögu. En nei, framkvæmd varna á Íslandi breytist ekkert þrátt fyrir raunsætt ógnarmat og yfirvofandi hættu. Alþingi og stjórnvöld ætla eftir sem áður að útvista öllum vörnum Íslands til erlendra aðila, þ.m.t. NATO og Bandaríkjanna. Við ætlum ekki sjálf að taka þátt í því að verja landið okkar væntanlega vegna þess að við erum svo fámenn og fátæk sem er fyrirsláttur sem stenst ekki skoðun. Eftirfarandi eru meginforsendur þess að ég kalla núverandi varnarstefnu, stefnu uppgjafar: Aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningur við Bandaríkin eru ekki sjálfkrafa ávísun á tímanlegar og skilvirkar varnir fyrir Ísland. Áður en til þess kemur þurfa viðkomandi aðilar að taka ákvarðanir sem útheimtir samþykki allra og ef til kemur liðsflutninga sem taka tíma. Vonandi munu þessir varnarsamningar sem við höfum halda, en eins og Grænlandsmálið hefur sannað getur engin bandalagsþjóð gengið að því sem vísu. Alþingi setur öll fjöregg fullveldis og sjálfstæðis í eina körfu erlendra ákvarðana! Fjallað er um nauðsyn þess að styrkja lögreglu og landhelgisgæslu, og að þær stofnanir gegni einhverju eftirlitshlutverki og vöktun varðandi innviði án þess að það sé skilgreint nánar. Og það liggur fyrir að þessar stofnanir geta ekki sinnt því lögbundna hlutverki sem þau hafa nú á fullnægjandi hátt. Á íslenska lögreglan og landhelgisgæslan að hafa eitthvað formlegt hlutverk í vörnum landsins, t.d. með vopnaðri varðgæslu við varnarmannvirki og mikilvæga innviði. Ef svo er þarf að segja það hreint út. Og ef það er það sem varnarstefnan boðar þarf að skilgreina lagaheimildir, þjálfun, vopnabúnað og stjórn ásamt því hverjir eiga að gera hvað, sérstaklega ef það leiðir til vopnaðra átaka við erlenda árásarmenn með tilheyrandi mannfalli. Yfirstjórn varna á Íslandi er óskýr. Utanríkisráðherra fer með yfirstjórn öryggis- og varnarmála á Íslandi, en dómsmálaráðherra stýrir þeim stofnunum sem gætu verið fyrstu viðbragðsaðilar ef Ísland verður fyrir óvæntri eða skyndilegri árás. Það er brýnt að boðleiðir yfirstjórnar séu skýrar og að það ríki engin vafi á ákvarðanatöku, fyrirmælum eða ábyrgð. Og af hverju er utanríkisráðuneytið ekki endurskírt sem Utanríkis- og varnarmálaráðuneyti ef undirstrika á ábyrgðarkeðju íslenskra varna í stjórnkerfinu og hlutverk þessa fagráðuneytis? Talað er um nauðsyn þess að efla þekkingu og menntun á öryggis- og varnarmálum, t.d. innan fræðasamfélagsins, jafnvel þátttöku í námskeiðum á vegum varnarmálaháskóla. Það er í sjálfu sér gagnlegt, en það er ekki minnst á nauðsyn þess að mennta liðsforingja eða sérfræðinga í sambærilegum herháskólum í nærliggjandi löndum sem gætu verið burðarásar stjórnkerfisins ef efla á eigin getu í vörnum landsins. Og þar liggur hundurinn grafinn. Við ætlum ekki að verja okkur sjálf ef Ísland verður fyrir árás. Það ætlum við að láta öðrum um, erlendum aðilum sem hafa engin tengsl við landið og taka ákvarðanir út frá eigin þjóðarhagsmunum á hverjum tíma. Að tala um eigin varnarviðbúnað eða stofnun íslensks hers sem væri rökrétt afleiðing af ríkjandi alþjóðaástandi og yfirvofandi hernaðarógn er mætt með algjöru áhuga-og skilningsleysi margra Íslendinga, þ.m.t. þingmanna sem gera grín að þeim furðufuglum og bjánum sem halda því fram að það sé ekki bara skynsamlegt heldur nauðsynlegt. Ef nýsamþykkt varnarstefna hefði innihaldið stefnumörkum um starfrækslu íslensks varnarviðbúnaðar hefði verið hægt að tala um tímamótagjörning sem beint væri að rótum vandans sem við búum við. Í þess stað sitjum við uppi með stefnu um að gera ekki neitt sem er stefna uppgjafar. Það er eins gott að íslenska karlandsliðið í handbolta hugsar ekki svona! Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Öryggis- og varnarmál Arnór Sigurjónsson Mest lesið Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Skoðun Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun