Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Eiður Þór Árnason skrifar 4. febrúar 2026 15:27 Leikskólastjórar í Reykjavík krefjast aðgerða. Vísir/vilhelm Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. „
Leikskólastjórnendur í Reykjavík lýsa yfir áhyggjum af aðgerðarleysi borgaryfirvalda gagnvart langvarandi og vel þekktum vanda í starfsumhverfi leikskóla borgarinnar,“ segir í bréfi 63 leikskólastjóra til borgarstjóra og borgaryfirvalda. Starfa leikskólastjórarnir í hverjum einasta leikskóla sem rekinn er af borginni, að því er fram kemur í bréfinu. Afleiðingar aðgerðaleysis borgaryfirvalda eru sagðar alvarlegar og vandinn haldi áfram að magnast upp. „Þrátt fyrir vel kynntar og tímasettar tillögur (svokölluð Reykjavíkurleið) og samráð við foreldra og hagsmunaaðila hefur ekkert gerst í því að bæta starfsumhverfi í leikskólum borgarinnar eftir innleiðingu á styttri vinnuviku.“ Reykjavíkurleiðin svokallaða hefur reynst umdeild en tillögurnar fela meðal annars í sér að afsláttur yrði veittur þeim foreldrum sem sækja börn sín fyrir klukkan tvö á föstudögum. Á móti myndi kostnaður annarra foreldra hækka. Þá var lagt til að foreldrar sem nýti ekki þjónustu leikskóla á milli jóla og nýárs, í vetrarleyfum grunnskóla og í aðdraganda páska fái heilan mánuð ókeypis. Einnig stóð til að láta gjaldskrá taka mið af tekjum foreldra, þannig foreldrar með minni heildartekjur greiði minna fyrir leikskólapláss. Síðar var gefið út að tillögurnar myndu líklegast taka breytingum að loknu umsagnarferli og breytingarnar kynntar í byrjun þessa árs. Frestuðu gildistöku Reykjavíkurleiðarinnar Þann 4. desember var skólastjórnendum tilkynnt að umræddar tillögur myndu ekki taka gildi um síðustu áramót líkt og áður hafði verði kynnt. „Þessar fregnir voru mikil vonbrigði. Að auki jókst von- og trúleysi undirritaðra verulega. Okkur verður sífellt ljósara að skortur er á raunverulegum skilningi á nauðsyn þess að bæta starfsumhverfi í leikskólum Reykjavíkurborgar,“ segir í bréfi leikskólastjóra. „Þær umbætur eru óaðskiljanleg forsenda þess að tryggja börnum faglegt, vandað og ekki síður öruggt námsumhverfi. Með hverjum deginum sem líður aukast efasemdir okkar um hvort borgaryfirvöld hyggist axla þá ábyrgð sem af því leiðir að ráðast ekki í nauðsynlegar aðgerðir.“ Afleiðingarnar séu þegar orðnar sýnilegar. „Við höfum horft upp á reynslumikla og metnaðarfulla leikskólastjóra, kennara og leiðbeinendur hverfa til annarra sveitarfélaga þar sem brugðist hefur verið hraðar og af meiri festu við áskorunum tengdum styttri vinnuviku. Á meðan Reykjavíkurborg dregur lappirnar í nauðsynlegum aðgerðum blasir við sú tilfinning að mikilvægi leikskólastarfs sé aðeins viðurkennt þegar það hentar pólitískri orðræðu, en víki til hliðar þegar raunveruleg ábyrgð og fjárfestingar er krafist,“ segir í bréfinu. Leikskólastjórar segja þetta ekki ábendingu heldur kröfu um aðgerðir. Þolinmæði leikskólastjórnenda sé á þrotum. „Í góðri trú höfum við beðið og vænst úrbóta mun lengur en sanngjarnt getur talist. Um er að ræða nauðsynlegar breytingar fyrir þróun á faglegu og metnaðarfullu leikskólastarfi í Reykjavík. Við, leikskólastjórnendur, krefjumst þess að borgarstjóri og borgaryfirvöld Reykjavíkurborgar grípi tafarlaust til aðgerða. Við förum fram á tímasetta aðgerðaráætlun, sem staðið verður við, fyrir lok febrúarmánaðar 2026. Verði það ekki gert treysta leikskólastjórnendur sér ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er.“ Stytting vinnuvikunnar reynst erfið í framkvæmd Bent er á að stytting vinnuvikunnar sé eitt stærsta vandamálið í rekstri leikskólanna. „Starfsmaður í 100% starfi vinnur 36 klukkustundir á viku en viðvera barna í leikskólum borgarinnar getur orðið 42,5 klst á viku. Leikskólastjórar hafa ekki heimild til þess að ráða inn auka stöðugildi til þess að mæta þeim mun sem er á viðveru starfsfólks og barna. Þetta er einfalt dæmi sem hver einstaklingur sér að gengur ekki upp,“ segir í bréfinu til borgaryfirvalda. „Þetta er og hefur verið viðvarandi ástand og hefur skilað okkur óviðunandi starfsumhverfi og ábyrgð sem ekki er lengur verjandi. Þetta er ekki lengur spurning um þolinmæði, samráð eða skilning á flóknu kerfi Reykjavíkurborgar. Þetta er spurning um pólitíska ábyrgð.“ Geri sér grein fyrir tímasetningu kosninga Reykjavíkurleiðin svokallaða hefur meðal annars verið gagnrýnd af verkalýðsleiðtogum. Kölluðu forseti ASÍ og formaður BSRB tillögurnar sem kynntar voru til leiks í október „reiðarslag fyrir barnafjölskyldur og jafnrétti.“ Aftur á móti sagði formaður Eflingar að breytingarnar myndu henta starfsfólki og félagsmönnum Eflingar. Núverandi ástand væri óboðlegt. „Leikskólastjórnendur í Reykjavík eru fullmeðvitaðir um að sveitarstjórnarkosningar eru framundan og að aðgerðarleysi síðustu mánaða kann að mótast af pólitískri varfærni og ótta við óvinsælar ákvarðanir. Sú nálgun er skammsýn og óábyrg. Vandinn í leikskólum Reykjavíkurborgar hverfur ekki. Hann magnast frekar og mun óhjákvæmilega lenda á þeim sem taka við stjórn borgarinnar í kjölfar kosninganna. Pólitísk forysta verður að gera sér grein fyrir því að ábyrgðinni verður ekki skotið á frest með þögn eða aðgerðaleysi. Borgaryfirvöld bera fulla ábyrgð á stöðunni og á því að grípa til aðgerða nú, óháð tímasetningu kosninga,“ segir í bréfi leikskólastjóranna. Bréf þeirra var sent út í gær til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra, Helgu Þórðardóttur, formanns skóla- og frístundaráðs, Lífar Magneudóttur, formanns stýrihóps um Reykjavíkurleiðina, auk skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og fagstjóra leikskóla í Reykjavík. Fréttin hefur verið uppfærð. Bréfið er aðgengilegt í heild sinni undir tengd skjöl hér fyrir neðan. Tengd skjöl Bréf_til_borgaryfirvalda_frá_leikskólastjórnendum_í_ReykjavíkPDF182KBSækja skjal
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn enn að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu. Líf segir hópinn stefna á að kynna breytingar Reykjavíkurleiðinni eftir áramót. 10. desember 2025 06:30 Vinstri grænir í Reykjavík gagnrýna leikskólaplan borgarinnar Félag Vinstri grænna í Reykjavík gagnrýnir harðlega tillögur borgarstjórnar í leikskólamálum en flokkurinn á sjálfur fulltrúa í borgarmeirihlutanum. Enginn hafi kosið þessar tillögur. Félagið vill frekar tímabundið rýmka ráðningarheimildir leikskóla og ráðast í ráðningarátak. 29. október 2025 20:25 Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59 Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýjar tillögur um breytta leið Reykjavíkurborgar í leikskólamálum. Hún segir hugmyndirnar falla á herðar vinnandi foreldra. 2. október 2025 20:17 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Sjá meira
Kynna breytta Reykjavíkurleið eftir áramót Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir stýrihópinn enn að vinna úr umsögnum um Reykjavíkurleiðina svokölluðu. Líf segir hópinn stefna á að kynna breytingar Reykjavíkurleiðinni eftir áramót. 10. desember 2025 06:30
Vinstri grænir í Reykjavík gagnrýna leikskólaplan borgarinnar Félag Vinstri grænna í Reykjavík gagnrýnir harðlega tillögur borgarstjórnar í leikskólamálum en flokkurinn á sjálfur fulltrúa í borgarmeirihlutanum. Enginn hafi kosið þessar tillögur. Félagið vill frekar tímabundið rýmka ráðningarheimildir leikskóla og ráðast í ráðningarátak. 29. október 2025 20:25
Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Aðstoðarleikskólastjóri í Reykjavík og foreldri barns á leikskóla lýsir mikilli þreytu meðal starfsmanna leikskóla vegna fáliðunar. Stanslaus símtöl til foreldra sem þurfi að sækja börnin sín fyrr og ekkert hafi batnað fyrr en farið var í fasta fáliðun á föstudegi. Þá loks hafi faglega starfið farið að blómstra. 3. október 2025 10:59
Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýjar tillögur um breytta leið Reykjavíkurborgar í leikskólamálum. Hún segir hugmyndirnar falla á herðar vinnandi foreldra. 2. október 2025 20:17