Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 11:30 Virðulegi formaður stjórnar Háskólans á Bifröst, Ársæll Harðarson Ég skrifa þér sem meistaranemi við skólann og þar með einn af lykilhagaðilum hans. Tilefni bréfsins er sú alvarlega staða sem skapast hefur í kjölfar vantraustsyfirlýsingar akademískra starfsmanna gagnvart rektor og sú upplýsingagjöf sem nemendur hafa, eða öllu heldur hafa ekki fengið vegna málsins. Nemendur eru ekki jaðarhópur í starfsemi háskóla heldur burðarstoð hans. Þeir leggja í verulegar fjárhagslegar, faglegar og persónulegar skuldbindingar með því að hefja nám og treysta því að stjórnarhættir skólans, akademískt umhverfi og orðspor séu þess eðlis að prófgráður þeirra haldi gildi sínu til framtíðar. Í því ljósi er sú staða sem upp er komin sérstaklega alvarleg. Upplýsingagjöf til nemenda hefur að mestu takmarkast við almenn skilaboð frá rektor sjálfum, sem getur eðli máls samkvæmt ekki talist hlutlaus aðili í máli þar sem vantraust beinist persónulega að henni. Þá hefur nemendum nýlega borist bréf undirritað af þér, formanni stjórnar, þar sem ítrekað er lýst yfir fullum stuðningi stjórnar við rektor, án þess að áhyggjur akademískra starfsmanna, forsendur vantraustsins eða ábyrgð stjórnar á meðferð málsins séu teknar til efnislegrar umfjöllunar. Á sama tíma birtast ítrekað í fjölmiðlum upplýsingar sem stangast verulega á við þá mynd sem skólinn dregur upp í samskiptum við nemendur. Þetta skilur nemendur eftir í óvissu og rýrir traust til upplýsingagjafar skólans. Nýlegar fréttir, meðal annars um starfsmannafund þar sem ekki var gert ráð fyrir spurningum og um uppsögn kennara, ýta enn frekar undir tilfinningu um þöggun, skort á samtali og vanhæfni til að takast á við ágreining með uppbyggilegum hætti. Í stað þess að grípa málið og leysa það virðist sem stjórn Bifrastar og stjórnendur skólans auki vandann í hverju skrefi með illa ígrunduðum aðgerðum eins og t.d. að segja upp vinsælum og virtum kennara. Þannig eykst krísan og stækkar. Kannski gætu nemendur í Miðlun og almannatengslum hjálpað, nú eða þeir sem leggja stund á áfalllastjórnun. Sá sem er að drukkna í miðri á, stjórnar ekki björgunaraðgerðum á landi. Rektor er gerandi í málinu og því ætti stjórn skólans kannski aðeins að trimma stuðningsyfirlýsingar sínar niður og ráða sjálfstæðan óháðan aðila til að stýra þessu máli í höfn. Ef ekki er vilji til að mæta kröfum akademískra starfsmanna um að rektor og stjórnendur víki á meðan greitt er úr þá, í það minnsta, takmarkið valdsvið umræddra þannig að nornaveiðar og uppsagnir séu ekki mögulegar í miðri krísu. Sú staðreynd að engin skýr tímalína hefur verið sett fram um meðferð málsins eða næstu skref eykur enn á óöryggi nemenda. Óvissa um framvindu mála, ásamt opinberum yfirlýsingum akademískra starfsmanna um að uppsagnir kunni að verða næsta skref fari rektor ekki frá, skapar verulega áhættu fyrir akademíska starfsemi skólans, gæði kennslu og námsframvindu. Vanmáttug viðbrögð stjórnar skólans, ásamt sífelldum neikvæðum fréttum í fjölmiðlum, rýra orðspor Háskólans á Bifröst með áþreifanlegum hætti. Þegar orðspor háskóla veikist, veikist jafnframt virði þess náms og þeirra prófgráða sem nemendur hafa þegar fjárfest í. Í því samhengi blasir við raunveruleg hætta á því að menntun nemenda gjaldfallist að hluta til vegna ákvarðana, eða skorts á ákvörðunum, sem þeir hafa hvorki aðkomu að né fullnægjandi upplýsingar um. Í ljósi þessa vaknar óhjákvæmilega sú spurning hvort stjórn skólans sé í raun að setja hagsmuni einstaklings ofar heildarhagsmunum stofnunarinnar með því að lýsa ítrekað yfir óskilyrtum stuðningi við rektor, þrátt fyrir vantraust stórs hluta akademískra starfsmanna, vaxandi óstöðugleika og augljósa skaða á orðspori skólans. Slík forgangsröðun samrýmist illa þeirri ábyrgð sem stjórn háskóla ber gagnvart öllum hagaðilum hans. Í ljósi alvarleika málsins óska ég hér með formlega eftir skriflegu svari frá stjórn Háskólans á Bifröst. Ég tel eðlilegt að slíkt svar berist innan hæfilegs tímafrests og óska því eftir því að svar berist innan viku frá dagsetningu þessa bréfs, á þessum sama vettvangi eða til mín persónulega. Virðingarfyllst, Hrafnhildur TheodórsdóttirMeistaranemi í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar