„Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 13:42 Fimm oddvitar flokka sem bjóða fram í Reykjavík í vor hafa með einum eða öðrum hætti komið að starfi Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina. vísir Nú þegar sjö flokkar hafa kynnt oddvita sína í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar vekur athygli að þar af eru fimm sem hafa með einum eða öðrum hætti tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins. Oddvitarnir hafa tekið misvirkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins áður en þeir tóku oddvitasæti fyrir aðra flokka í Reykjavík, en þetta hefur vakið athygli netverja sem hafa tjáð sig um þessa forvitnilegu staðreynd á samfélagsmiðlum.
Hildur Björnsdóttir var sjálfkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þar sem engin mótframboð bárust og mun því leiða flokkinn í gegnum sveitarstjórnarkosningar annað kjörtímabilið í röð. Á meðan Hildur heldur sig við Sjálfstæðisflokkinn hafa aðrir oddvitar líka fjölbreyttan bakgrunn úr starfi Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina, en hafa nú róið á önnur mið og í leiðtogahlutverk hjá öðrum flokkum. Þetta á við um oddvita Framsóknarflokksins, Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Miðflokksins í Reykjavík sem hefur líkt og áður segir vakið athygli á samfélagsmiðlum. Skjáskot/Facebook Meðal þeirra sem hafa velt þessu fyrir sér eru Kristinn Hrafnsson, fjölmiðlamaður og ritstjóri Wikileaks, Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður VG, og bræðurnir Gunnar Smári og Sigurjón Egilssynir. Gunnar Smári birti samsetta mynd af oddvitunum fimm í spjallhópnum Rauða þræðinum á Facebook í gær, og síðan virðast fleiri hafa deilt myndinni áfram með eigin athugasemd. Gunnar bendir á að saman hefðu þessir fimm flokkar yfir áttatíu prósent fylgi samkvæmt könnun Gallup. Kristinn Hrafnson segir úrvalið jafnvel farið að líkjast „vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ og Jódís spyr „hvaða Sjálfstæðisflokk“ fólk ætli að kjósa í borginni. Skjáskot/Facebook Skjáskot/Facebook Formaður ungliðahreyfingar, aðstoðarmaður ráðherra og framboð til Alþingis En hver eru tengsl þessa fólks við Sjálfstæðisflokkinn? Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri, verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í borginni í vor, en hann tók þátt í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins þegar hann var yngri. Einar var til að mynda formaður Týs, félags ungra Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hann átti svo nokkurra ára feril í fjölmiðlum áður en hann gekk til liðs við Framsóknarflokkinn sem hlaut sögulega kosningu í Reykjavík undir forystu Einars í síðustu borgarstjórnarkosningum. Það vakti einnig athygli þegar Pétur Marteinsson bauð sig fram í oddvitasæti Samfylkingarinnar í borginni, þar sem hann hafði betur gegn Heiðu Björgu Hilmisdóttur, sitjandi borgarstjóra. Framboðið vakti ekki síður athygli fyrir þær sakir að Pétur hefur áður verið viðloðandi Sjálfstæðisflokkinn og var til að mynda í níunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningum árið 2009 í Reykjavíkurkjördæmi norður. Það vakti líka athygli þegar Pétri vafðist tunga um tönn í viðtali við Rúv þegar hann tilkynnti um framboð sitt til oddvita, þar sem hann var hálfnaður með að segja að hann væri í framboði „fyrir Sjálfst…“ en ekki Samfylkinguna, sem honum svo tókst að leiðrétta áður en hann lauk setningunni. Þá tryggði Björg Magnúsdóttir sér oddvitasæti Viðreisnar í Reykjavík á dögunum þar sem hún hlaut yfirgnæfandi kosningu. Björg hefur komið við í fleiri flokkum áður en hún tryggði sér sjálf fyrsta sætið hjá Viðreisn, en ekki er langt síðan hún starfaði sem aðstoðarmaður borgarstjóra Framsóknarflokksins, einmitt fyrrnefnds Einars Þorsteinssonar. Þá hefur Björg einnig tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins en það vakti til að mynda athygli þegar hún mætti á hverfisfund Sjálfstæðismanna í Fossvogi, á meðan hún gegndi starfi aðstoðarmanns borgarstjóra Framsóknarflokksins. Þá sagði Björg að það væri ekkert launungarmál að hún hafi tekið þátt hjá mörgum flokkum og væri skráð í marga flokka, meðal annars Sjálfstæðisflokkinn. Nú síðast tilkynnti Miðflokkurinn í gær að Ari Edwald muni leiða lista flokksins. Ari vakti sjálfur máls á því í framboðstilkynningu sinni á samfélagsmiðlum í gær að hann hafi til þessa verið Sjálfstæðismaður. „Ég hef lengi verið Sjálfstæðismaður, eins og þið vitið flest sem þekkið mig. Mér finnst mínar skoðanir og áherslur ekki hafa breyst, en mér finnst ég finna mestan samhljóm nú með Miðflokknum og treysti honum best til að koma þeim í framkvæmd,“ skrifaði Ari meðal annars en hann starfaði til að mynda í átta ár sem aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar á meðan hann var ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Síðar sagði Þorsteinn skilið við Sjálfstæðisflokkinn og tók þátt í stofnun Viðreisnar á sínum tíma líkt og kunnugt er. Einhverjir eiga enn eftir að velja oddvita Þau fimm verða þó ekki einu oddvitarnir sem leiða lista í Reykjavík. Sósíalistar kynntu til leiks Silju Sóleyju Birgisdóttur, sinn oddvita í Reykjavík í dag, en Sanna Magdalena Mörtudóttir mun leiða lista Vors til Vinstri sem býður fram í bandalagi með Vinstri grænum. Hvorug þeirra hefur tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins svo fréttastofu sé kunnugt um. Þá hafa VG blásið til forvals til að velja á lista sem fer fram 20.–22. febrúar þar sem Líf Magneudóttir, núverandi oddviti VG, er meðal frambjóðenda. Prófkjör Pírata hefur verið boðað dagana 26. febrúar til 6. mars, en þegar hefur borgarfulltrúinn Alexandra Briem gefið kost á sér í fyrsta sætið, en framboðsfrestur rennur út þann 14. febrúar hjá Pírötum. Þá liggur ekki fyrir ennþá hvenær eða með hvaða hætti Flokkur fólksins hyggst velja á lista í Reykjavík, en Helga Þórðardóttir, sitjandi oddviti flokksins í Reykjavík, hyggst ekki gefa kost á sér áfram. Okkar borg – þvert á flokka, ætlar einnig að bjóða fram í Reykjavík og fyrir liggur Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali mun leiða lista Okkar borgar. Í samtali við Vísi í fyrrasumar sagðist Sigfús ávallt hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn en hafi sjálfur aldrei tekið þátt í pólitík fyrr en nú. Frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórnarkosninga rennur út 10. apríl næstkomandi og þá mun liggja fyrir hversu mörg framboð bjóða fram lista í höfuðborginni, og eftir atvikum hvort fram koma fleiri oddvitar sem áður hafa tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um framboð Okkar borgar, sem var ekki getið í fyrstu útgáfu fréttarinnar.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira