Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Sif Sigmarsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 07:01 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns?
Sölumenn svartsýni Samkvæmt Donald Trump Bandaríkjaforseta og skósveinum hans á samfélagsmiðlum ríkir umsátursástand í London vegna innflytjenda. Formaður breska popúlistaflokksins Reform, sem sækir hratt í sig veðrið, bætti um betur í útvarpsviðtali nýverið og kvað nýbúa „borða svani úr lystigörðum landsins“. Síauknar vinsældir popúlista um heim allan hvíla á staðhæfingum þess efnis að veröldin sé á heljarþröm. Svo mikillar óánægju gætir með samtímann að tveir af hverjum þremur hefðu heldur viljað fæðast árið 1975 en árið 2025 samkvæmt könnun markaðsrannsóknarfyrirtækisins Ipsos sem gerð var í þrjátíu löndum. Formaður Reform, Nigel Farage, segir innflytjendur borða svani úr breskum lystigörðum.GETTY En er ástandið jafnslæmt og sölumenn svartsýni vilja vera láta? Fjölgar dauðarefsing morðum? Árið 1977 sýndi rannsókn fræðimannanna Palmer og Crandall fram á að morðtíðni í ríkjum Bandaríkjanna væri hærri þar sem dauðarefsing var leyfð en í ríkjum þar sem hún var bönnuð. Sama ár sýndi rannsókn Kroner og Phillips fram á hið gagnstæða: að morðtíðni væri lægri í ríkjum þar sem dauðarefsing var leyfð. Hvort heldur þú að sé hið rétta: að dauðarefsing fækki morðum eða fjölgi þeim? Svarið er: Hvorugt. Báðar rannsóknirnar voru skáldskapur félagssálfræðinga við Stanford háskóla í Bandaríkjunum. Árið 1979 báru þeir gerviniðurstöðurnar undir tvo hópa. Í ljós kom að stuðningsmenn dauðarefsingar lögðu lítinn trúnað á niðurstöðuna sem benti til þess að dauðarefsing bæri ekki með sér fælingarmátt. Að sama skapi trúðu þeir, sem voru henni mótfallnir, ekki niðurstöðunni sem sýndi fram á lægri morðtíðni í ríkjum sem heimiluðu dauðarefsingu. Tölfræðileg velmegun Meðalaldur fer hækkandi. Við höfum aldrei verið eins heilbrigð. Ungbarnadauði, ofbeldi og fátækt eru á undanhaldi. Við lifum á tímum læknisþjónustu, verkjastillandi og Netflix. Tölfræðilega höfum við aldrei haft það jafngott. Slík rök duga þó skammt. Því eins og rannsókn félagssálfræðinganna við Stanford háskóla sýnir erum við gjörn á að trúa einfaldlega því sem við viljum trúa óháð þeim upplýsingum sem liggja fyrir. Aðferðafræði popúlistans Það var ekki maður að drepa svan sem ég sá út um eldhúsgluggann minn heldur póstburðarmaðurinn að afhenda nágranna mínum nýjan kodda í svefnherbergið. Eða svo taldi ég – en kannski var ég blinduð af eigin lífssýn og sá einfaldlega það sem ég vildi sjá. Rétt eins og hér á landi fara fram sveitarstjórnakosningar í Bretlandi í maí. Beggja vegna Norður-Atlantshafsins njóta popúlistar vinsælda í skoðanakönnunum; Reform í Bretlandi nýtur sögulegs fylgis og Miðflokkurinn mældist með tvo menn inni í borgarstjórn áður en frambjóðendur höfðu svo mikið sem verið útnefndir. Aðferðafræði popúlistans virðist sú að mála veröldina nöprum dráttum og útmála sig sem bjargvætt hennar. Í ljósi velgengni slíkra afla freistast nú margir til að tileinka sér nálgun þeirra sem taka djúpt í árinni. Skemmst er að minnast orða formanns Sjálfstæðisflokksins sem líkti í lok síðasta árs Evrópu, er býr við einhverja mestu velmegun á jarðríki, við „brennandi hús“. Það er okkur, grandalausum almúganum, síður en svo skaðlaust að kaupa þann bölmóð sem okkur er seldur. „Líttu á mig. Ég er að deyja!“ Í bókinni „The Top Five Regrets of the Dying“ fjallar Bronnie Ware, ástralskur hjúkrunarfræðingur sem starfaði lengi á líknardeild, um samtöl sín við fólk á dánarbeðinum. Í bók Ware kemur fram að eftirsjá dauðvona fólks er nánast alltaf sú sama: Á dánarbeði eru flestir miður sín – jafnvel furðu lostnir – yfir að hafa ekki kunnað að meta lífið meðan þeir lifðu því. Eftirsjá dauðvona fólks er nánast alltaf sú sama.GETTY Ware vitnar í Grace, „smávaxna konu með stórt hjarta“, sem segir: „Líttu á mig. Ég er að deyja! Deyja! Ég hef beðið öll þessi ár eftir því að verða frjáls en nú er það um seinan.“ Engar sannanir – en hvað með það? Engar sannanir hafa fundist um svanaát í breskum lystigörðum, ekki frekar en fyrir fullyrðingum Donalds Trump um að innflytjendur í Bandaríkjunum legðu sér til munns hunda og ketti heimamanna. Sú staðreynd gerir þó lítið til að létta okkur lund – því við trúum því sem við viljum trúa. Hversu langt er þess að bíða að frambjóðandi til borgarstjórnar Reykjavíkur íþyngi okkur með sögusögnum um menn, sem murki lífið úr öndunum á Tjörninni, í von um pólitískan meðbyr? Áður en við kaupum fullyrðingar sölumanna svartsýni er vert að hafa eftirfarandi í huga: Á meðan við veltum okkur upp úr meintri eymd samtímans, umkringd hagsæld og tækifærum sem forfeður okkar hefðu gapað yfir, líður lífið hjá og við hrópum, eins og smávaxna konan með stjóra hjartað: „Líttu á mig. Ég er að deyja!“
Samhengið með Sif Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Donald Trump Tengdar fréttir Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01 Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00 Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01 Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00 Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Ástin það besta í heiminum Tónlist Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Fleiri fréttir Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Spurning um The Terminator upp á tvö hundruð þúsund Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Best að geta elt draumana saman Skilaboðaskjóðan sýnd á Selfossi Laufey og Collab í eina sæng Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Truflað hádegisdjamm í nafni mannréttinda Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Salka Sól látin fara „Hvernig er hægt að deyja áður en maður fæðist?“ Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Jóhanna Vigdís greindist með MS „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Fréttatía vikunnar: Harmleikur, þorrablót og körfubolti „Sannkölluð rokk og ról goðsögn“ fallin frá Sjá meira
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01
Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00
Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01
Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00