Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2026 09:00 Svíar vilja freista þess að smíða betri varnarleik í leikjunum við Ísland en þeir gerðu á EM. VÍSIR/VILHELM Svíar mæta með sitt sterkasta lið og í miklum hefndarhug til Íslands í næsta mánuði, í vináttulandsleikina tvo í handbolta karla, eftir vonbrigðin miklu sem þeir upplifðu á heimavelli á EM í janúar. Aftonbladet, einn stærsti íþróttamiðill Svíþjóðar, segir að um sé að ræða fyrstu tvo leiki Svía „eftir fíaskóið á EM“. Þar steinlágu Svíar gegn Íslendingum, 35-27, en hefðu samt komist í undanúrslit ef þeir hefðu svo ekki gert 32-32 jafntefli við Ungverjaland. Svíar enduðu svo á að mæta Portúgal í leik um 5. sæti og töpuðu þar, 36-35, áður en Ísland lék svo um bronsið en endaði í 4. sæti. Lið Íslands og Svíþjóðar mætast hér á landi 19. og 21. mars en ekki hefur verið staðfest nákvæmlega hvar þeir leikir fara fram. Sextán árum yngri markvörður Michael Apelgren, landsliðsþjálfari Svía, hefur nú valið leikmenn sína í hópinn og þrátt fyrir vonbrigðin á EM gerir hann nánast engar breytingar. Eini munurinn er sá að markvörðurinn Andreas Palicka er hættur í landsliðinu, 39 ára, og í hans stað kemur hinn 23 ára gamli Marko Roganovic. Marko er eldri bróðir Nikola Roganovic sem stimplaði sig vel inn með Svíum á EM. „Hann [Marko Roganovic] er spennandi markvörður og það er mikilvægt fyrir okkur að taka inn unga leikmenn en gera það með réttum hætti svo að þeir verði ekki of margir á sama tíma. Hann hefur staðið sig vel í Danmörku [með Bjerringbro-Silkeborg] síðan hann fór úr sænsku deildinni en það er annað og meira að hjálpa okkur að berjast um verðlaun á stórmóti. Við viljum sjá hann í þessu umhverfi,“ sagði Apelgren við Aftonbladet. Leikurinn við Ísland mestu vonbrigðin Landsliðsþjálfarinn lítur á leikina við Ísland sem tækifæri til að hefna fyrir ófarirnar á EM. „Við höfum harma að hefna. Leikurinn við Ísland er sá sem olli okkur mestum vonbrigðum á Evrópumótinu. Við náðum engu fram í þeim leik og þetta skapaði óvissu fyrir leikinn við Ungverjaland og svo vorum við allt í einu úr leik á mótinu. Þessi leikur undirstrikaði vonbrigðin okkar með varnarleikinn á EM. Við höfum mikið verk að vinna þar og það verður gott að vinna í því gegn Íslandi,“ sagði Apelgren. Sænski hópurinn sem mætir Íslandi: Markverðir: Mikael Appelgren, KC Veszprem Fabian Norsten, Aalborg Handbold Marko Roganovic, Bjerringbro-Silkeborg Vinstra horn: Hampus Wanne, High Handball Felix Montebovi, HK Malmö Línumenn: Max Darj, Füchse Berlin Felix Möller, Aalborg Handbold Oscar Bergendahl, SC Magdeburg Hægra horn: Daniel Pettersson, SC Magdeburg Sebastian Karlsson, Paris Saint-Germain Vinstri skyttur: Jonathan Carlsbogård, FC Barcelona Nikola Roganovic, HK Malmö Eric Johansson, THW Kiel Miðjumenn: Felix Claar, SC Magdeburg Jim Gottfridsson, Pick Szeged Axel Mansson, IFK Kristianstad Hægri skyttur: Albin Lagergren, SC Magdeburg Lukas Sandell, Rhein-Neckar Löwen EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira
Aftonbladet, einn stærsti íþróttamiðill Svíþjóðar, segir að um sé að ræða fyrstu tvo leiki Svía „eftir fíaskóið á EM“. Þar steinlágu Svíar gegn Íslendingum, 35-27, en hefðu samt komist í undanúrslit ef þeir hefðu svo ekki gert 32-32 jafntefli við Ungverjaland. Svíar enduðu svo á að mæta Portúgal í leik um 5. sæti og töpuðu þar, 36-35, áður en Ísland lék svo um bronsið en endaði í 4. sæti. Lið Íslands og Svíþjóðar mætast hér á landi 19. og 21. mars en ekki hefur verið staðfest nákvæmlega hvar þeir leikir fara fram. Sextán árum yngri markvörður Michael Apelgren, landsliðsþjálfari Svía, hefur nú valið leikmenn sína í hópinn og þrátt fyrir vonbrigðin á EM gerir hann nánast engar breytingar. Eini munurinn er sá að markvörðurinn Andreas Palicka er hættur í landsliðinu, 39 ára, og í hans stað kemur hinn 23 ára gamli Marko Roganovic. Marko er eldri bróðir Nikola Roganovic sem stimplaði sig vel inn með Svíum á EM. „Hann [Marko Roganovic] er spennandi markvörður og það er mikilvægt fyrir okkur að taka inn unga leikmenn en gera það með réttum hætti svo að þeir verði ekki of margir á sama tíma. Hann hefur staðið sig vel í Danmörku [með Bjerringbro-Silkeborg] síðan hann fór úr sænsku deildinni en það er annað og meira að hjálpa okkur að berjast um verðlaun á stórmóti. Við viljum sjá hann í þessu umhverfi,“ sagði Apelgren við Aftonbladet. Leikurinn við Ísland mestu vonbrigðin Landsliðsþjálfarinn lítur á leikina við Ísland sem tækifæri til að hefna fyrir ófarirnar á EM. „Við höfum harma að hefna. Leikurinn við Ísland er sá sem olli okkur mestum vonbrigðum á Evrópumótinu. Við náðum engu fram í þeim leik og þetta skapaði óvissu fyrir leikinn við Ungverjaland og svo vorum við allt í einu úr leik á mótinu. Þessi leikur undirstrikaði vonbrigðin okkar með varnarleikinn á EM. Við höfum mikið verk að vinna þar og það verður gott að vinna í því gegn Íslandi,“ sagði Apelgren. Sænski hópurinn sem mætir Íslandi: Markverðir: Mikael Appelgren, KC Veszprem Fabian Norsten, Aalborg Handbold Marko Roganovic, Bjerringbro-Silkeborg Vinstra horn: Hampus Wanne, High Handball Felix Montebovi, HK Malmö Línumenn: Max Darj, Füchse Berlin Felix Möller, Aalborg Handbold Oscar Bergendahl, SC Magdeburg Hægra horn: Daniel Pettersson, SC Magdeburg Sebastian Karlsson, Paris Saint-Germain Vinstri skyttur: Jonathan Carlsbogård, FC Barcelona Nikola Roganovic, HK Malmö Eric Johansson, THW Kiel Miðjumenn: Felix Claar, SC Magdeburg Jim Gottfridsson, Pick Szeged Axel Mansson, IFK Kristianstad Hægri skyttur: Albin Lagergren, SC Magdeburg Lukas Sandell, Rhein-Neckar Löwen
Sænski hópurinn sem mætir Íslandi: Markverðir: Mikael Appelgren, KC Veszprem Fabian Norsten, Aalborg Handbold Marko Roganovic, Bjerringbro-Silkeborg Vinstra horn: Hampus Wanne, High Handball Felix Montebovi, HK Malmö Línumenn: Max Darj, Füchse Berlin Felix Möller, Aalborg Handbold Oscar Bergendahl, SC Magdeburg Hægra horn: Daniel Pettersson, SC Magdeburg Sebastian Karlsson, Paris Saint-Germain Vinstri skyttur: Jonathan Carlsbogård, FC Barcelona Nikola Roganovic, HK Malmö Eric Johansson, THW Kiel Miðjumenn: Felix Claar, SC Magdeburg Jim Gottfridsson, Pick Szeged Axel Mansson, IFK Kristianstad Hægri skyttur: Albin Lagergren, SC Magdeburg Lukas Sandell, Rhein-Neckar Löwen
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira