Viðskipti erlent

Paramount sigrar Netflix í bar­áttunni um Warner Bros.

Samúel Karl Ólason skrifar
Warner Bros. Discovery mun nú að öllum líkindum enda í höndum Ellison-feðganna eftir mikla baráttu þeirra við Netflix.
Warner Bros. Discovery mun nú að öllum líkindum enda í höndum Ellison-feðganna eftir mikla baráttu þeirra við Netflix. Getty/Mario Tama

Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt.

Því er útlit fyrir að Paramount muni eignast allan rekstur WBD en áður ætlaði stjórn félagsins að skipta því upp. Selja átti Netflix kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðslu WBD, auk streymisveitunnar HBO Max. Sjónvarpsstöðvar WBD, eins og Discovery, CNN og TNT yrðu svo áfram reknar í sér félagi.

Forsvarsmenn Paramount, sem er að mestu í eigu Larry Ellison, eins auðugasta manns heims, en David sonur hans er forstjóri félagsins, höfðu gert ítrekaðar tilraunir til að gera betur en Netflix og reyndu meðal annars svokallaða fjandsamlega yfirtöku en í einföldu máli sagt felur slíkt í sér að fara fram hjá stjórn WBD og kaupa hlutabréf í félaginu beint af hluthöfum. Þannig gæti Paramount náð meirihluta í WBD og skipað sitt fólk í nýja stjórn. Þetta ferli er þó töluvert flókið og sagði stjórn WBD hluthöfum að hafna tilboðinu.

Það virkaði ekki. Þá gerði félagið nýtt tilboð í síðustu viku og hækkaði sitt fyrra boð töluvert. Samkomulagið sem stjórn WBD hafði gert við Netflix fól meðal annars í sér að ef önnur og betri tilboð myndu bjóðast hefði Netflix rétt á því að jafna þau.

Nýjasta tilboð Paramount til hluthafa felur meðal annars í sér að greiða þá 2,8 milljarða dala sem það mun kosta að rifta samkomulaginu við Netflix.

Fór áður til Washington

Í tilkynningu frá Ted Sarandos og Greg Peters, forstjórum Netflix, segir að nýja tilboð Paramount sé of hátt og það myndi ekki lengur borga sig fyrir félagið að hækka sitt tilboð í þann hluta WBD sem Netflix vildi eignast.

Þar segjast forsvarsmenn Netflix alltaf hafa stigið fram af ábyrgð við hluthafa Netflix og það að hækka tilboðið enn frekar væri ekki í þeirra þágu.

Blaðakona Politico segir að Sarandos hafi varið rúmum klukkutíma með Pam Bondi dómsmálaráðherra og háttsettum embættismönnum sem koma að samkeppnismálum í Bandaríkjunum í dag.

Þar mun hann hafa farið fram á tryggingar um að Netflix myndi fá sanngjarnt tækifæri til að fá samruna við WBD samþykktan af ríkisstjórn Donalds Trump, ef Netflix reyndi að kaupa félagið. Bondi og aðrir sögðu honum samkvæmt Politico að svo yrði.

Töldu sig í betri stöðu gagnvart ríkisstjórn Trumps

Forsvarsmenn Paramount Skydance hafa talið sig í bestri stöðu til að fá samrunann samþykktan en fyrirtækið var nýlega myndað úr samruna fyrirtækjanna Paramount og Skydance, eftir að Paramount greiddi Trump bætur vegna viðtals fréttaskýringarþáttarins 60 mínútna við Harris í aðdraganda kosninganna.

Ellison-feðgarnir hafa átt í góðum samskiptum við Trump en þeir eru til að mynda meðal stærstu fjárfesta í starfsemi Tik Tok í Bandaríkjunum.

Þá er markaðsstaða Paramount verri en staða bæði Netflix og WBD. David Ellison, forstjóri Paramount og sonur auðjöfursins Larry Ellison, fundaði nýverið með Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Nokkrum dögum síðar sagðist Trump ekki koma með nokkrum hætti að málinu.

Hann hafði áður sagt að hann myndi taka virkan þátt í því að taka ákvörðun um það hvort yfirvöld Bandaríkjanna myndu samþykkja kaupin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×