Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. mars 2026 07:53 Durald Arkapaw bað allar konurnar í salnum um að standa á fætur því án þeirra væri hún ekki á sviðinu. Getty Durald Arkapaw varð bæði fyrsta konan og fyrsta svarta manneskjan til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndatöku þegar hún var verðlaunuð fyrir kvikmyndatöku Sinners í nótt. Arkapaw er einungis fjórða konan til að vera tilnefnd í flokknum.
Óskarsverðlaunin fóru fram í 98. sinn í nótt og dró til ýmissa tíðinda. Hasarmyndin One Battle After Another var sigursælust með sex styttur, Sinners kom þar á eftir með fjórar, óvænt jafntefli varð í flokki bestu stuttmyndanna og Jessie Buckley varð fyrsta írska konan til að vera valin besta leikkona í aðalhlutverki. Stærstu tíðindin sögulega séð eru þó vafalaust sigur 46 ára kvikmyndatökukonunnar Durald Arkapaw í flokki kvikmyndatöku en hún hafði þar betur gegn Darius Khondji sem skaut Marty Supreme, Michael Bauman sem skaut One Battle After Another og Adolpho Veloso sem skaut Train Dreams. Arkapaw hefur unnið mestallan tuttugu ára feril sinn við tónlistarmyndbandagerð en hefur líka skotið sjónvarpsþættina Loka (2021) og kvikmyndirnar Black Panther: Wakanda Forever (2022) og The Last Showgirl (2024). Durald Arkapaw mætti í alvöru fitti.Getty Durald er fjórða konan til að vera tilnefnd til verðlaunanna - tilnefndar á undan henni voru Rachel Morrison fyrir Mudbound (2017), Ari Wegner fyrir The Power of the Dog (2021) og Mady Walker fyrir Elvis (2022). Sömuleiðis er hún einungis þriðji hörundsdökki kvikmyndatökumaðurinn sem er tilnefndur, hinir tveir eru Remi Adefarasin fyrir Elizabeth (1998) og Bradford Young fyrir Arrival (2016). Í ræðu sinni þakkaði Durald samstarfsfólki sínu sem vann að Sinners og bað svo allar konurnar í salnum að standa á fætur, því án þeirra væri hún ekki á sviðinu. Fyrir Óskarsverðlaunahátíðina hafði Durald hlotið fjölda verðlauna fyrir kvikmyndatöku Sinners og verið tilnefnd til BAFTA-verðlaun, Critics Choice-verðlauna og á verðlaunum Samtaka bandarískra kvikmyndatökumanna.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Óskarsverðlaunin Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Fleiri fréttir James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira