Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Árni Sæberg skrifar 17. mars 2026 16:16 Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum.
Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður ræddi við Kristrúnu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun og spurði hvernig henni hefði þótt umræðurnar hingað til. „Ég held að það skipti miklu máli að þjóðin fái að taka ákvörðun í þessu máli. Það er í rauninni verið að spyrja þjóðina hvort hún vilji setja þetta mál á dagskrá með þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur kannski aðeins angrað mig í umræðunni af hálfu minni hlutans að það sé látið eins og þjóðin viti ekki sínu viti, sé ekki fær til að kynna sér málið og um hvað það snýst,“ sagði hún. Málið snerist aðallega um það að þjóðin fengi fyrsta og síðasta orðið þegar kemur að aðildarviðræðum, fengi að ákveða hvort að málið færi á dagskrá, hvort farið yrði aðildarviðræður eða ekki, og síðan að lokum, yrði svarið við fyrri spurningunni já, hvernig þær aðildarviðræður enduðu. Aðlögum okkur reglulega Fram hefur komið í máli ýmissa sem vilja síður ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu, og enn síður hefja aðildarviðræður, að upphaf aðildarviðræðna marki einnig upphaf aðlögunarferlis að regluverki Evrópusambandsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spurði Kristrúni til að mynda í óundirbúnum fyrirspurnartíma hvort henni væri kunnugt um þennan anga málsins. Er eitthvað til í því sem hefur komið fram hjá hinum ýmsu að segi þjóðin já, að þá feli það í sér að hér þurfi að aðlaga lagaramma varðandi hinar ýmsu greinar að Evrópusambandinu? „Við erum auðvitað í EES. Við erum reglulega að aðlaga okkur að EES-markaðnum og það hefur fyrst og fremst haft jákvæðar afleiðingar fyrir okkur. Þannig að þetta er hluti af daglegu lífi hjá okkur Íslendingum og hjá þinginu. Hitt er síðan annað, að við eigum stjórnarskrá, það er þingræði í landinu og við þurfum ekki að gera neitt nema Alþingi Íslendinga vilji samþykkja það. Þetta fer allt saman fyrir þing Íslendinga. Þannig að það er ekki rétt að um aðlögun sem slíka sé að ræða, það verður farið í að ræða ákveðin samningsatriði. En það liggur alveg fyrir að þjóðin muni eiga fyrsta orðið í þessu og þjóðin mun eiga seinasta orðið í þessu.“ Vill ræða myntbandalag, tollamál og samkeppnismál Þarf ekki að kynna vel fyrir þjóðinni núna hvað það felur í sér að fara inn í ESB og ætlar ríkisstjórnin að fara í slíkan kynningarleiðangur áður en til þjóðaratkvæðagreiðslunnar kemur? „Ég fagna því að við getum átt umræðu um kosti og galla Evrópusambandsins og ég hygg reyndar að sú umræða sé farin af stað. Það hefur kannski hjá af hálfu minnihlutans farið meira fyrir ókostunum frekar en kostunum. Þannig að ég myndi fagna því að við myndum ræða um samkeppnismál, við myndum ræða um tollaumhverfi, við myndum ræða um myntbandalög og fleira.“ Það sem skipti þó mestu máli hvað þetta varðar væri að fólk vissi á hvaða forsendum stjórnvöld færu inn í slíkar samningsviðræður, að þau myndu gera tilkall til þess að hafa óskorað forræði yfir auðlindum, til að mynda. „Það eru svona ákveðin rauð flögg eða rauðar línur í sandinn sem fólk vill heyra. Síðan er þetta alltaf spurning um hversu vel okkur tekst að semja samkvæmt þeim prinsippum og það er það sem við höfum sagt, enginn veit það að raun fyrr en sá samningur liggur fyrir. En fólk veit að stjórnvöld, og á að vita, fara inn í þetta af heilindum með þessi rauðu flögg varðandi til að mynda okkar auðlindir og varðandi ákveðna þætti hér og atvinnugreinar. En síðan mun samningurinn alltaf liggja til grundvallar því hvort að við á endanum förum inn í Evrópusambandið eða ekki.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Samfylkingin Evrópusambandið EES-samningurinn Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Erlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Slösuð göngukona flutt með þyrlunni Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Fleiri fréttir Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Sjá meira