Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2026 09:48 Áhrifin af samdrætti í olíu- gasframleiðslu geta verið sérstaklega slæm í Asíu. AP/Ahn Young-joon Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær.
Bæði verð á olíu og gasi hefur tekið mikinn kipp upp á við í morgun. AP fréttaveitan segir að verð á tunnu af Brent-hráolíu, sem er heimsviðmiðið, hafi náð 114 dölum í morgun. Það samsvarar um 57 prósenta hækkun frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran fyrir um tveimur og hálfri viku. Þetta er í kjölfar þess að Ísraelar gerðu í gær árás á jarðgassvæði og vinnslu Írana við Persaflóa í gær en það var í fyrsta sinn sem árásir voru gerðar á orkuframleiðsluinnviði þar í landi. Þangað til höfðu Bandaríkjamenn og Ísraelar forðast árásir á slíka innviði af ótta við að Íranir myndu svara fyrir sig með árásum á olíu- og gasframleiðslu í nágrannaríkjum sínum, með tilheyrandi áhrifum, sem gætu verið langvarandi, á markaði. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í nótt að Ísraelar myndu ekki gera sambærilegar árásir aftur, nema Íranir hættu ekki árásum á orkuinnviði annarra ríkja. Ef þær árásir hættu ekki myndu Bandaríkjamenn gera umfangsmiklar árásir á orkuframleiðsluinnviði í Íran og sprengja Pars-gassvæðið, eitt það stærsta í heimi, upp. Pars gassvæði Írans North Dome gassvæði Katar JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Khark Teheran Hormússund Pars gassvæði Írans North Dome gassvæði Katar BAREIN KATAR Trump hélt því einnig fram að Bandaríkjamenn hefðu ekki verið upplýstir um árásir Ísraela í gær. Sjá einnig: Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Varnarmálaráðuneyti Sádi-Arabíu sagði frá því í morgun að einn sjálfsprengidróni hefði lent á Samref-olíuvinnslustöðinni í hafnarborginni Yanbu. Ein skotflaug frá Íran, sem stefndi einnig í átt að borginni, var skotin niður í morgun. Hve umfangsmikill skaðinn á olíuvinnslustöðinni er liggur ekki fyrir enn. Yanbu er ein af tveimur leiðum sem Sádar hafa til að flytja olíu og jarðgas úr landi eftir lokun Hormússunds. Í Kúveit kviknuðu eldar í tveimur olíuvinnslustöðvum í morgun eftir árásir frá Íran. Þar er um að ræða olíuvinnslustöðvar í al-Abdallah og Mina al-Ahmadi. Þar er sömuleiðis óljóst hve mikill skaðinn er. Gasverð hækkar hratt Í gær gerðu Íranir árásir á jarðgasvinnslur í Ras Laffan í Katar en það eru vinnslur sem nýta einnig Suður-Pars gassvæðið, sem Katarar deila með Írönum. Þær árásir ollu töluverðum skaða en Wall Street Journal segir að verð á jarðgasi í Evrópu hafi hækkað um meira en fjórðung í kjölfar þeirra fregna. Allt að fimmtungur alls jarðgass heims er framleiddur í Ras Laffan. Frá því flest ríki Evrópu hættu að kaupa jarðgas af Rússum hófu þau í staðinn að kaupa mikið magn af gasi frá Katar. Mörg ríki Asíu, eins og Indland, Kína, Japan og Suður-Kórea, reiða sig einnig á gaskaup frá Katar. Þegar kemur að jarðgasi búa ríki heimsins ekki yfir neyðarbirgðum, eins og gjarnan á við með olíu, og geta takmarkanir á framleiðslu því haft mjög hraðar afleiðingar á verð og birgðakeðjur.
Bensín og olía Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Katar Sádi-Arabía Kúveit Bandaríkin Ísrael Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum Samstarf „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Fleiri fréttir Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Trump hækkar tolla á öll lönd Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Einn stofnenda ASOS fannst látinn Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Hefja aftur viðræður við Paramount ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Sjá meira